Fálkinn - 05.07.1961, Page 8
— Það veit ég ekki, þetta
er Indíánamál.
— Hvenær datt þér í hug
að fara til íslands?
— Ég var ákveðin í að kom-
ast til Evrópu, og því þá ekki
að byrja á íslandi. Ég ætla að
ferðast hérna um og mig lang-
ar til að sjá hverina.
—■ Þú hefur auðvitað hald-
ið að við byggjum hér í snjó
húsum og kirkjan, sem þú ætl-
aðir að vinna við, væri úr ís?
— Nei, svo slæmt var það
ekki, sagði Sally og hló við.
Rétt í þessu kom piltur
hlaupandi ofan frá samkomu-
húsinu, og mér datt í hug, að
hann hefði sofnað eftir mat-
inn og orðið of seinn. Það kom
hins vegar í ljós, að Bob hafði
verið í uppvaskinu.
— Er gaman að vinna í eld-
húsinu?
— Nei, miklu betra að vinna
úti.
— Verður þú lengi hér á
landi?
— Nei, ekki mjög lengi. Ég
er í skóla og verð að fara
heim og nota síðari hluta
skólafrísins til að vinna fyrir
peningum til vetrarins.
Bob hafði, eins og fleiri,
heyrt um Mývatn og um heitu
gjána, þar sem maður getur
farið niður í jörðina og synt
í volgu vatninu. Hann sagðist
iðka sund og knattleik í frí-
stundunum og að sér þætti
mjög gaman að vera hér í
þessum vinnuflokki.
Séra Bragi Friðriksson, sem
stjórnar framkvæmdum við
Garðakirkju, sagði frá tildrög-
um þess, að þessi útlendu ung-
menni komu hingað til upp-
byggingarstarfsins.
*
Bragi sagðist hafa kynnzt
starfsemi æskulýðsráða r.estan
hafs og hafa kynnzt nokkrum
framámönnum mótmælenda-
safnaða í Bandaríkjunum og
Kanada. Nú væri hafið marg-
háttað samstarf í þessum efn-
um milli stofnana beggja meg-
in hafsins og koma Banda-
ríkjamannanna og eins Bret-
anna, væri einn þáttur þess.
Séra Bragi sagði, að vmnan
við kirkjuna gengi mjög vel
og þetta væri úrvalsfólk.
Myrna:
— múra frítt á Islandi —
Ragna:
— kirkjan verður fín á eftir —
Jane:
— ekkert lofthrædd —