Fálkinn - 05.07.1961, Blaðsíða 28
21. MABZ —
20. APHlL
21. APRlL -
21. MAl
22. MAl -
21. IÚN1
22. ItM —
22. IÚU
23. IÚL1 —
23. AGÚST
24. AGÚST —
23. SEPT.
24. SEPT. -
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. -
21. DES.
22. DES. —
20. IAN.
21. JAN. -
19. FEBB.
20. FEBR. -
20. MAB2
STJÖRNUSPÁIN
Hrútsmerkiö.
Vikan verður góð og fleytifull af nýjum verkefnum og
óvæntum átburðum. Smá óveðursský á himni hverfa jafn-
skjótt og þau komu. Þér kynnist nýju fólki í vikunni, sem
yður hefur lengi langað til að kynnast og hafið gaman af
að þekkja. Á sviði ástamálanna verður skyndileg freisting
á vegi yðar.
Nautsmerkið.
Það gerist margt í þessari viku, sem ekki er alveg eins
og þér höfðuð reiknað með. En þér verðið að gjöra svo vel
og sætta yður við orðinn hlut. Reynið að vera ögn elskulegri
og viðmótsþýðari í framkomu, sérstaklega á heimili yðar.
Tvíburamerkið.
Þér hafið verið of bjartsýnn og andvaralaus að undan-
förnu, bæði 1 hugsun og athöfn. Þér verðið að bregða yður
niður á jörðina aftur, svo að ekki verði gert gys að yður.
Þér hafið ástæðu til þess áð vera ánægður með margt, en
ekki allt!
Krabbamerkið.
Þér hafið gert úlfalda úr mýflugu. Þér hafið eytt allt of
miklum tíma i að ergja yður út. af manni, sem þér þurfið
að umgangast daglega á vinnustað. Viðkomandi er í raun-
inni alls ekki eins erfiður viðureignar og þér haldið. Reynið
að fara vel að honum.
Ljónsmerkið.
Þetta verður heldur leiðinleg vika, og satt að segja geng-
ur margt á afturfótunum hjá yður. Látið samt ekki hug-
fallast. Reynið að taka yður hvíld um skeið til þess að róa
taugarnar. Margt af þeim leyndarmálum, sem þér hafið
reynt án árangurs að leysa, hefðuð þér getað leyst, ef ekki
hefði ofþreyta yðar verið fyrir hendi.
Jómfrúarmerkið.
Skyndilega er eins og sjálfstraust yðar sé rokið út í veð-
ur og vind. Þér verðið einhvern veginn óöruggur með sjálfan
yður. Takið ekki lítilvæga erfiðleika alvarlega. Sá, sem býst
statt og stöðugt við að illa fari, verður aldrei lánsamur.
Reynið að eygja nýjar leiðir og nýja von.
Vogarskálarmerkiö.
Þetta verður góð vika með fjölmörgum óvæntum tíðindum,
vika indælla og rómantískra ævintýra. Á vinnustað verðið
þér fyrir aðkasti, en berst á síðustu stundu hjálp frá óvænt-
um aðila. Þér skuluð athuga gang yðar rækilega í sambandi
við peningamálin.
Sporðdrekamcrkið.
Þetta verður aldeilis sérlega góð vika, og strax fyrstu daga
hennar berast góðar og gleðilegar fréttir. Kaupsýslumenn
og þeir, sem hugsa mest um peninga í þessu lífi, uppgötva
nýjar og gróðavænlegar leikir. Vikan verður mjög góð fyrir
ungt fólk. Ástarævintýrin fara vel.
B o ffmannsmerkið.
Þér eruð ögn órólegur og taugaóst.yrkur þessa viku, hrædd-
ur um að hafa gert vitleysu, sem dregur dilk á eftir sér.
Einnig finnst yður stundum eins og þér séuð ekki starfi
yðar vaxinn. Þetta er reginmisskilningur. Fyrr eða síðar fáiö
þér viðurkenningu fyrir vel unnið verk.
Stcinffeitarmerkið.
Þér hafið óvenju annríkt þessa viku og eruð þess vegna
í leiðu skapi. Nú er sumarleyfi á næstu grösum og þess
vegna skuluð þér líta björt.um augum á tilveruna, þ.ví að
fríið mun á allan hátt lukkast prýðilega og þér fáið loksins
góða og verðskuldaða hvíld.
Vatnsberamerkið.
Þeir, sem fæddir eru undir þessu merki, munu finna til
ofurlítillar einmanakenndar, sérstaklega kvenfólk. Þetta tákn-
ar þó engan veginn að öll sund séu lokuð og allir vinir hafi
skyndilega brugðizt. Það er yður sjálfum að kenna, að ögn
andar köldu kringum yður þessa stundina.
Fiskamerlcið.
Það gerist margt í þessari viku og einhverjar fréttir munu
verða öðruvísi en þér bjuggumst við og valda yður áhyggj-
um. Síðar mun þó koma í Ijós, að áhyggjurnar voru ástæðu-
\ausar. Á sviði hjartansmálanna einkennist vikan af ótta
og óróleika, sem einnig er ástæðulaus.
Himnaförin -
Frh. af bls. 32
Daunninn var svo magnaður, að ef Jón
hefði á þessari stundu verið staddur
í sínum jarðneska líkama, hefði hann
afdráttarlaust fengið sviplegan dauð-
daga.
Og þarna meðal mýraflákanna var
landgöngubrúnni skellt niður og mun-
aði þá minnstu, að hún sykki ofan í
fljótandi foræðið.
Komdu, heiðurskarlinn, sagði brytinn
og tók undir handlegg Jóns.
Mér þykir vera gerður munur á,
rumdi Jón, illur.
Svo var og í þínu jarðlífi, Jón ríki,
svaraði fylgdarmaður hans, án lítilla úr-
bóta frá þinni hendi. Og hann leiddi
Jón niður brúna.
Leysið festar fljótt! kallaði skipherr-
ann og hélt hendi fyrir vit sín.
Eins og skot, skipstjóri, svaraði skips-
höfnin einróma. Og skipið hélt á fullri
ferð á brott frá þessum viðkomustað.
En Jón gamli, fyrrum kallaður ríki,
hélt hníptur til skógar.
Við skulum samt vona hið bezta, því
að engill ljóssins hélt í humátt á eftir
honum inn í myrkviðinn.
PRFINTMYNDA' MiHDIN
MYNDAMÓT H.F.
MORGUNBLAÐSHÚSINU - SÍMI 17152