Fálkinn


Fálkinn - 05.07.1961, Blaðsíða 23

Fálkinn - 05.07.1961, Blaðsíða 23
ynr itvKflit mmav' Efni: 51X82 cm ullarefni í töskuna, jafnmikið af plastic í fóður, auk þess leður eða plastic, 35X80 cm, sem fer vel við ullarefnið. Málmspenna 2X cm. ASferð: Klippið töskuna eftir skýr- ingarmyndinni. Rúðustrikið pappírsörk þannig að hver ferhyrningur sé 5X5 cm. Teiknið síðan hina ýmsu hluta töskunn- ar á örkina og klippið út mynstrið: Framhlið töskunnar = a bæði efni og fóður. Ðakhlið töskunnar = b bæði efni og fóður. Töskubotninn = c úr leðri eða plastic. Neðri brún töskunnar = d og e úr leðri eða plastic. Lokan = f úr leðri eða plastic. Sproti á lokuna = g úr leðri eða plastic. Spennufesting = h úr leðri eða plastic. Hankinn = i úr leðri eða plastic. Ekki þarf að gera ráð fyrir saumför- um, þegar klippt er. Þræðið plasticfóðrið við fram- og bak- hliðina, saumað saman að ofanverðu. Saumið síðan leðurbrúnirnar (d og c) neðan á fram- og bak-hliðina. Festið sprotana (g) á lokuna (f) og festið lok- una við brotnu línuna á bakhliðinni. Spennufestingin (h) brotin tvöföld, spennunni stungið upp á, og spennu- festingin stungin á framhliðina, eins og sést á skýringarmyndinni. Saumið grófa stungu með hendinni til skrauts, eins og sést á stóru myndinni. Saumið hank- ann (í) saman og festið honum með stungum á lokuna að innanverðu. Saumið saman hliðar töskunnar á röngunni. Botninn (c) líka festur í á röngunni. AÐ OFAN: Köflótt handtaska, eins og sú, sem lýst er hér að fram- an, fer mjög vel og smekk- lega, sérstaklega, þegar ung- ar stúlkur eiga í hlut. Hún er auk þess auðveld í tilbún- ingi og þar af leiðandi ódýr. TIL HÆGRI: Skýringarmyndin, sem taskan er klippt eftir. TIL VINSTRI: A þessari mynd sést vel lok töskunnar.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.