Fálkinn - 05.07.1961, Side 16
*■
ý (jagAÍHA CHH
AÐALFUNDUR SSNEMSH
Þið hafið eflaust veitt því athygli
nú í sumar, eins og undanfarin sumur,
að það færist sífellt í aukana, að hér
á landi séu haldnar hinar og þessar ráð-
stefnur og fundir alls konar alþjóðlegra
og norrænna samtaka og bandalaga.
Flestar greinar atvinnulífsins eiga full-
trúa á fundum og þingum stéttarbræðra
sinna í öðrum löndum, og svo kemur
að því, að þingið eða fundurinn er hald-
inn í Reykjavík. Og þá er nú aldeilis
tekið vel á móti útlendingunum.
Ég veit ekki, hvort þið hafið tekið
eftir því, að nýlokið er ársþingi Sam-
bands sam-norrænna eftirlitsmanna á
snyrtiherbergjum, sem hér á eftir verð-
ur skammstafað SSNEMSH til þess að
spara rúm og svertu. SSNEMSH á sér
langa og viðburðaríka sögu að baki, en
það var stofnað 1952, að undirlagi að-
stoðarformanns varanefndar hreinlætis-
málastofnunar norrænu samvinnunefnd-
arinnar, en hún er ein af undirnefnd-
um allsherjarnefndar Norðurlandaráðs-
ins.
Meðlimir innan SSNEMSH munu nú
vera hátt á þriðja þúsund í öllum Norð-
urlöndum (einn frá Færeyjum), og er
farmaður samtakanna hinn þekkti
Svend Klosettquist frá Grand Hotel í
Stokkhólmi, en varaformaðurinn er frá
Hótel Suomi í Finnlandi, Vaski Saalerni
að nafni. Markmið SSNEMSH er að
stuðla að auknu hreinlæti á snyrtiher-
bergjum þjóðanna, og svo auðvitað að
bættum kjörum meðlima samtakanna.
Ráðstefnan hér í Reykjavík fór fram
dagana 25. til 29. júní, en hinir erlendu
þátttakendur komu hingað með flugvél
þann 24. Voru þeir um 50 að tölu, en
einnig sátu 10 íslendingar fundinn. Voru
flutt erindi og ræður alla dagana með-
an ráðstefnan stóð, en umræður voru
mjög fjörugar. í hádegi þann 25. sátu
fundarmenn veizlu hjá bæjaryfirvöld-
unum, en um kvöldið hafði hreinlætis-
málaráðherra boð inni í ráðherrabú-
staðnum. Var mjög glatt á hjalla í bú-
staðnum, því ráðherra þekkti nokkra af
hinum erlendu gestum persónulega, þar
sem hann er tíður gestur á snyrtiher-
bergjum fínni hótela á Norðurlöndum.
Hélt ráðherrann snjalla ræðu undirborð-
um og sagði meðal annars, að það væri
hínum norrænu bræðraþjóðum lífsnauð-
syn að hlúa að og efla snyrtihúsamenn-
ingu sína og myndlist þá, sem þróast
í skjóli hennar. Hann harmaði, að á
íslandi ætti eftir að reisa fjölda snyrti-
húsa, áður en hægt væri að segja að
þessum málum væri komið í viðunandi
horf, en sagðist vona, að ekki yrði allt
of mikið þvag runnið til sjávar áður
en bót fengist þar á. Alþjóðabankinn
hefði lofað fyrirgreiðslu um útvegun
á láni til byggingar á 5 nýjum og glæsi-
legum snyrtihúsum í Reykjavík, sagði
ráðherra að lokum.
Aðalmál ráðstefnu SSNEMSH var,
„Mikilvægi snyrtiherbergisins í menn-
ingarlífi nútímaþjóðar“, en einnig voru
haldnir margir aðrir fyrirlestrar, og má
þar nefna til dæmis, „Ráð til að fyrir-
byggja uppsölur gesta í þvagskálarnar“
og „Notkun hárburstans“. Einn norski
fulltrúinn kom með mjög nýstárlega
kenningu um það, að það gæti haft trufl-
andi áhrif á sálarlíf bersköllóttra manna,
ef eftirlitsmenn burstuðu herðar þeirra
eins og annarra viðskiptamanna. Var
skipuð nefnd til að rannsaka það mál.
Erlendu fulltrúarnir vottuðu heima-
mönnum samúð sína yfir því, að bjór-
frumvarpið skyldi ekki ná fram að
ganga. Framganga frumvarpsins myndi
hafa mikil og góð áhrif á afkomu ís-
lenzkra eftirlitsmanna á snyrtiherbergj-
um, þar sem það hefur sýnt sig, að
bjórdrykkja gestanna eykur mjög að-
sókn þeirra að snyrtiherbergjum.
Erlendu þátttakendunum voru sýndir
ýmsir merkisstaðir í bænum og ná-
grenni hans. Þeir skoðuðu snyrtiherbergi
nýjustu veitingastaðanna og dáðust mest
að Þjóðleikhúsinu, þ. e. snyrtiherbergj-
unum. Einnig var farið með þá að baki
Útvegsbanka íslands og þeim sýndur
staðurinn, þar sem komið var upp á
sínum tíma járnplötu þeirri, sem hug-
vitssamlega var tengd rafmagni, og
kenndi stórum hóp bæjarbúa að sækja
snyrtihúsin í stað þess að kasta af sér
vatni í húsasundum. Var þessi röggsemi
og framkvæmd stjórnarvaldanna mjög
rómuð af útlendingunum, og túlkuð
sem mjög þakkarverð aðstoð við stétt-
ina.
Var síðan farið í ferðalag til Gull-
foss, Geysis og Þingvalla. Mest dáðust
útlendingarnir að Gullfossi, því flestir
þeirra eru mjög hugfangnir af alls kyns
vatnsrennsli. Á Þingvöllum skoðuðu
gestirnir hið forna Lögberg undir leið-
sögn kunnugra. Lék þeim mjög hugur
á að vita, hvar staðið hefðu snyrtihús
fornmanna á Þingvöllum. Ekki reynd-
ist þó unnt að leysa úr þeim spurning-
um, þar sem ekki er þessa sérstaklega
getið í fornbókmenntum þjóðarinnar.
Síðasta daginn voru fulltrúar boðnir
að Bessastöðum og þáðu þar veitingar.
Var það einróma álit allra, að ráðstefna
þessi hefði tekizt hið bezta og orðið
íslenzkum eftirlitsmönnum í snyrtihús-
um, og reyndar allri þjóðinni, til hins
mesta sóma.
mesta sóma. Dagur Anns.
16
FALKINN