Fálkinn


Fálkinn - 05.07.1961, Blaðsíða 18

Fálkinn - 05.07.1961, Blaðsíða 18
SOLINAUTHOLSVIK Sól, sól, sól. Ekki er hún fyrr búin að smeygja geislunijínum milli skýhnoðranna, en þúsundir andlita vita mót henni og brosa til hennar í sælukenndri lotningu. Og fyrr en varir er fólkið farið að tínast í Naut- hólsvíkina, baðstað höfuðstaðarins, ef notað er fínt og ævintýralegt orð. Það er einhver ólýsanleg gleði, sem fyllir hjartað um leið og sólskinið bað- ar höfuðstaðinn. Allir, sem því geta við komið, hraða sér út undir bert loft, því að sólksin er hálfgerður happdrættisvinningur hér á norðurhjara veraldar. Það var talsvert fólk í Nauthólsvíkinni fyrsta verulega sólskinsdag sumarsins, og hér og þar hittum við ýmsa, sem hefðu eftir öllum sólar- merkjum að dæma átt að vera á öðrum stað á þessum tíma dagsins! Er- indi okkar var einungis það að beina myndavélinni að fallegu fólki, sem væri í fyrsta sólbaði sumarsins og liti björtum augum á tilveruna, að minnsta kosti meðan sólarinnar nyti við. Og hér birtist árangurinn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.