Fálkinn - 05.07.1961, Qupperneq 25
Þið hafið hvorugur minnst á það!
— Við höfum ekki fengið tækifærí
til þess, sagði Johnson og talaði einnig
fyrir munn Georgs. — Já, við höfum
hitzt áður. Georg hefur ef til vill
bjargað lífi þínu, Sallý, en hann hefði
á hinn bóginn vel getað drepið mig.
Munið þið eftir útblásturspípunni, sem
var í ólagi . það kom kolsýrdngur
inn í bílinn? Ég ók á verkstæðið til að
fá þetta viðgert. Þegar ég fór þangað
aftur um hádegisbilið, sagði verkstjór-
inn: „Nú er 'það í lagi“. „Gott*1, sagði
ég og ók af stað, en það kom alveg
jafnmikill kolsýringur og áður, þá
ók ég aftur á verkstæðið og verkstjór-
inn sendi boð eftir „viðgerðamannin-
um“ — og það var Georg!
Frú Johnson greip fyrir munninn og
sagði: — Ó, hvað ertu að segja?
En Sallý var ekki fisjað saman. Hún
sagði djarflega: —• Allir geta gert
skyssur, pabbi. Þú hefur sjálfur sagt,
að sá maður, sem ekki geti gert skyss-
ur, geti yfirleitt ekki gert neitt. Og
við höfum alls ekki hugsað okkur að
flana að neinu.
— Ef þú bara vilt lofa mér að út-
skýra---------, byrjaði Georg, en Sallý
greip fram í fyrir honum. — Þú þarft
hreint ekki að útskýra neitt. Eins og
ég sagði, þá höfum við ekki hugsað
okkur að giftast strax. Ég held áfram
hjúkrunarnámánu og tek próf. Og þeg-
ar þar að kemur, verð ég orðin tuttugu
og eins.......
Þetta var alls ekki útrætt mál, en
foreldrar Sallýar höfðu kennt henni,
að stundum var betra að þegja, og þau
höfðu líka gert henni Ijóst, að stöku
sinnum þurfti að segja allt, sem manni
bjó í brjósti.
— Jæja, við sjáum nú til, sagði frú
Johnson. — Það er að minnsta kosti
gott til þess að vita, að ykkur liggur
ekki svo mikið á. En hvað ætlið þið að
gera núna? Horfa á sjónvarpið? Eða
fara í gönguferð? Eða hefur ykkur
dottið eitthvað annað í hug?
Georg fannst það góð hugmynd að
fara út að ganga, og Sallý hafði ekkert
á móti því.
Þá gafst þeim tóm til að ræða um
sig og framtíðina, og foreldrarnir gátu
í ró og næði spjallað um sama vanda-
málið, .... en frá öðrum sjónarhól.
Þar sem þau áttu dóttur á giftingar-
aldri, höfðu þau vitanlega oft hugsað
um tilvonandi tengdason sinn. Þeim
var orðið býsna ljóst, hvernig hann
ætti að vera, og Georg var alls ekki
eftir þeirra höfði. Það var eins og
Johnson sagði: — Ég hef ekkert á
móti því, að hann sé vélvirki, bara að
hann væri góður vélvirki. En það er
Frh. á bls, 30
snlly ^tdulál
•51» <1 > í
nnpþvot i 'tv:>tnib
Þetta var alls ekki útrætt mál, en foreld-
rar Sallýar höfðu kennt henni, að stundum
var betra að þegja ....
SKEMMTISAGA EFTIR W.R. ATKINSON
FÁLKINN 25