Fálkinn


Fálkinn - 05.07.1961, Qupperneq 31

Fálkinn - 05.07.1961, Qupperneq 31
vitað þungt áfall fyrir vesalings Fraser, en hann átti kannski ekki betra skilið. Sallý grunað í rauninni Georg um að hafa rótað eitthvað í bílskrjóðnum og hún sagði honum frá því. — Ég mundi aldrei leggjast svo lágt, svaraði hann. Og Johnson var auðvitað kominn á þann aldur, að engan grunaði hann um neitt þess háttar. DRAUGUR - Frh. af bls. 11 Þær lýsa hreinlyndum og heilsteypt- um manni, sem var misskilinn af sam- tíðinni, og lifði í samfélagi, þar sem hann var hálf framandi og utangarna. 3. Oddur Hjaltalín sat í Nesi við Sel- tjörn, sem sumir nefndu Læknisnes á þeim árum. Hann gegndi landlæknis- embætti til ársins 1820, en þá tók hann við embættinu, sem hann var fyrr skip- aður til. Það hafa verið mikil viðbrigði fyrir menntaðan mann að hverfa heim til íslands og setjast þar að eftir fjölbreytt líf í fjölmennu landi, þar sem nægt var úrval skemmtana og margs konar dægradvala.Reykjavík og nágrenni voru langt frá því að geta boðið upp á fjöl- breytt líf á þeim tíma. Kaupmaðurinn var leiðinlegur, mótaður mest af hálf- dönskum og dönskum verzlunarmönn- um og fólki, rótlausu og sundurskildu í skoðunum, fasi og háttum, víðsvegar að af landinu. Bæjarbragur var fá- breytilegur og losaralegur. Skemmtana- lífið bæjarins stórhnignaði við siglinga- teppu Napóleonsstyrjaldanna. Menn urðu að fitja upp á einhverju nýju til þess að finna sér dægradvöl í tóm- stundum. Oddur landlæknir hefur eflaust reynt að finna sér ýmislegt til yndisauka í tómstundum. Hann gerði sér far um að kynnast fólkinu á Seltjarnarnesi og spyrja og finna út sérkenni þess og ein- kennilega hætti í ýmsum greinum. Með- al fólksins kenndi margra grasa, enda var það runnið úr margvíslegum jarð- vegi. Þar var fólk, sem trúði á alls kon- ar gamlar venjur og notaði hjátrú og fj ölbreytileg tákn og heillamerki við störf sín. Hann komst brátt á snoðir um, að einn eldri maður bar af öllum í þessum efnum á Seltjarnarnesi. Marg- ir trúðu því, að hann kynni meira en lítið fyrir sér, væri göldróttur, og kynni að vekja upp draug. Landlæknir kom sér í kunningsskap við mann þennan með hægð og lægni. Hann hóf máls á því við hann, að hann hefði mikinn áhuga fyrir göldrum og ýmsum andlegum íþróttum, fornum. Maðurinn var hálfhikandi í fyrstu að ræða þessi mál við landlækni, en gerði það samt. Galdramaðurinn fann brátt, að landlæknir kunni ýmislegt í þessum efnum og hafði mikinn áhuga á þeim. Þeir urðu hinir mestu mátar, og þótti galdramanni mikil upphefð að því að hafa sálufélag við jafnmenntaðan og tíginn mann sem landlækni. Honum fannst auðvitað álit sitt og fræða sinna stóraukast við slíkt. Landlæknir fór oft á fund galdra- mannsins og var hjá honum mörgum stundum til viðræðna um fræði hans. Þar kom máli þeirra, að landlækni kvaðst langa til að vekja upp draug, en kvaðst ekki vera nógu mikill kunn- áttumaður til þess, og auk þess skorti alla æfingu. Galdramaður kvað vanda- laust að bæta úr því. Hann kvaðst kunna mjög vel að vekja upp draug og vera algjörlega fullnuma í þeirri kúnst. Land- læknir varð mjög hrifinn af þessu og hrósaði mjög kunnáttu og þekkingu mannsins í þessum fræðum. Galdramað- urinn gekkst mjög upp við hól læknis og varð hinn bíræfnasti að segja hon- um það, sem hann kaus um hin fornu fræði. Þeir í’æddu oft og mörgum sinn- um um allar aðferðir við draugsupp- vakningu og báru saman fræði sín í þeim efnum. Galdramaðurinn vissi langt um meira um þetta en landlæknir, en með þeim fór ágætlega. Þar kom tali þeirra, að þeir ákváðu að fara í Reykja- víkurkirkjugarð, sem þá var við Aðal- stræti, framan við innréttingarhús Skúla fógeta og hina gömlu bæjarrönd Ingólfs landnámsmanns Arnarsonar, og vekja þar upp draug að kvöldlagi. Galdramaður kvað bezt að vekja upp drauginn með nýbyrjuðu tungli, þegar drungalegt væri veður og dimmt yfir. Fór svo að lokum, að þeir ákváðu stund og stað, þar sem þeir áttu að hittast og halda til kirkjugarðs og vekja upp drauginn. Leið svo og beið til stefnu- dags. Þegar stefnudagurinn rann upp og stundin var komin, að þeir skyldu hitt- ast og halda til garðsins, voru báðir til staðar. Þeir höfðu allan útbúnað, sem að vísu var ekki margbrotinn, og héldu hinir gunnreifustu til kirkjugarðsins. Þeir komust inn um sáluhliðið, svo eng- inn varð var við, enda voru fáir á ferli, veður drungalegt og ekki skin tungls. Þegar í garðinn kom, sveipuðust þeir hvítum rekkjuvoðum, að venju drauga- uppvekjenda. Landlæknir fór með galdramanni að leiði einu, heldur litlu, og bað hann hefja uppvakninguna. Það stóð ekki á honum. Hann byrjaði að þylja særingartöfra og róla öfugur og rangsælis kringum leiðið, þyljandi alls- konar áhríning, vers og sálma, sem öllu var snúið upp á Djöfulinn. Gekk svo lengi, en enginn árangur varð. Galdra- maðurinn herti ætíð meira á áhríningi sínum, og varð sem allra innilegastur í tjáningu sinni allri. En sá framliðni lét ekkert bæra á sér og engin vegsummerki sáust til hreyfingar í eða á leiðinu. Þar kom, að landlæknir fór að leið- ast yfirsöngur mannsins og fór að verða órór. Hann ávarpaði hann heldur bitur- lega og gaf honum fyllilega í skyn, að lítil reyndist kunnátta hans, þegar á hólminn kæmi. Galdramaðurinn varð hnugginn við og hætti særingunum. Að því búnu kvaðst iandlæknir ætia að reyna, hvernig sér gengi við upp- vakninguna. Hann bað manninn vera viðbúinn að takast á við drauginn, þeg- ar hann kæmi upp. Síðan fór hann þangað í garðinn, sem leiðaþyrpingin var þéttust, og sló bylmingshögg með stafnum á eitt leiðið og mælti: „Komdu hér upp, djöfull, ég skipa þér.“ Óðara en hann sleppti orðinu, kom þar upp draugur hjúpaður hvítum lík- hjúp, mjög stór og ferlegur að allri sýn. Landlæknir var ekki seinn til að ávarpa hann á nýjan leik: „Þarna er maður. Dreptu hann.“ Draugurinn fór óðara í áttina til galdramannsins, en sá síðarnefndi, sem var orðinn allskelkaður, greip til fót- anna og í áttina til sáluhliðs. Þegar hann var að sleppa út úr sáluhliðinu, var draugsi alveg á hælum hans. Hann herti sprettinn enn þá meira og hljóp vestur Landakotstún, vestur Mela og heim til sín suður á Seltjarnarnes. Hann þóttist eiga fótum fjör að launa, þegar hann náði heim, án þess að draugur- inn næði sér. En það er af landlækni að segja, að hann skemmti sér mjög vel við við- brögð galdramannsins, og sá, að ekki stóð þekking hans eins föstum rótum eins og hann hafði vera látið. Hann hafði mjög gaman af, hve hræddur hann varð og viðbrögðum hans og flótta. En það er af draugsa að segja, að hann sneri sér að landlækni og ávarp- aði hann kunnuglega, því að hann var í raun ekki kirkjugarðsbúi, þó líkhjúp- aður væri, heldur mennskur maður, sem landlæknir hafði fengið til að leynast milli leiða í garðinum, þar til hann gæfi honum merki um að standa upp og leika draug, og snúa gegn galdramann- inum. Þetta bragð heppnaðist mjög vel og var þeim báðum mikil skemmtun að, en sérstaklega landiækni. Sagði hann oft frá þessum leik sínum síðar og skop- aðist mikið að. Ekkj er mér kunnugt um, hvort galdramaður hafi síðar reynt að vekja upp draug, þó að svona tækist til hjá honum í þetta skipti. En fremur tel ég líklegt, að hann hafi styrkzt í trúnni en hitt, þegar hann sá, að landlækni varð þetta svona auðvelt. Því líklegt má telja, að hann hafi aldrei orðið þess vís, að brögð voru í tafli. Heimildir: Þjóðsögur Jóns Árna- sonar, Annáll nítjándu aldar og Læknar á íslandi og fieira. FÁLKINN 31

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.