Fálkinn


Fálkinn - 05.07.1961, Side 33

Fálkinn - 05.07.1961, Side 33
En þá brá heldur skugga á ásjónu engilsins: Hann er ekki hér, kona góð. Er blessað barnið mitt ekki hérna? spurði gamla móðirin öldungis forviða. Hvar er hann þá? Engillinn benti í gagnstæða átt, þar sem myrkur grúfði yfir. Ó, voldugi andi, kveinaði Tobba gamla, og hörfaði upp brúna: Hvernig á ég að una mér í himnaríki meðan barnið mitt er í kolsvartri formyrkvan! Hún fór að háhljóða. Látið huggast, kona góð. — Æ, greip Tobba fram í, leyfið hon- um vist hérna í ljósinu, en lofið mér að koma í hans stað. — Kona góð, þér vitið ekki hvers þér beiðist. — Ójú, því þótt ég verði svo um alla eilífð að ráfa um í myrkrinu, vil ég svo fúslega vinna það til sáluhjálpar drengnum mínum. Bjarma sló á ásjónu engilsins: Móðir góð, hinn fórnfúsi kærleikur þinn skal ekki ólaunaður verða. Máski þú getir líka bætt það með móðurást þinni, sem okkur hérna hefur ekki tek- ist! Og samstundis stóð pilturinn hjá Tobbu gömlu. Ég er nú hreint gáttaður, tautaði Jón og hristi kollinn, alveg dolfallinn. Hvers konar lýður er þetta eiginlega, sem á hér inni —? Leysið festar! kallaði nú skipherrann. Skal gert, skipstjóri! Landgöngubrúin var hífð upp og skip- ið lagði frá landi. Smátt og smátt, eftir því sem á leið ferðina og viðkomustöðum fjölgaði, týndu farþegarnir tölunni, unz svo var komið, að ekki voru eftir nema tveir farþegar um borð, Jón gamli ríki og fjárhættuspilarinn. Og tvímenningarnir horfðu nú á það í kvíðavænlegri skelf- ingu, hvernig smám saman syrti í álinn fram undan. Jafnhliða rökkrinu varð einkennileg litabreyting í lofti. Allt um- hverfið byrjaði að taka á sig gulan lit- blæ, andstyggilegan, sterkgulan lit, að Jóni finnst, og hann verður gripinn þó nokkrum skelk. Hann hefur aldrei verið gefinn fyrir gulan litinn og allra sízt núna, hvað sem því nú veldur. Og skelk- urinn læsti sig um hann með eldingar- hraða, þegar eitthvað í líkingu við klettagjótu kom í ljós fram undan, og upp úr þessari svörtu holu steig reykjar- bræla, og þessi reykjarbræla gerir Jón tortrygginn. Landgöngubrúin seig niður og bryt- inn kom í átt til þeirra fóstbræðranna. Jón skimaði í flýti eftir felustað, en varð hughægra við þegar brytinn drap á öxl félaga hans: Vertu ekki kvíðinn, kunningi, sagði brytinn og klappaði hinum myrkfælna farþega sáttfús á herðarnar. Líttu á — þarna inni á milli kiettanna. — Og allt í eiu kviknaði rauð glóð og mörg spilaborð komu í ljós. Óttinn hvarf fjárhættuspilaranum á augabragði. Nú, á betra verður ekki kosið, sagði hann hinn ánægðasti, hérna mun ég una mér. Og hann tók til fótanna. Ætli þú verðir nú samt ekki búinn að fá nóg að mannsaldri liðnum, kall- aði brytinn á eftir honum og hló góð- látlega. Farþeginn herti á sér við orð bryt- ans. Og aftur lagði skipið af stað út í sortann. Tók nú heldur betur að hitna í veðri, er nær dró hinum síðasta áfanga- stað. Að minnsta kosti fær Jón gamli alveg nægju sina af kyndingunni. Ætli við séum að nálgast Afríku? tautaði hann, því að nú klauf skipið hitabeltisgróðurinn beggja vegna og stanzaði loks alveg mitt í myrkviðnum. Hrikalegur skógur blasti við, hvert sem auga leit, og að því er virtist botnlaus fen, sem gáfu frá sér hræðilega fýlu. Frh. á bls. 28 Kæri Astró! Mig langar til að skyggnast inn í framtíðina. Ég er fædd 17. október 1942 klukkan 1,15 eftir miðnætti í Reykjavík. Ég vinn núna á skrifstofu. Á ég eftir að eyða ævinni á skrifstofu eða á ég eftir að giftast og eiga börn. Eg er kunnug þrem mönnum en er ekki viss hvort ég ætti að vera að hugsa nokkuð alvar- lega um þá. Getur þú sagt mér hvern ég ætti þá helzt að hugsa um. í>eir eru fædd- ir 29. október 1942, 15. októ- ber 1939 og 19. nóvember 1936. Um hvaða leyti ætli gift- ing muni eiga sér stað og hvernig um peningamál? Á ég eftir að ferðast mikið um landið eða til útlanda? Með fyrirfram þökk. D. S. B. tug merkisins. Þú ert fædd undir hinu svo nefnda þriðja gráðutug merkisins og þeir sem hér eru fæddir eru ekki síður félagslyndir heldur en þeir sem fæddir eru undir fyrsta og öðrum gráðutug merkisins. Ekki er hugvitið að heldur óskarpara. Það er í rauninni oft mikið skarp- ara, sérstaklega viðvíkjandi bókmenntum og listum. En þar sem um er að ræða gráðutug félagsskaparins næst merki dauðans, Sporð- drekamerkinu, er stundum einkennileg ólánssemi, tengd því. Merki gráðutugsins er Úlf- urinn eða Lupus. Úlfurinn íklæðist ullarreifi en Boga- maðurinn rekur hann í gegn með spjóti sínu. Þetta á að tákna óhjákvæmileg örlög þeirra, sem hér eru fæddir og brjóta í bág við lögmál til að hneppa aðra í fangelsi fávizku og fátæktar, svo þeir geti auðgast á því. En þegar þeir lifa hreinu líferni og falla ekki fyrir spillingunni, rísa þeir í háar stöður og hagnýtar, þannig verða þeir ekki leiksoppar illra örlaga. Með tilliti til spurningar þinnar um skrifstofustarfið, álít ég að þú sért mjög vel til þess fallin og haldirðu þig við þá braut, er öruggt að þér verða falin mannaforráð síðar á lífsbrautinni. Þú eign- ast nóg af góðum vinum og þeir munu jafnan reynast þér vel, þetta er sérstaklega áberandi í sambandi við heimili þitt. Afstöðunnar í tíunda húsi benda til að þú haf ir einhverntíma verið viðrið- in opinbert hneykslismál þar sem Satúrn og Úranus eru báðir staðsettir þar. Það verður í sambandi við bar- piltinn, sem er fæddur 15. október 1939. Annars er bezta makaval þitt frá Vog- armerkinu fyrst og fremst, einnig er ágætt samræmi við þá sem fæddir eru undir Vatnsberamerkinu og Tvi- buramerkinu. Um fjármál þin vildi ég segja þetta: Afstöðurnar benda til að þig muni ekki skorta peninga, þó þú verðir ekki neinn auðkýfingur, en þú munt hafa nóg fyrir þig og vel það. Um utanlands- ferðir held ég að þú ættir ekki að hugsa í bili, en þeirra tími kemur síðar, t. d. þegar þú ert á þrítugasta og fyrsta aldursárinu, er margt sem bendir til iangrar sjóferðar. Horfur eru á að þú giftist snemma og að mannsefnj þitt verði þér til mikiilar ánægju. Hann mun starfa mikið á Svar til D S B guðs og manna. Sakir snilli- Þú ert fædd undir merki Safn hugsunar þeirra nota Vogarinnar í þriðja gráðu- þeir stundum hæfileika sína áttu tveggja valdahringa um völd. Þú ættir helzt að hugsa um vegum hins opinbera. Tutt- ugu og tveggja ára muntu hitta hann fyrst. 33 FALKINN

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.