Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1961, Blaðsíða 4

Fálkinn - 26.07.1961, Blaðsíða 4
NÝ brennt og malaö KAFFI ávallt fyrirliggjandi KAFFIBRENNSLA AKUREYRAR H.F. Tryggvabraut . Akureyri Ferðamenn! Akureyri aÉ MINJAGRIPABUÐIN °9 BÓKAB1JÐ RIKKIJ eru í HaFnarstræti 97 Trésmiðjan Lundur h.f. Lundargötu 6 . Sími 1771 . Akureyri Framleiðuin: Glugga — liurðir liti og inni Innréttingar, Fldliiksborð, stóla o. £1. Tökum að okkur: Endurbætur og viðgerðir a luis* um, lniismunitm o. £1. Sammy Dav,is leikarinn og fjöllistamaðurinn frægi er lítt hrifinn af hinu nýja hlutverki sínu í kvikmynd- inní ,,The Great Train Robbery“, enda þótt mágur Kennedys forseta leiki með honum í myndinni. Hann kvartar hástöfum yfir því að hann fái ekki að klæð- ast nema einum búningi út alla myndina. „Og ég,“ sagði hann, „á í klæðaskápnum mín- um 98 fallega alklæðnaði og 134 handmáluð bindi. Á þetta allt að grotna inn í skáp og verða möl að bráð?“ Það er algert hneyksli. ★ Kennedy forseti hélt ekki alls fyrir löngu ræðu á fundi í bandaríska blaðamannafél- aginu. Hann lét svo um- mælt, að blöðin mættu vera örlítið rausnarlegri í garð erlendra fréttaritara, hvað laun snerti. Hann sagði m.a. frá því, ef hið þekkta amer- íska stórblað New York Her ald Tribune hefði borgað erlendum frétta- riturum betur fyrr á tímum, væri heimurinn miklu betri í dag. Svo er mál með vexti, að fréttaritari nokkur í London fór fram á launahækkun til þess að geta framfleytt sér og fjölskyldu sinni, en blaðið neitaði þessu og fréttaritarinn snéri sér þá að allt öðrum viðfangsefnum. Fréttaritari þessi hét Karl Marx. ★ David Niven er einn fræg- asti kvikmyndaleikari Breta í dag og er hann ekki að- eins frægur fyrir leik sinn heldur og afrek sín í heims- styrjöldinni síðari. Leikara- blað í Hollywood ætlaði fyr- ir skömmu að birta greina- flokk um hann, og auðvitað vilcti blaðið hafa allt sem réttast í frásögninni. Þe,ir sendu honum því skeyti, sem hljóðaði svo: „Hvað voruð þér í' síðustu styrjöld?“ Og svarið kom um hæl: „Óttasleginn". Fyrir nokkru bar það til tíðinda í þvi Hvíta húsi Bandaríkjanna, að ungur indíána- höfðingi kom í heimsókn til þess að votta hinum nýkjörna forseta hollustu sína. Hann þurfti auðvitað, að rita nafn sitt í gesta- bókina og hann gerði það með því að setja tvo krossa í hana. Og hvað merkja nú þessir krossar?, spurði embættismaður sá, er á vakt var. „Fyrsti krossinn táknar nú nafn mitt“. „Jæja, og hinn?“ „Hann táknar nú doktorsgráðu mína í heimspeki“.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.