Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1961, Blaðsíða 8

Fálkinn - 26.07.1961, Blaðsíða 8
Hús Matthíasar Jochumsson- ar á Sigurhæðum, séð gegn- um lim trjáa ofantil á hæð- inni. hann húsið á Sigurhæðum og bjó þar til æviloka. „Nú byrj- aði nýtt brauk og brask með nýrri öld. Fyrst það að halda okkar sex uppvaxandi stúlk- um í skólum, þar næst að semja um forlag ljóðmæla minna við Davíð Östlund, er þá var á Seyðisfirði. Þá brauzt ég í að láta byggja okkur nýtt hús, en selja hið gamla, sem við höfðum búið í 13 ár. Gekk það brask furðu vel . . segir í „Söguköflum af sjálfum mér“. Marteinn Sigurðsson, safn- vörður Matthíasarsafns, tekur á móti okkur, býður okkur velkomna og tekur að sýna Matthíasarsafn á Akureyri Það er undarleg tilfinning að standa skyndilega á miðju gólfi í skrifstofu séra Matt- híasar, renna augum frá bók- um þeim, er hann handlék, að stól hans og skrifborði, legubekk, hatt og staf. Það er undarlegt að líta alla þessa dauðu hluti, sem hafa öðlazt eilíft líf fyrir tilverknað eig- anda síns. Hvert sem augað lítur vitnar sérhver hlutur um líf Matthíasar og starf. Hér ríkir and,i hans og skáldið er alls staðar nálægt Maður býst við því hálft í hvoru, að þá og þegar birtist hann og'setj- ist í stólinn sinn .. . Við létum það verða ©itt af Úr skrifstofu séra Matthíasar. Fyrir ofan skrifborðið og skrifborðsstólinn hanga nokkrar myndir. A mynd- inni hér til hliðar sést efst til vinstri mynd af Jóni Sigurðs- syni, bá mynd af eiginkonu skáldsins, Guðrúnu Runólfs- dóttur og loks er autt rúm, en þar mun hafa verið mynd af frú Sharpe. f neðri röð eru nokkrar fjölskyldumyndir. f bókahillunni eru verk Matth- íasar innbundin og á borðinu liggur Ijósprentað handrit af þjóðsöngnum. 8 FALKINN fyrstu verkum okkar, er við gistum Akureyri á sólbjörtum júlídegi, að heimsækja hið nýstofnaða Matthíasarsafn á Sigurhæðumt í húsinu, sem Matthías Jochumsson bjó síð- ustu æviár sín. Séra Matthías fluttist norður 1887 og bjó fyrstu 13 árin „suður í Fjöru“. Um aldamótin reisti okkur safnið. Þar sem við stöndum í skrifstofu skálds- ins, rennum við augum yfir bókakilina í tveim bókaskáp- um og tökum út bók og bók á stangli. Hér eru bækur af ýmsu tagi, bók um ,skák á íslandi eftir Williard Fiske, Árbók fornleifafélagsins, svo að dæmi séu nefnd af handa- hófi, og mikið um innlend skáldverk, sem höfundar hafa sent Matthíasi árituð. Við rekumst á Lénharð fógeta með eiginhandaráritun Einars H. Kvaran. Og þarna er biblí- an á frönsku, sem ,sagt er að Matthías hafi oft haft með- ferðis á ferðalögum til þess að hressa upp á frönskukunn- áttu sína. Skrifborð og skrifborðs- stóll séra Matthíasar eru hvort tveggja vandaðir og út- skornir gripir. Um þessi hús- gögn segir Steingrímur Matt- híasson svo í eftirmála við sögukaflana: var hann (þ. e. Guðmundur Hannesson læknir) honum og móður minni hinn hollasti ráðunaut- ur í búskaparáhyggjum þeirra, t.d. þegar þau byggðu húsið á Sigurhæðum og fluttu úr Fjörunni. Man ég sérstak- lega, hvað það gladdi pabba, er nokkrir kunningjar, fyrir forgöngu Guðmundar, færðu honum vönduð stofugögn i

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.