Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1961, Blaðsíða 32

Fálkinn - 26.07.1961, Blaðsíða 32
Fjallganga - Framh. af bls. 13. um mínum, sem þú gekkst í í skíða- landsgöngunnj um árið, sællar minn- ingar Þú kæmist sjálfsagt ekki í þær núna. Ég fer ekki með þér upp á fjöll, ef þú ætlar að klæðast eins og einhver f jörulalli. Ég þoli ekki neitt, sem minnir á þara eða þang, þegar blessuð fjöllin eru annars vegar. Ég hef ekki beðið um að fá að fara neitt, fullyrti bóndi. Ég ætla nú að hringja snöggvast í hann Tryggva og fá hjá honum upp- lýsingar og leiðbeiningar. Það dugar ekki að ana upp á háfjöll eins og mað- ur stendur, sagði frúin og vildi ekki munnhöggvast frekar við manninn. Svo talaði hún við Tryggva í tæpa tvo tíma. Það var mikil eyðsla á dýr- mætum tíma, en þó var tímaeyðslan ekki neitt’hjá þeim dilk, sem hún dróg á eftir sér í útgjöldum: alfatnað af dýr- ustu gerð á bæði. Þau skrifuðu upp langa minnislista, sitt í hvoru lagi. Jóel þurfti að kaupa sér skíðaskó, skíðabuxur, stormjakka, trefil, tvíbandaða vettlinga eða fóðraða hanzka. Petrína þurfti að kaupa flest það sama, auk sokkabuxna næst sér. Aftur á móti slapp hún við að kaupa skíðaskó. Þá átti hún frá skíðalands- göngunni um árið og gat nú miklast af forsjálni sinni, því nú væru skíðaskór þrefalt dýrari. Jóel minnti hana þá á nýju slalonskíðim sem hún þverbraut i. þeirr.i reisu. Æ, það var satt, við þurfum náttúr- lega skíði í ferðina, sagði Petrína og — Eruð þér kominn? Við áttum ekki von á yður fyrr en eftir tutt- ugu mínútur! 32 FALKINN lét sem hún heyrði ekki skæting bónda síns. Ég ætla að hringja í Kára og spyrja hann Nei, iáttu það nú vera, greip Jóel fram í fyrir henni. Hann telur þig bara á einn alfatnaðinn enn, — og skíði kaup,i ég ekki hvað sem tautar og raul- ar. Enda þótt. Heldurðu að maður geti anað upp á fjöll eins og fáviti? Það gæti bókstaflega kostað okkur lífið, annað eða bæði. Svo hringdi hún til Kára og talaði lengi, um veðrið á láglendi og uppi á fjöllum, um hitastig í bílum og á há- fjöllum og um loftslagið uppi og niðri, klæðnað, uppum sig og niðrum sig, og ýmislegt þar á milli. Þegar talinu lauk, hafði hún þær fréttir að færa Jóel bónda sínum, að Kári teldi ekkert vit i öðru en að ali.ir hefðu með sér kulda- úlpur( ómögulegt væri að gizka á veðr- ið eða hitastigið. Það væri allra veðra von uppi á Heiði, það gæti orðið steikj- andi sólskin, svo þátttakendur mættu ganga nær naktir eða svo sem velsæmið frekast leyfði, en það mætti alveg eins búast við skafhríð og sveljanda eða þá stórhríð. Þessu bar hún Kára fyrir. En hvað sem ofan á yrði, var þó einn ljós púnktur í niðurstöðunni: Jóel átti kuldaúlpu. Og þótt Petrína væri ekki vel við að taka sjóföt með í ferðalagið, því vitanlega hafði Jóel notað úlpuna á sjónum. varð honum ekki með nokkru móti þokað til að kaupa nýja, fyrir þetta bölvað ekki sens feigðarflan, eins og hann sagði. Að svo búnu fóru þau bæði út í bæ til innkaupa. Það voru laglegir baggar, sem þau hjónakornin báru heim í Fróðasund 40 um sexleytið. Ó, ég er svo hrædd um að við höfum gleymt einhverju smálegu, Jóel minn, stundi Petrína þegar þau voru byrjuð að taka upp pjönkurnar og máta klæðn- aðinn. Já, en nú neita ég smáu sem stóru, sagði Jóel afdráttarlaust. Ég eyddi 15 hundruð krónum fyrir þessa fataleppa handa mér — og ætli þú hafir ekki farið með meira, ef að vanda lætur. Jú, auðvitað gerði ég það. Heldurðu að það muni ekkert um úlpuna? Ég keypti fyrir tæp 3 þúsund krónur. Mér finnst það ekkert mikið eins og dýr- tíðin er skelfileg. — En nú má ég til með að tala við hann Björn Þórðar, og vita hvort hann getur ekki minnt mig á eitthvað sem ég hlýt að hafa gleymt, — hann Björn er svo mikill séntil- maður, sagði Petrína og svo var hún komin í símann áður en Jóel kom nokkrum vörnum við. Hann dróg sig því í hlé, fór inn í svefnherbergi með fatabaggann sinn, — lagði sig — og var sofnaður á samri stund að sjómanna hætti. Hann var búinn að sofa þó dálitla stund, þegar hann var vakinn með fyr- irbænum og formælingum konu sinnar. Hún varð svo aldeilis hissa og spurði hvað svona andvaraleysi ætti eiginlega að fyrirstilla á örlagastund, hvort hann héldi að slíkt gæti gengið þegar fólk ætlaði í fjallgöngu. Hann losaði svefninn og spurði á móti, hvort ekki kæmi nótt á eftir þess- um degi eins og öðrum, eða hvort þau ættu strax að fara að búa sig. Hún sagði að þetta væri meira al- vörumál en svo, að hafa mætti það í flimtingum. Hann spurði hvort kvöldmaturinn væri til, eða hvort ríkja ætti algert bindindi á mat og drykk hér á heimil- inu það sem eftir væri. Hún sagðist vera að sjóða hangikjöt í öllum sínum pottum og mætti auk þess ekki vera að neinu óþörfu matar- stelli núna. — En nú verður þú, sagði hún, að fara óðara upp í bæ og kaupa bæði myndavél og kíki, hann Björn sagði að svoleiðis hluti mætti aldrei vanta í fjallaferðir. Ég held þú sért komin með óráð, Petrína, sagði Jóel og reis seinlega á fætur, — búið að loka fyrir lifandi löngu og hátíð framundan. Alveg sama. Ég veit hvað ég syng. Myndavélina færðu hjá gullsmiðunum, þeir auglýsa núna í Degi, að þeir af- greiði trúlofunarhringa allan sólar- hringinn. So so so. Ég á þó ekki að fara að kaupa hringana handa okkur? Nei, enga andsk...... hringa, bara myndavél — og filmur, kauptu einar tíu filmur með henni, — og svo kíkinn, hann færðu hjá Brynjólfi Sveinssyni h.f. í Skipagötunni. Ef þú ferð strax, þá nærðu þessu hvorutveggja, bara að berja þangað til þeir opna. Maður er eins og blindur kettlingur uppi á fjöll- um nema að hafa kíki. — Svona, vertu nú einu sinni snöggur, Jóel minn, sagði konan og ýtti honum á undan sér út úr svefnhúsinu. Og Jóel fór. — Og Jóel kom aftur í vökulokin með myndavélina og kíkinn. Hann var þó ekki beint glaður, hvernig sem á því stóð. Hann sagðist hafa þurft að hlaupa uppfyrir Staðarhól til að ná í Gunnar Árnason og fá þennan helv. kíki. Hann lét á sér skilja að þetta hefðu verið löng hlaup og vitlaus kaup. Þú ert þá í þeim mun betri æfingu undir morgundaginn, sagði eiginkonan og vorkenndi honum lítið. Hann sagðist vera búinn að fá heift- arlegar harðsperrur. Hún sagði að harðsperrurnar væru bara í skapinu á honum. Þó innkaupum vær,i nú lokið, þá fóru erilsamir tímar í hönd. Nú var eftir að búa út og setja niður. Það sýndi sig fljótlega að bakpokarnir voru alltof lítil ílát, svo farangurinn komst ekki nærri allur niður í þá. Aðeins sviðin og hangi- kjötið fyllti annan þeirra svo gersam- lega, að það kauraði í saumunum þegar Jóel var að troða í hann — og þó stóðu hæklarn.ir upp úr. Hinn pokinn rúmaði ekki nærri því öll þau kynstur sem eftir voru, smurða brauðið, eggin, mjólkina,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.