Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1961, Blaðsíða 33

Fálkinn - 26.07.1961, Blaðsíða 33
kaffið og rjómann, að ógleymdri Sana- sól og lýsisflösku. Konan var sár óánægð við manninn fyrir að hann skyldi kaupa þessa greppi, sem ekkert kæmist í, en hann sagðist aftur á móti hafa tekið þá allra stærstu, sem völ var á. En hvort sem þau þrátt- uðu um það lengur eða skemur, þá var hitt staðreynd að þau urðu að búa um afganginn í tveimur léreftspokum, sem hver um sig var álíka þungur og bak- pokarnir. Jóel sagði að þetta væru drápsklyfjar. Petrína sagði að þetta værj ekki öðr- um megin á hund. Jóel fór að hátta þegar klukkan var eitt og sagðist gera það með góðri sam- vizku, en Petrína sagði að hann færi ekká að sofa með sínu samþykki, það eitt væri áreiðanlegt. Sjálf hélt hún áfram tilstandinu til klukkan þrjú og taldi þó ýmislegt ógert fyrir ferðina, sem hafin skyldi kl. 8 að morgni. Hún ákvað þó að blunda fram í birtinguna. Morgunsvefninn er þeim ssetur, sem seint fara að hátta. Jóel vaknaði að sönnu laust fyrir klukkan átta, en sama var. Hann sá ekki ástæðu til að ýta við Petrínu úr því svona var komið. Þau voru hvort eð var búin að tapa af strætisvagninum. Æjá. En Jóel gat þó ekki annað en notað tímann meðan hann lá vakandi við hlið sofandi kon- unnar, að setja upp svolítið dæmi í huga sér. Hann reiknaði það aftur á bak og áfram, hvað ofan í annað, — en alltaf varð útkoman hin sama: tæpar 10 þús- und krónur. Þetta var bara venjuleg samlagning og engin brot. Rétt í því að hann var orðinn alveg sannfærður um að útkoman hlyti að vera rétt hjá sér, glaðvaknaði Petrína með ósköpum. Hún henti sænginni í háaloft, saup kveljur og vippaði sér langt fram á gólf. Manninum flaug í hug að hún hefði lært þetta stökk í morgunleikfiminni. Hvað gerir þig út, maður? sagði hún, stjörf af heift og skelfingu. Þú vakir og gónir bara upp í loftið eins og fábjáni. Almáttugur góður guð náði okkur! .... og klukkan farin að ganga níu. Þú hefð- ir þurft að fara. fyrr í bælið í gær- kvöldið til að geta haft andvara á þér, .... og bíllinn náttúrlega farinn . . . og við sem vorum búin að kaupa far- miðana ... Og nesti og nýja skó fyrir ítæp 10 þúsund, sagði maðurinn með hægð. En nú eru páskarnir liðnir hjá og búðir opnaðar á ný eftir langa hvíld. En það hefur flogið fyrir að Jóel skip- stjóri og Petrína konan hans séu í þann veginn að opna nýja sportvöruverzlun í Fróðasundi 40 — í kjallaranum. Þeir sem gerzt þykjast um þetta vita, segja að þar verði á boðstólum alls konar úrvalsfatnaður á konur og karla, sér- — Nú skal ég bara segja yður, frú Hansen . . . staklega til fjallaferða, svo og ýmisleg tæki og útbúnaður, t. d. háfjallasól, — og einhver sagði^ mér að þar fengist einnig Sanasól og jafnvel soðið hangi- kjöt, hvort sem það er nú satt eða ekki. Endir. Ég er fædd hérna í Reykja- vík. Ég var mjög ung þegar ég giftist og hef eignazt fimm börn. Hef ekki verið ham- ingjusöm vegna þess að mað- urinn minn hefur drukkið mikið á köflum. Við vorum komin í sæmileg efn,i, áttum íbúð og bifreið, en erum búin að tapa öllu vegna óreglu hans og hef ég oft verið að því komin að skilja við hann, en ekki getað vegna þess að mér þykir enn vænt um hann, þótt ég sé orðin uppgefin á öllu. Nú langar mig til að vita hvað stjörnuspáin segir um framtíð mína. Vinsamlegast birtið ekki mánaðardagana. Með fyrirfram þakklæti, Reykvísk kona. Svar til Reykvískrar konu. í korti manns þíns eru sér- staklega sterkar afstöður í merki Fiskanna, þar eð fimm plánetur eru staddar þar. Það var því ekki að ólíkindum að hann gerðist vínhneigður þeg- ar efnin buðu svo. Það er yfir- leitt ekki um margt að velja hjá fólki með slíkar afstöður. Þó gæti það fundið sig í því að starfa í einhverjum hjálp- arsvéitum, þar sem aðstoðar er þörf, t. d. í sambandi við spítala og fangelsisvörzlu. í slíkum störfum vegnar því fólki bezt. Ég held okkar á milli sagt að drykkjuskapur manns þíns sé ekki síður þér sjálfri að kenna heldur en honum. Þannig er mál með vexti að fæðingarsól þín er rísandi þegar þú fæddist. Þetta merkir að þú sért nokk- uð ráðdeildarsöm. Þetta er hins vegar þáttur sem Fiska- merkisfólk eins og maðurinn þinn eiga mjög svo bágt með að þola. Hann þarfnast miklu fremur samúðar en alls kon- ar fyrirskipana. í þínu korti eru Sól og Máni í svonefndri þvers afstöðu og mynda 90°, en það leiðir af sér mikla sál- ræna erfiðleika og gerir per- sónuna deilugjarna og arga. Þetta eru auðvitað lestir, sem ber algjörlega að venja sig af, ef vonast á eftir betra lífi, því framkoma manns er manns ógæfusmiður eða gæfusmiður að miklu leyti. Örlögin eru engin hending eins og margir virðast álíta. Það er sérhver sinnar gæfu smiður. Senni- lega liggur hér ástæðan til þess að maður þinn leitaði sér huggunar í neyzlu áfengis þar sem hann var veill fyrir að eðlisfari. Þú ættir að sýna honum samúð og ástúð í stað- inn fyrir að gagnrýna hann og gera hann leiðan á lífinu, þá sér hann ef til vill að lífið fer að verða einhvers virði og bætir ráð sitt. Þið eruð nú enn ung að árum og eigið nóga tíð til að ná ykkur upp og jafna þetta allt saman. Þegar maður lítur á stunda- sjá þína í heild, þá eru til þættir, sem lofa góðu um ævi þína, til dæmis varðandi heilsufarið. Þegar dauðann ber að garði verður það með skyndilegum hætti og óvænt. Máninn í Tvíburamerkinu bendir til þess að þú sért mjög ráðkæn kona, en þú þarft að temja þér meiri góð- vild. FALKINN 33

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.