Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1961, Page 12

Fálkinn - 26.07.1961, Page 12
Það var liðið fast að hádegi, þegar Jóef kom heim úr þessari fyrstu ferð sinni í bæinn. Hann hafði fengið miðana og bakpokana og obbann af nestinu... GAMANSAGA FRÁ AKUREYRI EFTIR RÓSBERG SNÆDAL Jóel skipstjóri vaknaði í rúmi sínu heima í Fróðasundi 40, og þá var hin árrisula síðvetrarsól farin að skína inn um gluggann til hans. Hann lét sér ekki bregða við það, því komið var fram á einmánuð og runninn miðvikudagur næstur fyrir páska, svo hann sneri sér bara undan mestu birtunni og ætlaði að sofa meira. En þá var það sem hann, fór allt í einu að heyra háan og glað- hlakkalegan söng úr námunda. Honum datt fyrst í hug englasöngur, eða svona yndislegir timburmenn, en með því að hvorttveggja var heldur ótrúlegt fór hann að leggja við hlustirnar og hyggja betur að. Nei, þessi söngur kom framan úr eldhúsi og röddin var Petrínu, kon- unnar hans. Hún bara söng si svona yfir kaffivatninu: Þú bláfjalla geimur með heiðjöklahring um hávetur flý eg þér að hjarta. Bölv . .. vitleysa er þetta, tautaði bóndi. Hann mundi ekki betur en sér hefði verið kennt að segja um hásumar. Var nú Petrína hans farin að skálda líka? Nú hlaut henni að segjast fyrir, blessaðri, eða þá að hún var búin að fá einhverja nýja og áður óþekkta flugu í kollinn, flugu, sem ætti eftir að syngja sinn söng við eyru hans sjálfs næstu dægrin eða vikurnar. Og Jóel þurfti ekki lengi að bíða ráðningar þessarar lífsgátu. Petrína kom inn til hans rjóð og móð eftir sönginn. Góðan daginn, Jóel minn. Ja, sá sem getur sofið á svona morgni! Þvílíkt dá- semdar veður — og fjöllin allt í kring, sagði hún rómantísk að öllu nema út- liti. Jóel geispaði og reyndi að vakna bet- ur. -—- Jæja, eru þau öll hérna kyrr á sama stað, Vaðlaheiðin og Súlur og öll hin? Mér þykir þú færa mér fréttirnar á sængina. Hefurðu ekki kaffisopa með þessu, gcða mín?' sagði hann. Æ, hvað þú ert alltaf hryllilega ver- aldlegur, andvarpaði konan og var strax farin að fölna. Einhvern tíma verðum við öll andar, Peta mín. Ég líka og þú líka. Ætli það sé ekki nógur tíminn að fljúga þá yfir fjöllin blá. Þessu anzaði konan hans ekki, heldur kom að honum óvörum á ný: Veiztu, að ég er búin ða ákveða að við förum í fjallgöngu á morgun, upp á Vaðlaheiði með Ferðafélaginu? Nei, hvernig ætti ég að vita þínar ráðagerðir og anstaltir? Ég var að sjá auglýsingu um þetta i Degi. Það verður gengið upp á heiðina þar fem hún er hæst, það er að segja það verður ekki gengið alla leið, heldur farið í bíl upp á sjálfa heiðina, og svo . . . So so. Og hvað er hægt að komast lengra? Ætlið þið að reisa upp himna- stigann þar og byrja að fika ykkur upp- eftir? Enga útúrsnúninga, Jóel, — og farðu nú að tína á þig leppana í snatri. Það er svo ótalmargt sem við þurfum að útrétta fyrir morgundaginn. Þú verður að fara strax upp á Dag og kaupa far- miðana. Hvað er þetta, kona? Dagurinn er nú ekki búinn, varla byrjaður. Ég ætti svo sem að geta rölt eftir miða-skömmunum fyrir kvöldið. Ég meinti Dag, árétti Petrína. Já, það er það sem ég var að segja, — í dag, sagði maðurinn þrár. Nei, miðarnir eru hjá Degi, skilurðu það ekki? Það stendur í blaðinu. Hjá Degi? Ég þekki engan mann með þvi nafni hérr.a í bænum. Þöngulhaus ertu að verða, Jóel! Ertu virkilega farinn að kalka svona hastar- lega? Þeir eru hjá blaðinu Degi, ef þú hefur heyrt þess getið. No no no no. Nú er heima! Því selja þeir ekki miðana heldur hjá íslendingi? Er þetta eitthvert bölvað ekki sens framsóknarfélag? Ég hef alltaf verið Sjálfstæðismaður, eins og þú ættir að vita. Hvað um það? Ég held þú getir látið það liggja á milli hluta þessa tvo daga. Náttúran spyr ekki um pólitík. En mundu eftir að spyrja þá hvernig mað- ur eigi að vera búinn á morgun, sér- staklega að neðanverðu. Petrína vék nú út að glugganum og skimaði út, en Jóel skipstjóri fór að klæða sig með hægð. Það lítur út fyrir sama blessað veðrið á morgun, sagði hún. Einmitt, tautaði eiginmaðurinn. Þeir þyrftu að fá þig á Veðurstofunni Peta mín, til að líta út um glugga að morgni og segja: Sama blessað veðrið á morg- un. Já, þeir þyrftu að fá þig, þeir hafa áreiðanlega ekki slík séní. Hitt er svo annað mál, að ég vildi kannske ekki róa eftir þeim veðurskeytum skilyrðislaust. Æi hættu nú þessu þrögli. Þú ert allt- af eins og þorskur á þurru landi, — setur mann æfinlega úr öllu stuði. „Fiskurinn hefur fögur hljóð, finnst hann oft á heiðum“, stendur í kvæðinu. Heyrirðu það, Peta? Hann finnst uppi á heiðum og syngur: Þú bláfjalla geim- ur, húrra! Það er ekki skömm að því, Peta. Þessari fyndni kunni konan ekki að taka. Hún strunsaði til eldhúss og lét Jóel einan við að klæða sig. En eftir góða stund heyrði hann ennþá söng að framan og hann ekki á lægri nótunum: Frjálst er í fjallasal, fagurt í skógardai, heilnæmt er heiðloftið tæra. Þegar Jóel hafði fengið að sötra kaffi- kvölina sína, var honum ekki til lengri setu boðið. Hann var sendur eftir mið- um — og hann átti einnig að kaupa bakpoka í bakaleiðinni, og heldur tvo en einn, til ferðalagsins. Jóel sagðist geta notað sjópokann sinn, en Petrína sagði að hann færi ekki að svívirða ís- lenzka náttúru með slíku ótæti, allra sízt blessuð fjöllin, . . en hann átti líka að kaupa bita í nestið, hangikjöt, gott læri, en tvö ef þau væru mjög rýr, svið, hval, hákarl, rúllupylsu, flatbrauð, soðið brauð, rúgbrauð, rjóma og egg, já, og endilega eina Sanasól og snjóbirtu- gleraugu á bæði. Það var liðið fast að hádegi þegar Jóel kom heim úr þessari fyrstu ferð sinni í bæinn. Hann hafði fengið mið- ana og bakpokana — og obbann af því, sem hann átti að kaupa í nestið, m.a. tvö dávæn hangikjötslæri. En á einum hlut flaskaði hann herfilega, það vai' Sanasólin. Hann hafði keypt háfjalla- sól fyrir 5 hundruð krónur. Petrínu þóttu þessi mistök ekki góð, en lét þó kyrrt liggja, því hún sá fram á að há- fjallasólin mundi koma í góðar þarfir FJALLGANGA 12 FÁLKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.