Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1961, Síða 34

Fálkinn - 26.07.1961, Síða 34
Byggingarvöruverzlun Akureyrar h.f. PÍTIR & VALDIMAR H.F. AKUREYRI PÚSTHDLF S5 SÍMAR: 15B3 - Z6BB SÍMNEFNI: „TIMBUR” • Sehir allskonar byggingarefni og harðvið fyrir verkstæði Algjör nýjung vöruflutninga á milli Akureyrar og Reykjavíkur • Krossvið af ýmsum þykktum Kvöldferðir annan hvern dag Skrár, lamir og flestar smávörur fyrir verkstæði-Verkfæri margskonar frá hvorum staðnum um sig, svo og dagferðir Höfum fullkomna glerslípun og speglagerð Afgreiðsla í Reykjavík hjá: Afgreiðum rúðugler og bílagler gegn pöst- kröfu hvert á land sem er, einiiig spegla VÖRUFLUTNINGAMIÐSTÖÐINNI H.F. Borgartúni 21 — Símar 15113 og 12678 VÍXILLINN - Frh. af bls. 19. en nú var hvort tveggja hangandi á bláþræSi, að honum fannst. Hann hefur engar vöflur á en tekur fram tösku sína og fer að ganga frá föggum sínum, sem ekki eru fyrirferð- armiklar og klæðast ferðabúningi. Hann heyrir umgang í húsinu. Dóttir hans er komin á fætur og fram í eld- húsið. Hann snarast fram til hennar, hljóð- lega þó og býður góðan dag. — Láttu þér ekki bregða, elskan þó að ég sé ferðbúinn, segir hann. — Eg er að hugsa um að snara mér heimleiðis með áætlunarbílnum. Mig dreymdi stórhríðarlega í nótt og ég veit að ég hefi engan frið í mínum beinum fyrr en ég er búinn að ná fénu úr heið- inni. — En pabbi, segir stúlkan, þú verður þó að fá þér hressingu áður og svo vek ég hann Rafn og hann ekur þér á Ferða- skrifstofuna. — Jæja, góða mín, gefðu mér bara eitt mjólkurglas. En fyrir alla muni — ekki að vekja hann Rafn. Ég veit hon- um þykir gptt að lúra á morgnana og ég hefi bara gott af að liðka mig á því að ganga þennan spöl. 34 FÁLKINN Dóttirin veit að hér tjóir ekki á móti að mæla. Faðir hennar er vanur að fara sínu fram þegar þessi gállinn er á hon- um. Síðan þiggur Gísli bóndi hressingu í mesta flýti, tekur síðan tösku sína og kveður dótturina í forstofunni. — Jæja, vertu blessuð elskan og berðu manni þínum beztu kveðju mína. Þú veizt að þú ert alltaf velkomin heim í kotið og þið bæði tvö, ef eitt- hvað skyldi koma upp á. Maður veit aldrei hvað kann að bera að höndum. Þar með snarast hann af stað og læt- ur dótturinni eftir að leita eftir dýpri merkingu þessara orða. Hann er harð- stígur og léttur í spori og ber fljótt yfir og nær áætlunarbílnum í tæka tíð. Fyrst þegar hann er seztur inn í bíl- inn saknar hann pontu sinnar og vasa- klúts. Hvort tveggja hefur orðið eftir í vinnukonuherberginu á Seljaveginum. Þetta var í svoddan flýti sem hann fór. Það var nú verri sagan. En það varð að hafa það. Ekki færi hann að snúa aftur úr því sem komið var. Jæja. — Hann Rafn tengdasonur hans hefði þá kannski gaman af að hressa sig á inni- haldi pontunar. Æ — honum var það þá sannarlega ekki of gott, piltkvölinni. Ekki mundi honum af veita. Það var ekki svo skemmtilegt sem í vændum var. Og nú minnist hann þess, að hann hafði hálfvegiis verið að ráðgera að taka heim með sér gamla koffortið hennar Þóru. Hann hafði komið auga á það þar sem það stóð í skoti upp á háalofti, rykfallið og einmanalegt og virtist ekki kunna við sig meira en í meðallagi. Þetta koffort hafði hann eignast ung- ur. Hann hafði verið næstum heilt ár að þræla fyrir því, svo hann var vel að því kominn. Það hafði ekki verið borg- að með víxM — onei. Jæja, það varð að bíða betri tíma að nálgast það og svo var kannski ekki hægt að fortaka það, að hún Þóra litla kynni að þurfa á því að halda einhvern tíma síðar meir. En það var víst, að á meðan það stóð þarna, var þó til húsa á Seljaveginum ein mubbla, sem í alla staði mátti kall- ast heiðarleg og virðingarverð. Matthíasarsafn — Frh. af bls. 10 lega, að ef margir af þeim, sem fóru vestur, hefðu vitað, hversu möguleik- arnir voru miklir hér heima, þá hefðu þeir óskað, að þeir hefðu aldrei farið. Þeir hefðu heldur v.iljað svelta hér í nokkur ár ....

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.