Fálkinn - 06.09.1961, Qupperneq 19
Tólf
stúlkur
sýndu
sextíu
klæðnaði
0
Til vinstri er Steina Kristins-
dóttir i dökklillablárri idlar-
tweedkápu með persian-skinni
á vösum og; krag-a. Til hægri
er Guðrún Bjarnadóttir í hvit-
um ullarsportjakka.
EITT af því, sem mesta athygli vakti
á Reykjavíkursýningunni, voru tízku-
sýningarnar. FÁLKINN var viðstadd-
ur eina þeirra, sem fram fór laugar-
daginn 26. ágúst, og tók myndir af
ellefu sýningarstúlkum, sem sýndu
klæðnaði frá Eygló og Feldinum að
Laugavegi 116. Kvöldið áður höfðu
sömu fyrirtæki haft aðra sýnihgu á
öðrum fötum og voru sýningarstúlk-
urnar þá tólf. Ein þeirra, Arndís
Björnsdóttir, veiktist og gat ekki sýnt
síðara kvöldið.
Klæðnaðurinn, sem sýndur var,
var mjög fjölbreyttur og alls voru
bæði kvöldin sýndir 60 klæðnaðir.
Þarna voru sýndar vetrarkápur, kjól-
ar, pelsar, dragtjr, poplinkápur,
greiðslusloppar, sportúlpur með til-
heyrandi jerseypeysum og buxna-
sam.stæðum og ótalmargt fleira. Og
allur var klæðnaðuir;nn að sjálfsögðu
samkvæmt nýjustu tízku.
Það var einróma álit sýningargesta,
að tízkusýningarnar hefðu farið mjög
vel fram og verið öllum aðilum til
sóma. Sýningarstúlkurnar voru allar
úr hinum nýstofnaða tízkuskóla og
hafði Sigríður Gunnarsdóttir æft þær.
Svava Þorbjarnardóttir sá um klæðn-
aðinn fyrir hönd framleiðenda, Ey-
glóar og Feldsins. Ævar Kvaran og
Baldur Georgs sáu um kynningu og
Carl BiIIich annaðist tónlistarflutning.
Geysimikil aðsókn var að tízkusýn-
ingunum og komust færri að en vildu.
(Ljósmyndari: Oddur Ólafsson).
Elsa Stefánsdóttir
og l>yri Magnús-
dóttir i poplinkáp-
um, önnur í svartri
og hin í hvítri.
tiápurnar eru með
% ermiun og
bryddaðar með
prjónaefni.
<1
c>
Elsa Stefánsdóttir
í gráum, stuttum
Chansbella-pels.
Þyri Magnúsdótt-
ir i tvískiptum
kjól prýddum
skinnkanti í háls-
mál og á mjöðm-
0
Guðrún Bjarna-
dóttir í buxum og
blússu úr terrelin-
efni, ásamt vatter-
uðiun nælonjakka
prýddum loðkanti.
0
Guðbjörg Björns-
dóttir í tvískipt-
um ullarprjóna-
kjól, peysan stór-
rúðótt.
c>
Edda Ólafsdóttir í
svörtum, sléttimi
jerseykjól með
sjal úr Bisamloð-
skinni.
um.