Fálkinn - 06.09.1961, Blaðsíða 23
... -v-,
•.ív-i .••■';. ^'5,.:
•>.^s|
•'■••'M.w'W'
, *• *
"i •■ '.'AC'VW'vy"' 'fJSfWa
' v* «,"
", • •• " •••• ' 'v '<T*
' V v '\ •'«■•*'
u ■ '
1É&'
v":
.
> •
■
i
: ÍV
■■B
■
mi
Sítrónuterta.
^y4hœ tiói''é’ttir o.fl
SÍTRÓNUTERTA.
Deigið:
250 g hveiti
125 g smjörlíki
2 msk. kalt vatn.
Kremið:
250 g sykur
V2 1 vatn
1V2 msk smjör
5 msk. maizenamjöl
4 eggjarauður
2 msk. mjólk
2 sítrónur.
Marengs:
4 eggjahvítur
100 g sykur.
Hveiti sáldrað á borð, smjör.
líkið hakkað saman við með
hníf, vatninu hrært saman við.
Hnoðað sem minnst, bezt að
gera það með fingurgómunum.
Deigið flatt út í kringlótta
köku, þekið með henni stórt,
kringlótt tertumót með laus-
um botni eða eldfast mót. Deig-
ið pikkað vel í botninn. Sett
inn í ísskáp eða á annan kald-
an stað í V2 klst. Bakað við
góðan hita nál. 225°C, þar til
ljósbrúnt. Fyllt með sítrónu-
kremi.
Sykur, 4 dl af vatni og
smjör soðið saman. Maizena-
mjölið hrært út með 1 dl af
vatni, þeytt út í pottinn. Soð-
ið nál. 5 mínútur, þar til það
er þykkt og glært. Eggjarauð-
urnar hrærðar út með mjólk-
inni, hrært saman við. Soðið
3—5 mínútur, hært stöðugt í
á meðan. Tekið af og rifnum
sítrónuberki og safa hrært
saman við. Þegar kremið er
orðið kalt, er það sett í hina
bökuðu skel og þakið með mar-
engs.
Eggjahvíturnar stífþeyttar,
helmingurinn af sykrinum
hrært út í, þeytt áfram, þar
til orðið seigt. Afganginum af
sykrinum blandað varlega
saman við.
Tertan sett inn í frekar
kaldan ofn, nál. 160°, bökuð
þar til marengsinn er fallega
gylltur, sem tekur um V2 klst.
Tekið úr mótinu, þegar orðið
kalt. Borðað kalt annaðhvort
sem ábætisréttur eða með
kaffi.
Uppskrift þessi er nokkuð
stór.
RABARARAFRAUÐ.
V2 kg rabarbari
V2 dl vatn
2 dl sykur
5 blöð matarlím
2V2 dl þeyttur rjómi
Makkarónur.
Rabarbarinn soðinn við hæg-
an hita með vatni og sykri,
síaður í gegnum „gaze“ undnu
úr heitu vatni. Matarlímið lagt
í bleyti í kalt vatn í 5 mínút-
ur, kreist upp úr vatninu, lát-
ið út í 3 dl af heitri rabarbara-
saft. Geymt á köldum stað.
Þegar það byrjar að þykkna,
er hlaupinu hrært smátt og
smátt saman við þeytta rjóm-
ann. Hlaupið samlagast ef til
vill ekki rjómanum strax,
hrærið því varlega í honum,
þar til það er orðið samfellt.
Myljið 8——10 makkarónur
og blandið út í frauðið, áður
en það er sett í ábætisglös.
Skreytt með muldum makka-
rónum og rifnu súkkulaði.
GRÆNT TOMATA
CHUTNEY.
2 kg grænir tómatar
3 tsk. salt
125 g sveskjur
3 V2 dl laukur, brytjaður
smátt
3V2 dl epli, brytjuð smátt
2 dl sykur
1 msk. sinnepskorn
V2 tsk. pipar
V2 tsk. negull
41/2 dl edik.
Tómatarnir þvegnir, skerið
það grófa burt. Saxaðir smátt
eða hakkaðir í vél. Sett í skál,
salt stráð á milli laga. Látið
standa yfir nótt. Sveskjurnar
lagðar í bleyti í lítið vatn yfir
nótt. Allt sett í þykkbotnaðan
pott. Notið vatnið, sem sveskj.
urnar hafa legið í, saxið þær
smátt, eftir að steinarnir hafa
verið teknir úr.
Soðið við hægan eld, hrært
í við og við, þar til maukið
er orðið íþykkt (nál. 2 klst.).
Sett á heit og hrein glös, sem
strax er bundið yfir.
Borðað með kjöt- og fisk-
réttum.
TÓMATKRAFTUR.
3y2 kg tómatar
1 stór laukur
1 stórt epli
V2 tsk. paprika
15 piparkorn, hvít
Tæpt 1 dl salt
Rabarbarafrauð
2 dl sykur
3 g benzosúrt natron
1 tsk. negull
1 tsk. allrahanda.
Tómatar skornir í bita, einn-
ig laukur og epli, soðið ásamt
piparkornunum í þykkbotnuð-
um potti í Va klst. Hlemmur
hafður á pottinum, hrært i við
og við. Marið gegnum sigti,
sett í pottinn á ný. Allt krydd-
ið ásamt salti og sykri, sett
Út í. Suðan látin koma upp við
skarpan hita. Benzosúra nat-
rónið leyst upp í dálitlu af
maukinu, hrært saman við.
Sett strax í heitar, litlar flösk-
ur. Lokað strax.
GRÆNT TÓMATMAUK
( sœt-súrt).
1 kg grænir tómatar
2 dl borðedik
750 g sykur
Vanillustöng.
Sjóðið tómatana í dálitlu
vatni og ediki (1 msk. edik 1
2 1 vatn), þar til hýðið spring-
ur. Látið standa til næsta dags
í suðuvatninu, sem síðan er
hent.
Hýðið tekið af tómötunum,
skerið þá í jafna báta. Sjóðið
saman edik, sykur og vanillu-
stöng. Tómatbátarnir eru soðn-
ir þar í, þar til þeir eru meyr-
ir, teknir upp úr. Lögurinn
soðinn áfram, þar til hann fer
að þykkna nál. V\ klst.
Tómatarnir settir út í á ný,
suðan látin koma upp.
Sett á heitar krukkur, bund-
ið yfir.