Fálkinn - 06.09.1961, Blaðsíða 26
Nýlega barst okkur bréf frá Svíþjóð,
þar sem við erum beðnir um að út-
vega pennavini.
TO THE MOST POPULAR WEEKLY
FOR YOUNG PEOPLE.
L am a Swedish girl, 17 years old,
and i want to have a boy-pen-friend
about 19—21 years old. My hobbies
are; Correspondence, sports, stamps
and many other things. I write English
and German and of course Swedish.
My name and address:
Frk. Gerd Sarin,
Bordarne, Arvslindan,
Dalarne, SWEDEN.
(Ég er sænsk stúlka, 17 ára gömul,
og mig langar til að eignast pennavin,
19—21 árs pilt. Áhugamál mín eru:
Bréfaviðskipti, íþróttir, frímerkjasöfn-
un og margt fleira. Ég rita ensku og
þýzku og að sjálfsögðu sænsku).
★
L am á 13 year old girl in Sweden
who wants to have a pen-friend in age:
?—?. I am interested in animals and
the nature, books, music, swimming
and to write letters. In school I like
all the languages very much: German,
Danish, Norwegian and Swedish, and
I hate sewing. I can write mentioned
languages. I am waiting answers too.
Miss Gunnel Selinus,
Funbo PR.G.
Bdrb y, SWEDEN.
(Ég er 13 ára gömul sænsk stúlka,
og mig langar til að eignast pennavin
? ára gamlan. Ég hef áhuga á dýrum
og náttúrunni, bókum, tónlist, sundi
og bréfaskriftum. Mér þykir mjög gam.
an að öllum tungumálunum, sem ég
læri í skólanum: Ensku, þýzku, dönsku,
norsku og sænsku, en ég hata handa-
vinnu. Ég get ritað ofannefnd tungu-
mál. Ég bíð einnig eftir svari.)
★
Við munum ekki, er fram líða stund-
ir, birta fleiri bréf þar sem óskað er
eftir pennavinum, en við birtum þessi
þar eð við vorum sérstaklega beðnir
fyrir þau. Hins vegar getur vel komið
til mála að hafa sérstakan dálk fyrir
pennavini.
26 FÁLKINN
Hverf er ferö -
Fiamh. af bls. 13.
rétt á eftir. Þegar hestur lögmanns var
kominn út í ána, hrasaði hann, og féll
Oddur af baki og í ána, og rak þegar
á eyri rétt fyrir neðan. Vildi hann upp
á eyrina, en í því hann stóð upp, slóst
kápa hans yfir höfuð honum, og kastað-
ist hann við það aftur út í ána og rak
niður eftir henni alllengi. Fylgdarmenn
náðu honum brátt og var lögmaður lif-
andi. Tjölduðu þeir yfir hann og veittu
hjúkrun eftir beztu getu. Ekki hafði
hann verið lengur í ánni en svo, að
þurrar voru bækur tvær, er hann hafði
í barminum. Önnur bókin var bæna-
bók, en hin reikningssbók yfir gjöld
Reynistaðaklausturs og Skagafjarðar-
sýslu. Um miðnætti raknaði Oddur lög-
maður við og kvaðst vera allur lerk-
aður. Menn hans stumruðu yfir honum
og reyndu að veita honum allt, sem í
þeirra valdi var. Litlu síðar yrti hann
aftur á þá, og kvaðst mundu andast.
Hann bað þá færa öllum vinum sínum
kveðju sína og lagði svo fyrir, að hann
yrði grafinn í Skálholti, fram undan
prédikunarstólnum. Síðan andaðist
Oddur.
Oddur lögmaður var færður í Skál-
holt, en ekki fékk hann legstað þar,
sem hann hafði kosið, því að þar reynd-
ist grýtt og illgræft. Var honum valinn
legstaður í krossstúku, svo nálægt Giss-
uri biskupi Einarsssyni sem unnt var,
en gröf var á milli þeirra.
Einn hinn merkari biskup Skálholts-
stóls síðari alda bar nafn Odds Gott-
skálkssonar. Það er Oddur biskup Ein-
arsson. Oddur biskup hóf Skálholtsstað
til vegs og gengis á nýjan leik og sótti
fram til aukins metnaðar gegn dönsku
valdi.
Heimildir: Annálar Bókm.fél.,
Biskupaannálar, Menn og mennt-
ir, Biskupasögur o. fl.
Sölheimar -
Frh. af bls. 8.
Á einum vegg eru teikningar úr
Kardimommubænum eftir börn af
barnaheimilinu, sem fóru til Reykja-
vikur til að sjá leikritið. Aðrir veggir
eru skreyttir með uppdrætti af íslandi,
teikningum af mönnum sem eru að
grafa skurð í rigningu og stúlku, sem
er að reyta illgresi. Ein andlitsteikning
er af ungum manni með vindil í munni,
og fyrir neðan andlitið er teiknuð sund-
skýla.
— Þessi er alltaf að reykja, segir
Verena.
— Og alltaf að synda?
— Nei, einmitt ekki hann fæst aldr-
ei í sund. Annars syndum við hin eftir
vinnu á kvöldin í útilaug, sem er
hérna. Við höfum nóg af heitu vatni,
en minna af köldu. Þegar við látum
hreint vatn í laugina, verður það að
bíða í lengri tíma á meðan það kólnar.
★
Við þökkum fyrir teið, og þegar við
göngum út fyrir til að skoða staðinn,
berst til okkar hressandi kórsöngur inn-
an úr skólabyggingunni. — Það er
söngkennsla hjá þeim núna, útskýrir
Verena. Húsið, sem sjálfboðaliðarnir
eru að byggja, er um 80 fermetrar að
flatarmáli, og þegar er búið að grafa
fyrir og steypa sökklana.
Verena gengur með okkur í litla hús-
ið, þar sem nokkrar af stúlkunum búa.
Það er lítil forstofa og aðeins stærri
innri stofa, sem gegnir hlutverki svefn-
og setustofu. Og ekki er kuldanum fyr-
ir að fara, sjóðheitt vatnið streymir
með sífelldu suði í gegnum miðstöðvar-
ofninn eins og fossandi fjallalækur í
hamragili.
í sundlauginni bíður vatnið, kyrrt og
freistandi, í gróðurhúsunum eru tómat-
og agúrkuplöntur í örum vexti, en kýrn-
ar eru rétt ókomnar heim í fjósið.
Á tröppum íbúðarhússins tekur Sess-
elja Sigmundsdóttir á móti okkur, bros-
andi og vingjarnleg og býður okkur til
stofu.
— Er ekki langt síðan þér hófuð
starfrækslu barna- og uppeldisheimil-
isins hérna að Sólheimum?
— Ég kom hingað fyrir rúmum 30
árum, og þá var hér allt eintóm mýri.
Ibúðarhús var eitt, gamalt og óeftir-
sóknarvert, sökum leka. Það hefur
margt breytzt síðan. Ég byrjaði með
barna- og uppeldisheimilið árið 1930,
og nú eru hér 36 vistmenn
— Þið megið til með að sjá skóla-
húsið hjá okkur og handavinnuna, sem
börnin hafa unnið. Núna er söngkenn-
ari hjá okkur að kenna þeim að syngja.
— Húsið sem sjálfboðaliðarnir eru
að byggja, á það að vera fyrir barna-
heimilið?
— Já, fyrir þau elztu. Það verður
mikill munur að geta haft þau sér.
— Hvernig komust þér í samband
við sjálfboðaliðana?
— Já, það var nú meiri heppnin að
kynnast þeim. Það byrjaði þannig að
dóttir mín vann á uppeldisheimili í
Englandi, og þar var henni sagt frá
þessum félagsskap. En við trúðum þessu
ekki í fyrstunni Svo kom að því að
þessi flokkur kom hingað. Ég get ekki
lýst því, hvað þau eru dásamleg öll
saman. Þarna ganga þau í hvað sem er
og eru svo elskuleg. Þau spyrja bara:
Hvað getum við gert? Úti eða inni? í
heyinu, í görðunum og að ég tali nú
ekki um bygginguna. Þetta væri alls
ekki hægt nema með svona góðri hjálp.
Þau eru öll eins og eitt.
— Er heimilið í einkaeign?
— Ég gerði það fljótlega að sjálfs-
eignarstofnun. Það hefur fengið ýmsa
hjálp frá félögum og félagasamtökum,
Frh. á bls. 28