Fálkinn - 06.09.1961, Síða 22
Að taka upp lykkjur.
Svona förum við að, þegar taka þarf
upp lykkjur, t. d. í kringum hálsmál. Við
tökum ekki í yztu lykkjurnar, þá verða
samskeytin ójöfn og götótt, við stingum
prjóninum niður 2—3 1. frá brún og drög-
um lykkju af bandinu í gegn.
Við tökum upp lykkjurnar frá réttimni,
allar misfellur hverfa þá á röngunni. Við
getum einnig gert hálsmálið fallegra í
laginu, þegar svona er farið að.
-JÉ taha upp lyhljur
auha út í mi&fu
prjónleáL
* aula út
fylhjur
mar^ar
Að auka út í miðju prjónlesi.
Vilji maðiu- láta útaukninguna sjást, er
farið þannig að: lyftið upp þræðinum milli
lykkjanna frá fyrri umferð með hægri
prjón og setjið það upp á vinstri prjóninn.
Að þessu loknu er bandið prjónað slétt
eins og venjulega. Sé slík útaukning gerð
í annarri hverri umferð myndast rönd
eins og myndin sýnir (Sjá efri myndina).
Vilji maður auka út um 11, þannig að
það sjáist sem minnst, er farið þannig að:
lyftið með hægri prjóni upp lykkju undir
fremstu lykkju vinstri prjónsins (úr um-
ferðinni á undan) og setjið hana upp á
vinstri prjóninn, án þess að snúa upp á
hana. Prjónið lykkjuna slétta eins og
venjulega, með þvi að taka framan í iykkj-
una. (Sjá neðri myndina).
FALKINN
Að auka út margar lykkjur.
Þegar auka skal út margar lykkjur í
einu í hliðunum verðum við að prjóna
lykkjurnar. Þettu gerum við í byrjun
prjóns, og við stingum hægri prjón gegn-
um fyrstu lykkjuna eins og myndin sýnir.
Grípið í garnið með prjóninum og dragið
nýja lykkju í gegn, bregðið henni upp á
vinstri prjóninn. Endurtekið, þar til hinn
rétti lykkjufjöldi er fenginn. Á sama hátt
eru búnar til lykkjur í hnappagötum.