Fálkinn - 06.09.1961, Síða 33
Lausn á 32. verðlaunakross-
gátu FÁLKANS
\M fl n Ct u R "e
Lfí 5 fí 5 £ F U R ■ VFÍRT K K P
■ GflTILlLfíNVT-'fíRfí K
SÆi. / Ð P £ • N fíCt L fí R'fl R N
fíT fl R ■ $ K E G Gr J fl £> u R • 'fl
T / R F / N CT (J R Gfí R & M / Cr R
t 5 KflLVUR1 UFJflNVfí Þ
R * / LL/RO-R/StVfífí/yi 0
BBRfl/y/LRPfí ■ RfíC-rU R fl r
B'ON • ÖL K fí N N RF Urf / L r
• K fl Cr C-t fí fl U S C fí N R O K L H
■ fí L fl U £> U R • L fl B 3 fí R ■ R
* R fl UX. fl R R'fí K • 0 ■ N Ú M /V
'fl M U /< £ L fl • SKflTTflNfl N
LEkUG-ERF/ £ F N / C-t u t> S
F R U RT / & U L £ CtL ö CtÚ- U £
fl K li fí ■ N 'fí L fl R fí U Cr fl 6- R S
R / SUMCETLutfMfíRGAR m
/VI J 'OLÖTUATALflUCrUK fl
ÖKLANAFRKRAFTAR' R
Það var alveg eins með þessa 32.
krossgátu Fálkans og allar hinar, að
Jiátttaka var mjög almenn og fjölda-
margar réttar lausnir bárust hingað
á afgreiðsluna. Dregið var úr réttum
lausnum og 1*00 krónurnar hlaut
Ingveldur Einarsdóttir Melhaga 9,
Reykjavík. Rélt ráðning birtist hér
að ofan.
STJÖRNUSPÁIN
HrútsmerJcið.
Satt að segja veitir yður ekki af svolítilli hvíld í þessari
viku, því að þér hafið unnið of mikið og hætt er við, að þetta
sé of mikil áreynsla fyrir yður. í vikulokin munuð þér eiga
von á skemmtilegu atviki, sem mun að öllum líkindum bæta
skap yðar að miklum mun.
Nautsmerkið.
Verið mjög varkár í umgengni við hit.t kynið, því jafnvel
hið minnsta rifrildi getur komið því úr jafnvægi og orsakað
misskilning á báða bóga. Hvað fjárhaginn snertir, lítur út
fyrir að hann batni nokkuð í þessari viku, en þér verðið jafn-
framt að gæta hófs í þeim efnum.
Tvíburamerkið.
Verk nokkurt, sem þér hafið nýlega unnið, mun verða miklu
betur launað heldur en þér áttuð nokkurn tíma von á. Hins
vegar skuluð þér ekki fyllast. ofmetnaði yfir þessum sigri yð-
ar, því að þá getur hann ef til vill snúizt yfir í tap. Leiðið
hjá yður allar deilur í þessari viku.
Krabbamerkið.
Ekki alls fyrir löngu fóruð þér að kenna nokkurrar þreytu
bæði andlega og líkamlega, en stjörnurnar segja að þér eigið
að taka yður hvíld í að minnsta kosti í nokkra daga. Á föstu-
dag kemur óvænt og skemmtilegt at.vik fyrir. Vanrækið ekki
vini yðar, þótt þeir ef til vill séu langt í burtu.
Ljónsmerkið.
Þér eruð alltof eigingjörn og þess vegna munu þeir fáu
vinir, sem þér eigið hrökklast frá yður. Þér eruð enn fremur
alltof öfgafull og sjáið málin aldrei nema frá einni hlið.
Þér ættuð enn fremur að sýna svolitla ræktarsemi gagnvart
ættingjum yðar og hætta að viðra yður upp við þá, sem eru
yður meiri.
Jómfrúarmerkið.
Þessi vika mun vera uppfull af gleði og alls konar skemmt-
unum og þér munuð vera í sjöunda himni alla vikuna. Fjár-
hagurinn ætti að verða þannig, að þér getið vel við unað.
Áform það, sem þér hafið lengi haft í huga að framkvæma,
munuð þér framkvæma vel og dyggilega.
Vogarskálarmerkið.
Yðar bíða dagar fullir af hlýleik og alúð af allra hálfu,
enda munuð þér endurgjalda það og þér munuð kynnast góðu
fólki, sem verður miklir vinir yðar. Enda þótt. allt leiki svona
í lyndi, þurfið þér að hafa stjórn á skapi yðar og stökkva
ekki upp á nef yðar af hverju sem er.
Sporðdrekamerkið.
Það kann að vera að einhverjar breytingar séu í nánd er
fram líða stundir, ef þér komið reglu á fjárhaginn. í þessari
viku ríður á því að þér sýnið diplómatshæfileika yðar til hins
ýtrasta í sambandi við heimsókn gamals ættingja.
Bogmannsmerkið.
Það er sannmæli, að oft getur lít.ill neisti orðið að stóru
báli, þess vegna ættuð þér að gæta varúðar 1 umgengni við
aðra, einkum fjölskyldu yðar og vini. Látið ekki aðra samt
skipta sér af því, sem þér eruð að gera. Þér skuluð enn frem-
ur gæta yðar á öfund og illmælgi.
Steingeitarmerkið.
Persóna nokkur, sem þér metið mikils, er í miklum vand-
ræðum stödd og þarfnast hjálpar til þess að taka þýðingar-
mikla ákvörðun. Á laugardag fáið þér tækifæri til að sýna,
hvað í yður býr, látið ekki þetta tækifæri renna yður úr
greipum. Gætið yðar á dökkhærðum manni.
Vatnsberamerkið.
Svo mun sagt verða um yður, að þér hafið mikla hæfileika
til þess að vinna og umgangast annað fólk, einkum munuð þér
falla eldra fólkinu í geð. Annars einkennist. vikan af svona
smávandamálum, sem munu þó leysast af sjálfu sér. Yfirleitt
er framtíðin björt og fögur fyrir yður.
Fiskmerkið.
Stjörnurnar segja, að því fólki, sem hefur í hyggju að gifta
sig, muni hamingjan verða þeirra förunautur á lífsleiðinni,
ef einhverrar fyrirhyggju er gæt.t og skynsemin látin ráða.
Þér skuluö ekki leggja fæð á mann nokkurn, sem yður er
skyldur, því að hann hefur áreiðanlega ekki til þess unnið.
21. MARZ —
20. APRlL
21. APRlL —
21. MAl
22. MAl —
21. JÚNl
22. IÚN1 —
22. IÚL1
23. IÚL1 —
23. AGÚST
24. AGÚST -
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
\
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES. —
20. IAN.
21. IAN. —
19. FEBR.
20. FEBR
20. MAR2