Fálkinn - 06.09.1961, Page 34
FÁLKINN
í NÆSTU VIKU:
★
★
•WityJXv!
Iða. Ný smásaga eftir ungan og áður óþekktan liöfund, Hjört
Pálsson stúdent frá Akureyri. Sagan er beint úr lífi unga
fólksins og gerist um siðustu verzlunarmannahelgi. Kristinn
Jóhannsson listmálari hefur myndskreytt söguna.
Sólarlandið. Þorsteinn frá Hamri skrifar fróðlega grein um
liugmyndir manna um Island til forna.
Heim fyrir myrkur, ný kvikmyndasaga gerð eftir "Warnerbros-
myndinni „Home before Dark“. Aðalhlutverkið leikur Jean
Simmons og liefur hún hlotið mikið lof fyrir fráhæran leik.
Myndin verður sýnd í Austurbæjarbíói strax og sögunni lýlc-
ur í Fálkanum.
Þegar ég fékk þann stóra. FÁLKINN spjallar við laxveiði-
menn i Elliðaánum og meðal annars manninn, sem veitt hefur
stærsta laxinn, sem fengizt hefur í ánum í sumar.
Jennie Jerome. Grein um hið ævintýralega lif móður sir
Winston Churchill. Um móður sína hefur Ghurchill sagt:
I mínuin augum er hún alltaf ævintýravera. Hún skein mér
skærar en fegursta kvöldstjarna‘.‘
Þríhyrningurinn, ný og spennandi framhaldssaga eftir Agatha
Christie. Það er óþarfi að kynna Agatha Christie. Sögur
hennar eru fyrir löngu viðurkenndar og nafn hennar trygg-
ing fyrir ósvilcinni dægradvöl. Fylgizt með frá byrjun.
Maður í myrkri. Frásögn og teikningar eftir Fred Correburg.
Verðlaunakrossgáta, Dagur Anns, Kvennaþáttur eftir Krist-
jönu, Pósthólfið, Astró, Hvað gerist í næstu viku, Glens o. fl.
Og auk þess ýmsar nýjungar.
Hilmar Foss
Löggiltur skjalþýðandi
og dómtúlkur
Hafnarstræti 11 . Sími 14824 . Rvík
Sveínbjörn Dagfinnsson, hrl.
Einar Viðar, hdl.
Máljhitningsskri-fstofa
Hafnarstræti 11 . Sími 19406
£affltÍHÍH0U/‘
GARÐEIGANDI nokkur var mjög lítið
hrifinn af sunnudagsumferðinni framhjá
garði hans, því að bæði var hún börnum
hans og hænsnum hættuleg. í fyrstu
vissi hann ekki hvað hann átti að gera,
en svo datt honum gott ráð í hug til
þess að bifreiðarnar hægðu á sér. Hann
setti upp stærðar skildi við vegarbrún-
ina, þar sem á stóð: „Nektarnýlenda,
100 m.“
ÞEGAR húsmóðirin uppgötvaði, að hún
var þunguð, sagði hún þetta dóttur sinni
15 ára, sem var einbirni. Stúlkan varð
alveg mállaus, þegar hún heyrði um
þetta, en sagði svo: ,,En mamma þú,
sein vilt ekki einu sinni leyfa mér að
nota varalit.“
PRÓFESSORINN í sálfræði hóf fyrirlest.
urinn og sagði; „Frumstæður maður
mun aldrei segja til nafns síns af ótta
við að menn vinni seið á honum, er
34
FALKINN
þeir vita það. Hann mun að vísu ekki
neita að svara spurningum, heldur leiða
þær hjá sér. Hér hætti prófessorinn í
miðjum klíðum og leit á stúdent, sem
grúfði sig ofan í dagblað. „Hvað heitir
nemandi sá, sem situr á aftasta bekk
og les í blaði?“ spurði prófessorinn.
Stúdentinn fór allur hjá sér og sagði:
„Hver, ég?“
„Dömur mínar og herrar,“ hélt pró-
fessorinn áfram, „hvað sagði ég?“
★
SIR Walter Raleigh lagði hina nýju
skikkju sína af hofmannlegri kurteisi
yfir forarpollinn, svo að hennar hátign
kæmist þurrum fótum yfir. En það stein-
leið yfir einn af áhorfendum. „Þetta er
klæðskeri sir Walters,“ hvíslaði hinn af-
brýðisami jarl af Essex í eyra hennar
hátignar. „Sir Walter hefur ekki enn
borgað skikkjuna.“
★
EINN dag hvarf kjölturakki frú Guddu.
Var hann kallaður Lubbi. Háum verð-
launum var heitið að fundarlaunum fyr-
ir hundinn.
Næsta dag kemur flækingur nokkur
og knýr dyra hjá frú Guddu. Hélt hann
á drullugum hundi í fanginu.
Frú Gudda hrópaði upp yfir sig:
„Aumingja Lubbi minn, hvar funduð
þér hann annars?“
„O, svaraði flækingurinn^ „það hafði
maður bundið hann við langa stöng og
var að þvo gluggana hjá sér með hon-
um.“
★
Dagur einkaritarans.
Fyrir hádegi:
„Hann er ekki kominn ennþá.“
„Ég bíð eftir honum, hann hlýtur að
vera væntanlegur á hverri stundu.“
„Hann var að hringja og segja að
honum seinkaði svolítið.“
„Hann var hérna rétt áðan, en hefur
farið strax aftur.“
„Hann er farinn í mat.“
Eftir hádegi:
„Hann hlýtur að vera væntanlegur
á hverri stundu.“
„Hann er ekki enn kominn, get ég
tekið nokkur skilaboð?“
„Hann hlýtur að vera hér, því að
hatturinn hans er hér.“
„Já, hann var hér, en hann fór strax
aftur.“
„Ég bara veit ekki^ hvort hann kem-
ur nokkuð aftur.“
„Nei, hann kemur ekki meir í dag.“
MrtitjáH (jullaufrMcH
hæstaréttarlögmaður.
Hallveigarstíg 10. — Sími 13400.
Reykjavík.