Fálkinn


Fálkinn - 14.02.1962, Síða 7

Fálkinn - 14.02.1962, Síða 7
Gagnrýni eða uppörvun. J. U. skrifar: — Núna og um nokkra hríð hef ég átt í hinum mestu vandræðum með að hemja dóttur mína, sem er nýlega 13 ára. Annars er ég mjög stolt af henni. Hún pass- ar vel að stunda skólann, en ég ætlaðist til að hún hjálpaði mér svolítið við húsverkin, og mundi hún þá læra þau líka. En þegar ég bið hana um eitt- hvað, gerir hún það annað- hvort skakkt, eða gleymir meiri hlutanum af því, sem hún á að gera, t. d. þegar hún fer í búðir. Auðvitað skamma ég hana fyrir þessi afglöp, en þá segir hún bara: „Ég geri aldrei neitt almennilega, er það ekki? Og þú ert aldrei ánægð með það, sem ég geri.“ -— Er ég of hörð og geri ég of miklar kröfur til hennar? Svar: Það verður að segja hlutina eins og þeir eru. Eftir þessu að dœma, þá yirffist þér alltaf vera að finna að því, sem stúlkan gerir. En við teljum, að bezta ráffiff til þess aff fá hana til þess að gera eitthva'ð aff gagni, sé að hrósa henni svolítið og uppörva. Þaff er enginn vafi á því, að ungling- ar hafa gott af svolitlu hrósi. En þér verðið að gœta þess aff beita þeirri affferð í hófi. Kvennasíður. .... Er ekki hægt að koma kvennasíðum fyrir á þann hátt, að hægt sé að taka þær úr blaðinu án þess að skemma það? Þ. k. H. Brú, Jökuldal, N.-Múl. Svar: Nei, þaff er ekki hœgt aö koma síffunum þannig fyrir, en hins vegar er lítill vandi að geyma bara blaffið og safna því. Útvarp. Kæri Fálki. — Loksins komuð þið með efnið, sem maður hefur beðið eftir í mörg ár. Það bezta, sem maður les í þessum vikublöðum eru myndasögurnar. En það var nú ekki aðalatriðið að hrósa ykkur, því að þess þarf varla. Ég skrifaði þetta aðallega til að segja álit mitt á þessu fyrir- tæki, sem nefnist Ríkisútvarp íslands. Að vísu eru nokkrir ljósir punktar i þessu hjá þeim, en hitt er í miklum meirihluta, sem ekki er hlust- andi á. Allir beztu útvarps- mennirnir hverfa af sjónar- sviðinu eftir stutta veru í rad- íóinu. Þar má nefna Ævar Kvaran, en hann var um lengri tíma sá maður, sem maður hafði mest gaman af að hlusta á. Þá var það Svavar Gests, en hann var með einn vinsælasta þátt, sem útvarpið hefur haft á boðstólum. Og nú er sagt að Jónas Jónasson sé að hætta. En hvað kemur svo í staðinn? Jón Leifs reynir að skýra út í orðum og tónum, hvort Skarphéðinn hafi dáið úr leiðindum eða af bruna- sárum. Ja, — ég segi nú ekki annað en það, að ég skil ekki hvers vegna menn vilja sjón- varp. Kannski verður svolítil tilbreyting í því. En eitt er víst, að ef sömu menn, sem hafa stjórn útvarpsins í hönd- um, fá líka sjónvarpið (ef það kemur) í hendur, þá verður að fjölga bíóunum um helm- ing. Sinfóníu-hatari. P. S. Hvernig er réttritunin? Svar: Ef til vill er um eins konar millibilsástand að rœffa í út- varpinu. Vinsælir útvarps- menn verffa stöðugt að finna upp á einhverju nýju. Stund- um er líka hentugt aff hvíla sig um stund frá því að skemmta fólki og koma svo aftur fullur starfsorku. Hver veit nema útvarpið eigi mikið eftir aff lagast, þegar fram líða stundir. Um sjónvarp finnst okkur hér ekki ástœða til þess að ræffa um. Hvað réttritun yffar viffvíkur er hún nokkuff góff, en þér œttuð að varast y. Þakkir. Kæri Fálki. —- Ég þakka blaðinu fyrir ágætt lestrarefni, sérstaklega þó Degi Anns fyr- ir sína ágætu þætti. Einnig hafði ég mjög gaman af myndagetrauninni, en gat því miður ekki tekið þátt í henni. H. Svar: Hvernig vœri að taka þátt í Bingóinu í staðinn? FAþKINN

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.