Fálkinn - 14.02.1962, Page 14
OF LATUR TIL
AÐ FARA í
VEGAVINNU EN
VARÐ ÖTULL
KAUPSYSLU
MAÐUR
14 FÁLKINN
Undanfarið hefir í þessum þáttum
verið rætt við menn sem byrjað hafa
feril sinn með tvær hendur tómar og
hafist til vegs og bjargálna. Byrjað
smátt en eflt og ávaxtað sitt pund með
ráðdeild og dugnaði.
Nú er það svo, eftir því sem árin
líða og frumkvöðlarnir eldast og slitna,
taka yngri menn við, oft synir stofn-
endanna, sem brutu ísinn. Stundum,
og það er algengast erlendis, taka
synir við fyrirtækinu og veita því for-
stöðu. eða þá sem er sínu sjaldgæfara,
að þeir selji það sem þeir fengu í arf
og hefji atvinnurekstur á öðru sviði.
Hér á landi er iðnaður og atvinnu-
rekstur í stórum stíl svo ungur að fátt
yngri manna hefur enn sem komið er
tekið við stórum fyrirtækjum af feðr-
um sínum.
Hinsvegar eru nokkrir, sem tæmst
hefur arfur, sumum allríflegur og hef-
ir hann þá getað orðið góð undirstaða
framgjörnum mönnum.
En enda þótt menn eignist fé á þann
auðvelda hátt að fá það í arf, skeður
það alla jafna ekki fyrr en menn eru
komnir til manndómsára og fyrir þaón
tíma hefir krókurinn öftast beygst tíl
þess er verða vill.
Þannig er það t. d. með Ragnar
Þórðarson, heildsala, tízkukóng og
veitingafrömuð. Hann var búinn að
stofna Gildaskálann áður, og það löngu
áður en faðir hans féll frá og arfleiddi
son sinn að álitlegri fúlgu lausafjár auk
margra verðmætra húseigna á beztu
stöðum í bænum.
Þórður úri, faðir Ragnars var þekkt-
ur maður í Reykjavík á sinni tíð. Ríkur
maður sem greiddi hátt útsvar og