Fálkinn - 14.02.1962, Side 27
komið í veg fyrir það, þar sem hún gat
ekki til þess hugsað, að hinn útlifaði
og óeðlilegi konungur sængaði hjá
drottningunni, sem var svo ung og sak-
laus. Yfirhirðdaman gætti drottningar-
innar eins og dreki
Þar sem krýningin og smurningur-
inn skyldi nú brátt fara fram, fannst
drottningunni ekki sæma að konungur-
inn yrði einnig í þetta skipti rekinn
til baka, eins og hann væri ágengur
þjónn svo að hann fékk vilja sínum
framgengt.
Skömmu seinna kom í ljós, að þessi
næturheimsókn konungsins hafði borið
ávöxt, drottningin átti von á barni
Krýningin fór fram 1. maí. Allir gátu
séð, að konungurinn var utan við sig
af taugaóstyrk. Það gagnaði ekkert að
drottningin talaði ástúðlega við hann
og reyndi að róa hann, með því að
styðja höndinni vingjarnlega á hand-
legg hans. Undir hinni hátíðlegu at-
höfn í kirkjunni sat konungurinn og
talaði við sjálfan sig, bölvaði og notaði
hið ruddalegasta orðbragð, sem hann
hafði lært hjá vændiskonum. Állan
tímann lék hann sér að veldissprot-
anum með þeim afleiðingum að topp-
urinn datt af honum og rúllaði eftir
purpuraábreiðunni í sömu andrá er bisk-
upinn ávarpaði konungshjónin í alvöru-
þrunginni ræðu. Caroline Matthilde
bar sig sem drottningu sæmdi og var
greinilega djúpt snortin af hátíðleik
þessarar alvörustundar.
Skömmu eftir krýninguna barst það
eins og eldur í sinu, að konungurinn
hefði tekið sér fasta ástmey og valið
hana úr hópi hinna alræmdustu götu-
stelpna. Anna Cathrine Benthaken. hét
hún, en var þekktari undir nöfnunum
Stígvéla — Cathrine eða Mylady.
Ymsar sögur hafa gengið um ætt henn-
ar og uppruna, en hið sanna í málinu
er, að hún var dóttir Georgs Ludvigs
Frederiks prins af Braunschweig-Be-
veren, sem hafði flekað unga stúlku,
sem varð móðir Önnu. Eftir storma-
sama bernsku sótti Anna Cathrine um
að verða statisti í leikhúsi, og varð það
auðsótt mál, sakir gróskumikils likama
hennar. Ekki leið á löngu, Þar til hún
var orðin alræmd götustelpa. Síðar
Allt var gert til þess að reyna að flekka
mannorð drottningarinnar. Myndin er
tekin er það varð kunnugt, að hin 22
ára gamla hirðdama drottningarinnar,
fröken von Eyben, hafði reynt að fá
drottninguna og Holck greifa, sem var
nánasti vinur konungsins, til þess að
elskast.
varð hún ástmey brezka sendiherrans,
Goodrich baróns. Það samband varð
lengi, en slitnaði svo skyndilega. Um
þær mundir var hún kynnt fyrir kon-
unginum. Hún var þá þrítug, eða tíu
árum eldri en konungurinn. Hans há-
tign varð afskaplega ástfanginn af
henni Skömmu seinna varð hún einka-
ástmey hans, og virkur meðlimur í nán-
asta kunningjahópi hans hátignar. Hún
tók þátt í öllum næturherferðum
þeirra, þar sem ráðist var á fólk á
götum úti og gerð innrás í pútnahúsin.
Annaðhvort klæddist hún karlmanns-
fötum eða búningi sjóliðsforingja. Það
var sagt, að Mylady hefði gengið svo
frá konunginum, að eftir kynni þeirra
var hann gjörsamlega óhæfur sem
eiginmaður og elskhugi. Hún hafði að-
gang að hirðinni og bústað, sem kallað-
ur var ,,Vatnslyftan“, og fólk, sem
bjó þar í grenndinni gat fylgst ná-
kvæmlega með ástaleikjum hennar og
konungsins, þar sem þeir fóru venju-
lega fram fyrir utan húsið, þar sem
hjúin berháttuðu.
Þegar konungurinn slagaði einn til
hallarinnar eftir að hafa verið hjá
Mylady, eltu götustrákarnir hann og
æptu á eftir hans hátign: ,,Hefurðu nú
verið hjá skækjunni þinni Christian,
líttu á, hvernig þú slagar“.
Þeir hirðmenn, er enn áttu eftir snefil
af ábyrgðartilfinningu réru að því öll-
um árum, að þau Mylady og kóngurinn
yrðu aðskilin. Ástæðán fyrir því var
ekki sízt sú, að Mylady sem var kænn
kvenmaður, var farin að sýna of mik-
inn áhuga fyrir stjórnmálastríðinu.
Hún hafði fljótt skilið og metið þá
miklu möguleika, sem svo algjört vald
yfir konunginum hefði í för með sér.
Það hafði hún ekki hvað sízt lært af
Holck greifa. Þetta hafði í för með sér
mikla hættu fyrir marga við hirðina.
Eftir að innrás hafði verið gerð í hið
alræmda pútnahús í Gothersgötu,
Frh. á bls. 34.
Meðan á hinni virðulegu krýningu
stóð, tautaði konungurinn ókjör af
grófustu blótsyrðum og dundaði
sér við að ná toppinum af veldis-
sprotanum ...
FALKINN
27