Fálkinn - 14.02.1962, Síða 28
kvenþjóðin
ritstjóri
KRISTJANA
STEINGRÍMSDÓTTIR
Málmhólkar á stól og
borðfótum eru bæði hent-
ugir og til prýðis. Þeim
fylgir bara sá galli, að
þeir verða allt of fljótt
leiðinlegir á að líta.
Gott er að fægja þá
með fínni stálull og bera
svo á þá málmlakk, þá líð-
ur á löngu, áður en þeir
láta á sjá á ný.
Ef þið eruð sólgnar í að
mála í tíma og ótíma, get-
ur þetta ráð án efa komið
að haldi. Skerið venjuleg-
an bolta í tvennt og setjið
annan helminginn upp á
pensilskaftið sem hlíf, þá
streymir málningin að
minnsta kosti ekki upp
eftir handleggnum.
Svona er hægt að nýta
skápsrúmið til fullnustu.
Komið fyrir lítilli komm-
óðu eða hilluröð, þar sem
blússurnar og pilsin
hanga. Sé þetta fataskáp-
ur fyrir karlmann, getur
kommóðan komizt undir
jakkana.
Óvænta gesti ber að
garði, franskbrauð er til í
búrinu, kljúfið, það að
endilöngu, holið það út og
smyrjið það með smjöri,
bæði að utan og innan-
verðu, setið það inn í heit-
an ofn, þar til það er gul-
brúnt. Berið það fram
heitt fyllt með alls konar
góðum jafningum.
28 FÁLKINN
%4#liA kexkaka
3 egg
150 g sykur
6 msk kakaó
1 msk saxaðar rúsínur
1 msk saxað súkkat
250 g plöntufeiti
1 pk. ferkantað kex.
Egg og sykur þeytt létt og ljóst, kakaó blandað saman við,
einnig rúsínur og súkkat. Plöntufeitin brædd, kæld svolítið,
hellt smátt og smátt saman við eggjahræruna. Klæðið köku-
mót að innan með smjörpappír eða málmpappír. Látið súkku-
laðibráð og kex til skiptis í mótið, súkkulaði efst og neðst.
Geymt á köldum stað, þar til súkkulaðið er strokið. — Tekið
úr mótinu, borið fram með kaffi niðursneitt.