Fálkinn - 20.06.1962, Blaðsíða 4
Kjóll kapítalistans.
Marlene Dietrich á dýrasta kjól í heimi. Hún ber hann á
sviðinu, og kostar hann um milljón íslenzkar krónur. Verðið
er svona hátt vegna þess að efnið, — m.ousselin, — er bród-
erað með gullþráðum. KjóIIinn var saumaður á hana í New
York, og hún bar hann í fyrsta skipti er hún kom fram í París
fyrir nokkru. Þegar dvöl hennar í París er lokið, mun hún
fara til Ráðstjórnarríkjanna, þar sem hún hefur aldrei kom-
ið fyrr. Og nú velta menn því fyrir sér, hvort hinn dýri kjóll
muni ekki hafa slæm áhrif á Rússana.
Þrettán er happatala — en fjórtán?
Hjónin Brooks í Pittsfield í Bandaríkjunum
héldu því fram að þau ættu stærsta stúlknahóp
í Bandaríkjunum, þau áttu þrettán stúlkur. Ný-
lega átti frú Brook fjórtánda barnið, það varð
drengur.
Að koma sér í koll.
Þegar enska lögreglan tók í fyrsta skipti upp radar í þjónustu
sína vildi svo óheppilega til, að einn af hinum fyrstu ökuföntum
sem tekinn var, var sjálfur uppfyndingamaðurinn, sir Robert
Watson- Watt.
Upp og niður x lyftu.
Frá því að skýjakljúfurinn, Rockefeller
Center, var reistur, hafa lyfturnar í honum
flutt meira en 1.000.000.000 persónur sem er
rúmur þriðjungur alls mannkyns. Lyfturnar eru
166 að tölu og þær fara 65 hæðir á 35 sekúndum.
Kvak.
Líffræðingur nokkur hefur komizt að því,
eftir að hafa rannsakað froska í lengri tíma,
að þeir geti gert sig skiljanlega hvor við
annan með kvaki sínu. Vísindamaðurinn full-
yrti, að um margar mállýskur sé að ræða.
4 FÁLKINN
Arturo Toscanini
elskaði svo mjög æsku-
stöðvar sínar, að hann
keypti hús eitt í Parma,
er hafði verið bernzku-
heimili hans, enda þótt
hann byggi þar aldrei.
Ef til vill munu menn
gleðjast yfir því, að
börn hljómsveitarstjór-
ans hafa gefið Parmaborg húsið, og borgar-
stjórnin hefur ákveðið að gera það að minja-
safni um sögu tónlistarinnar, en fyrst og
fremst á það að vera minjasafn um meistara
tónsprotans, Toscanini.
Sophia Loren er
fræg og hún vill halda
áfram að vera það.
Fyrir skömmu lék hún
í stórmyndinni, Cid, —
og í samningi hennar
við kvikmyndafélagið
stóð, að nafn hennar
á auglýsingaspjöldum
og annars staðar, þar
sem myndin yrði aug-
lýst, mætti ekki vera
á minna letri en sam-
leikara hennar.
Þegar töku myndar-
innar var lokið og aug-
lýsingarnar um mynd-
ina flæddu yfir í blöð-
um og sjónvarpi, var nafn Sophiu á mjög
smáu letri í samanburði við letrið á nafni
mótleikara hennar, Charles Heston. — Þetta
get ég ekki liðið, er haft eftir Sophiu og höfð-
aði hún þegar mál á hendur framleiðandanum,
Samuel Bronston. Krefst leikkonan milljón
dala í bætur fyrir „fáheyrða móðgun“. Og
nú bíða menn í eftirvæntingu eftir því að
dómur falli.
Wagner borgarstjóri
Nýju Jórvíkur stóð í
ströngu fyrir nokkru.
Hann hefur rannsakað,
hvort nokkur af þeim
31 klúbb, sem hann er
meðlimur í, hafi eitt-
hvað í reglugerð sinni,
er brýtur í bága við
skoðanir hans í kyn-
þáttamálunum.
Til dæmis sagði hann sig úr hinum þekkta
klúbb, New York Athletis Club, vegna þess
að klúbburinn meinar ákveðnum kynflokki
um inngöngu. En það vekur enn meiri athygli
í Bandaríkjunum, að hann hefur sagt sig úr
hinum fræga klúbb, The Elks. Úrsögnina
studdi hann með þeirri lagagrein í lögum
klúbbsins, sem bannar negrum inngöngu í
hann. Sá orðrómur hefur komizt á kreik, að
Wagner verði næsti fylkisstjóri New Yorks
fylkis.