Fálkinn - 20.06.1962, Blaðsíða 8
FALKINN
í sumarleyfi um
Rínarlönd
SOL OG VÍN í RÍNARDAL
■ í
Rín og Mosel. — Ypptuð þér öxlum?
Ef til vill haldið þér, áð þar sé lítið að
sjá og lítið sé unnt að gera sér þar til
skemmtunar. Og hvernig komizt þér
svo þangað? Eru nokkrar ferðir til Rín-
arlanda frá Islandi?
Þeirri spurningu verður að svara ját-
andi. Frá íslandi skipuleggja nokkrar
ferðaskrifstofur ferðalög um Rínarlönd.
Við getum til dæmis nefnt Mið-Evrópu-
ferð frá ferðafélaginu Útsýn. í þeirri
ferð verður dvalizt fjóra daga í Rínar-
löndum og gist í fyrsta flokks gistihús-
um. Þessi ferð er farin í ágúst. Ferða-
skrifstofan Sunna skipuleggur einnig
ferð til Rínarlanda, í ferð sem heitið
er til Parísar, Sviss og Rínarlanda. Þessi
ferð er seint í ágúst og verður dvalizt
í Þýzkalandi í bænum Riidesheim, sem
er frægur ferðamannabær. Um þær
mundir er hópurinn dvelst þar, stendur
uppskeruhátíðin sem hæst. Þessi ferð
kostar um 11 þúsund. Sunna útvegar
einnig far með lystsnekkjunum, Evrópu
og Helvetia upp eftir Rín. Skip þessi
eru mjög glæsileg og vel að farþegum
búið, en ferðin er nokkuð dýr. Ferða-
skrifstofan Saga útvegar ódýrar ferðir
til Rínarlanda frá Danmörku. Auðvitað
getið þér svo farið til Rínarlanda upp
á eigin spýtur.
Uss, það er áreiðanlega ekkert gam-
an að ferðast um Rínarlönd, má stund-
um heyra fólk segja. Það er ekkert
skemmtilegt að ferðast um Þýzkaland,
Þjóðverjar eru leiðinlegir, og ekkert að
sjá, sem ekki má sjá hér.
Ef þér hafið í raun og veru hugsað
þannig, er það aðeins vegna þess, að
þér hafið aldrei reikað eftir Schwalben-
gasse í Köln og komið við í vertshúsi frú
Lilly Steinbach. Þjónninn eða sölu-
sveinninn ber fram ölið og er klæddur
í miðaldabúning með leðursvuntu. Ölið
drýpur niður á pappaspjaldið undir
krúsinni og myndar landakort. Þér ætt-
uð að fá yður hálfsteiktan hana eða
hinar mjúku kótelettur.
Þannig er yfirbragð Rínarlanda, í
Nokkrir íslendingar í hinu glaðværa
Drosselgasse í Riidesheim. Myndin er
úr hópferð Útsýnar.