Fálkinn - 20.06.1962, Blaðsíða 26
kvenþjóðin
ritstjóri
KRISTJANA
STEINGRÍMSDÓTTIR
GOÐIR
KJÖT-
RÉTTIR
ÚR LAMBA-
KJÖTI
Fylltur frampartur.
I—IV2 kg. frampartur
1 tsk. salt
Va tsk. pipar
250 g. kjötdeig
1 msk. fínmalaðar græn-
ar kriddjurtir
(steinselja, karis, oliel)
1 laukur
50 g. smjörlíki
100 g. gulrætur
2 dl. vatn
Kaupið kjötið daginn áður og þýðið.
Kjötið þerrað og beinið tekið úr bógn-
um. Fylltur með kjötdeigi (jafnt af
hökkuðu nautakjöti, svínakjöti og
skinku), sem kryddað er með salti,
pipar, steinselju (eða öðru grænu) og
söxuðum lauk. Vefjið kjötið þétt um
fyllinguna og bindið um það með soðn-
um bómullarþræði.
Brúnið kjötið í potti ásamt brytjuð-
um gulrótum og lauk. Vatninu hellt á
og kjötið látið sjóða undir hlemm við
hægan eld í tæplega 1 klst. Fleytið
soðið vel og berið það fram með kjöt-
inu ásamt soðnu grænmeti eða góðum
hrærðum kartöflum.
Lambakótilettur á franska vísu.
6—8 lambakótilettur
Örlítill hvítlauksbiti
% kg. tómatar
2 stórir laukar
Salt, pipar
1 tsk. söxuð steinselja eða
annað grænt.
Kótiletturnar hreinsaðar. Núið eld-
fast mót að innan með hvítlauknum
Hreinsið laukinn og sneiðið hann þunnt.
Takið húðina af tómötunum, ef hún er
þykk (stingið þeim augnablik í sjóð-
andi vatn) og skerið þá í sneiðar.
Látið tómatana í botninn á fatinu, þar
ofan á lauk, salti, pipar og steinselju
stráð yfir. Kótilettunum raðað ofan á
og þar ofan á er afgangnum af tómöt-
um og lauk raðað. Setjið,pipar og stein-
selju stráð yfir. Örlitlu af bræddu
smjöri hellt yfir.
Mótið hulið með málmpappír og það
sett inn í meðalheitan ofn í nálega 1
klukkustund, eða þar til kjötið er meyrt.
Borið fram með grænum baunum í
jafningi.
tíckuuppá kritf'tir
Sprautukökur.
100 g sykur.
200 g smjör.
1 lítið egg.
300 g hveiti.
Smjörlíki og sykur hrært létt og
ljóst. Egginu og hveitinu hrært
saman við. Deiginu sprautað í hringi
eða S. Bakað við 200°.
Kúrennukökur.
200 g smjörlíki.
200 g sykur.
1 egg.
150 g kúrennur.
300 g hveiti.
2 tsk. lyftiduft.
Smjörlíki og sykur hrært létt, egg,
þvegnar kúrennur og hveiti hrært
saman við. Hnoðað lítillega. Mótað-
ar litlar kúlur milli handanna,
þrýst niður með hveitugum gaffli.
Bakað við 200—225° í nál. 15 mín-
26
FÁLKINN