Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1962, Blaðsíða 35

Fálkinn - 20.06.1962, Blaðsíða 35
Hrútsmey'kið (21. marz—20. apríl). Þér eruð í erfiðri aðstöðu, en þar munuð þér reyna, hvað vinir yðar eru yður trúir. Aö því er varð- ar fjármál, skuluð þér vera varkár. Ef þér hafið stjórn á skapi yðar mun lífið leika alls staðar við yður. Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí). Þér munuð starfa mikið og vel þessa viku, enda uppskera eins og til var sáð. Reynið að taka ákveðna afstöðu í máli nokkru, sem þér hafið lengi verið á báðum áttum með. Tvíburamerkið (22. maí—21. júní). Gætið yðar á freistingunum, sérstaklega í ásta- málunum. Vikan byrjar mjög vel og verður fleyti- full af gleði og óvæntum skemmtilegum atvikum. Þér skuluð ekki láta aðra hafa of mikil áhrif á yður, held- ur vera sjálfstæður. Krabbamerkið (22. júní—22. júlí). Sá taugaslappleiki og óstyrkur, sem hefur þjakað yður um langa hríð, mun læknast í þessari viku mjög óvænt, og þér getið gengið til vinnu yðar af fullum kraft.i. Munið að heppni er oft með í djörfum áformum. Ljónsmerkið (23. júlí—23. ágúst). Þér þarfnist uppörfunar og hana fáið þér hjá jafn- öldrum yðar, en gamla fólkið mun dæma yður hart og yfirleitt megið þér búast við harðri gagnrýni hvaðanæva . Þér skuluð hætta að skopast að ákveðinni persónu. Jómfrúarmerkið (2J+. ágúst—23. september). Þrátt fyrir andstöðu úr mörgum áttum, getur svo farið að þér náið stöðu þeirri, sem mun breyta lifn- aðarháttum yðar algjörlega. Treystið á sjálfan yður og hæfileika yðar. Þá getið þér búizt við að hugmynd yðar komizt í framkvæmd. Vogarskálarmerkið (2U. september—23. október). Enda þótt. þér séuð prúður og sáttfús maður í rík- um mæli, munuð þér lenda í rifrildi og vandræðum í þessari viku. Að öðru leyti er útlitið gott og yfir síðustu dögum vikunnar ríkir rómantískur ljómi. Sporðdrekamerkið (2U. október—22. nóvember). Yður skal ráðlagt að sýna umfram allt þolinmæði, því að langur tími mun líða, unz breytingar er að vænta í lífi yðar. Ástamálin verða erfið þessa viku. Þér skuluð ekki vera of gagnrýninn á bresti annarra. Bogamannsmerkið (23. nóvember—21. desember). Enda þótt ofurlítið atvik hafi sett yður úr jafn- vægi nú um skeið, skuluð þér ekki óttast afleiðingar þess. Þér skuluð ekki láta freistast af lokkandi t.ilboð- um, því að stjörnurnar telja lítið mark takandi á þeim. Steingeitarmerkið (22. desember—20. janúar). Þér skuluö gæta varúðar gagnvart persónum, sem eru að smjaðra fyrir yður. Ofurlítið ástarævintýri mun lífga upp á hinn gráa hversdagsleika í þessari viku. Ef þér réttið persónu nokkurri hjálparhönd eignizt þér vin upp á lífstíð. Vatnsberamerlcið (21. janúar—19. febrúar). Reynið að leiðrétta misskilning,. sem verið hefur lengi milli yðar og náins vinar. Þetta er lítilvæg mis- klíð, en hefur samt valdið ykkur báðum miklum óþægindum. í þessari viku fáið þér ofurlitla uppbót á laun yðar. Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz). Það mun borga sig að breyta svolítið út af hinum daglega vana í þessari viku, því að það ríður á að grípa gæsina meðan hún gefst. Ef til vill kynnist þér nýju og skemmtilegu fólki, sem mun verða yður mikil stoð. O o Pósthússtræti 9, Sími 1-77-00. FÁLKINN 35

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.