Fálkinn - 20.06.1962, Page 35
Hrútsmey'kið (21. marz—20. apríl).
Þér eruð í erfiðri aðstöðu, en þar munuð þér
reyna, hvað vinir yðar eru yður trúir. Aö því er varð-
ar fjármál, skuluð þér vera varkár. Ef þér hafið
stjórn á skapi yðar mun lífið leika alls staðar við
yður.
Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí).
Þér munuð starfa mikið og vel þessa viku, enda
uppskera eins og til var sáð. Reynið að taka ákveðna
afstöðu í máli nokkru, sem þér hafið lengi verið á
báðum áttum með.
Tvíburamerkið (22. maí—21. júní).
Gætið yðar á freistingunum, sérstaklega í ásta-
málunum. Vikan byrjar mjög vel og verður fleyti-
full af gleði og óvæntum skemmtilegum atvikum. Þér
skuluð ekki láta aðra hafa of mikil áhrif á yður, held-
ur vera sjálfstæður.
Krabbamerkið (22. júní—22. júlí).
Sá taugaslappleiki og óstyrkur, sem hefur þjakað
yður um langa hríð, mun læknast í þessari viku mjög
óvænt, og þér getið gengið til vinnu yðar af fullum
kraft.i. Munið að heppni er oft með í djörfum áformum.
Ljónsmerkið (23. júlí—23. ágúst).
Þér þarfnist uppörfunar og hana fáið þér hjá jafn-
öldrum yðar, en gamla fólkið mun dæma yður hart
og yfirleitt megið þér búast við harðri gagnrýni
hvaðanæva . Þér skuluð hætta að skopast að ákveðinni
persónu.
Jómfrúarmerkið (2J+. ágúst—23. september).
Þrátt fyrir andstöðu úr mörgum áttum, getur svo
farið að þér náið stöðu þeirri, sem mun breyta lifn-
aðarháttum yðar algjörlega. Treystið á sjálfan yður
og hæfileika yðar. Þá getið þér búizt við að hugmynd
yðar komizt í framkvæmd.
Vogarskálarmerkið (2U. september—23. október).
Enda þótt. þér séuð prúður og sáttfús maður í rík-
um mæli, munuð þér lenda í rifrildi og vandræðum
í þessari viku. Að öðru leyti er útlitið gott og yfir
síðustu dögum vikunnar ríkir rómantískur ljómi.
Sporðdrekamerkið (2U. október—22. nóvember).
Yður skal ráðlagt að sýna umfram allt þolinmæði,
því að langur tími mun líða, unz breytingar er að
vænta í lífi yðar. Ástamálin verða erfið þessa viku.
Þér skuluð ekki vera of gagnrýninn á bresti annarra.
Bogamannsmerkið (23. nóvember—21. desember).
Enda þótt ofurlítið atvik hafi sett yður úr jafn-
vægi nú um skeið, skuluð þér ekki óttast afleiðingar
þess. Þér skuluð ekki láta freistast af lokkandi t.ilboð-
um, því að stjörnurnar telja lítið mark takandi á
þeim.
Steingeitarmerkið (22. desember—20. janúar).
Þér skuluö gæta varúðar gagnvart persónum, sem
eru að smjaðra fyrir yður. Ofurlítið ástarævintýri
mun lífga upp á hinn gráa hversdagsleika í þessari
viku. Ef þér réttið persónu nokkurri hjálparhönd
eignizt þér vin upp á lífstíð.
Vatnsberamerlcið (21. janúar—19. febrúar).
Reynið að leiðrétta misskilning,. sem verið hefur
lengi milli yðar og náins vinar. Þetta er lítilvæg mis-
klíð, en hefur samt valdið ykkur báðum miklum
óþægindum. í þessari viku fáið þér ofurlitla uppbót
á laun yðar.
Fiskamerkið (20. febrúar—20. marz).
Það mun borga sig að breyta svolítið út af hinum
daglega vana í þessari viku, því að það ríður á að
grípa gæsina meðan hún gefst. Ef til vill kynnist
þér nýju og skemmtilegu fólki, sem mun verða yður
mikil stoð.
O
o
Pósthússtræti 9,
Sími 1-77-00.
FÁLKINN 35