Fálkinn - 20.06.1962, Page 27
NOTAST
SKÁPRÝMID
TIL FIILLS ?
Nú þegar vorhreingerningarnar standa sem hæst, og
tekið er út úr öllum fataskápum, væri skynsamlegt að staldra
við og athuga, hvort hægt væri að hafa meira not að þeim
en raun er á.
Með röngu eða illa nýttu geymslurými er ógerningur,
jafnvel fyrir hina mestu reglumanneskju, að hafa allt í
röð og reglu. Enn vill brenna við sú skoðun, að skápur sé
ágætis hirzla, svo fremi að í honum séu nokkrar hillur og
slá, sem hægt er að hengja á herðatré. Hvort skáprýmið
sjálft sé ekki fullnotað er ekki athugað.
Sé nýr skápur byggður, á að byggja hann innan frá, eftir
máli, sem hæfir þeim hlutum eða fatnaði, sem í honum á
að vera. Þá á ekkert rými að þurfa að fara til spillis og jafn-
Skápur húsbóndans.
Festið plastsnúru
innan á skáphurð-
ina, hengið húfur
og vettlinga þar á
með klemmum. Þá
verður engin leit að
þessum hlutum,
þegar á þarf að
halda. Þetta ráð
sparar ykkur mik-
inn tíma og leit á
síðustu stundu.
framt er innihald skápsins það aðgengilegt, að auðvelt á að
vera að halda öllu í röð og reglu. En oft er skápur fyrir
hendi, sem alltof dýrt væri að kasta á haugana, þá er oft
hægt að endurbæta hann án mikils kostnaðar.
Skápur húsbóndans: Ekki þarf að ætla mikið hengirými
undir slánni, svo frerhi að buxurnar séu hengdar á slána á
herðatrénu. Undir fötunum er auðvelt að koma fyrir skúffu-
röð undir náttföt, skyrtur o. s. frv. Hæfilegt er að innanmál
skúffanna sé 50X50 cm. Hægra megin við skúffuröðina er
rými fyrir frakka og annað síðara og þar fyrir neðan er
skógrind, sem tekur 6 pör af skóm. í hilluröðinni er svo ágætt
að hafa litla skúffu undir smáföt.
Skápur húsmóðurinnar: Húsmóðirin þarf meira hengirými
en húsbóndinn. En hangi hins végar blússur, pils og kjólar
á sömu slá fer mikið rými til spillis. Haganlegt er því að
koma slám fyrir eins og myndin sýnir. Góð hilla fyrir ofan
hluta af fatahenginu og hillunum og skógeymsla í botninum.
Hægra megin eru svo hillur og í beztri hæð skúffur,, á mynd-
inni er plastic, undir nærfatnað o. fl.
Skápur húsmóðurinnar.
FÁLKINN 27