Fálkinn - 30.01.1963, Side 4
séð & heyrt
Vivien Leigh
lítur nú betur
út en nokkru
sinni fyrr. Hún
heldur áfram að
leika og hér á
myndinni er hún
að leggja upp í
leikför til Nýj-
orkar, þar sem
hún er ráðin til
þess að leika í
söngleik sem
saminn er upp úr
leikritinu Tovar-
ich.
Konur meta háhælaða skó mikils, enda ku þeir vera fundnir
upp af konunni, sem var kysst á ennið. En læknar eru ekki sama
sinnis og konurnar. Þeir segja, að háhælaðir
skór valdi bakverk og öklarnir verði veik-
burða o. s. frv. Læknar eru ekki einir um
að gagnrýna skófatnað þennan. Tryggingar-
félögum er mjög í nöp við 'háhælaða skó, og
einnig eru lögregluþjónar og umferðarsérfræð-
ingar sömu skoðunar. Þessir menn telja, að
kona, sem er í háhæluðum skóm og aki bif-
reið, hafi ekki nægilega stjórn á petölum
bifreiðarinnar. Og svo eru lágvaxnir karlmenn
mjög á móti háhæluðum skóm, — en það
er önnur saga.
Yfirvöld í gömlum og grónum þorpum hafa
á síðari árum neyðzt til þess að leggja asfalt-
lag yfir göturnar, sem lagðar voru hellustein-
um, en hinum mjóu hælum var einkar lagið
að komast niður á milli hellna, enda hafði oft
verið viðkvæðið hjá konum, isem heimsótt höfðu
slíkar götur, að betur hefði verið heima setið
en að fórna þrennum skóm í gömlum ferða-
mannabæ.
Bandaríkjamenn eru hugvitssamir. Einn af
því þjóðerni stofnaði fyrir nokkrum árum skrif-
stofu í París. Við getum kallað hana snobb-
skrifstofuna, því að hún stofnaði til kynna milli
vellríkra olíukónga og franskra aristokrata af
gömlum og göfugum ættum, mönnum sem höfðu
gnægð af bláu blóði en lítið af gulli handa á
milli.
Fyrir nokkrum árum var gerð skoðanakönnun með-
al skólabarna í Frakklandi. Kannað var, hverjum
börnin vildu helzt líkjast og hvaða menn væru mestir
í þeirra augum. Stúlkurnar dáðu mest Ginu Lollo-
brigidu, söngvarann Tino Rossi og Mozart. En dreng-
irnir vildu helzt líkjast Pasteur, Napoleon og Aga
Khan. Okkur er spurn: Hver skyldi niðurstaðan verða
hér á landi, ef efnt væri til slíkrar skoðanakönnunar?
Menn ættu að fara
varlega í áróðri sínum-
um. Eitt sinn hélt
Kennedy forseti sjón-
varpsræðu og hvatti
þar landa sína til þess
að sýna líkama sínum
rækt, leggja stund á
íþróttir og gönguferð-
ir skyldu menn fara.
Hann sagði, að bandaríkjamenn þyrftu að
venja sig af hóglífinu. Hann hvatti menn
til þess að fara í morgunleikfimi áður en
þeir hæfu störf sín.
Og hverjir eru svo það, sem fyrstir tóku
orð hans til greina? Starfsfólkið á Tass-
fréttastofunni rússnesku við Rockefellertorg.
Á hverjum morgni má heyra rússneska,
klassiska tónlist út um gluggann, — og und-
ir þessari tónlist, iðka allir leikfimi í fimm
mínútur, og ekki einu sinni sendisveinninn
sleppur undan því.
★
Haydn var lærimeistari Mozarts. Mozart
veðjaði einu sinni við meistarann, að hann
gæti samið tónverk, sem Haydn gæti ekki
leikið. Eftir um það bil fimm mínútur rétti
Mozart meistara sínum handrit.
„Hvað er þetta?“ hrópaði Haydn, þegar
hann hafði leikið nokkrar nótur. „Hvers vegna
er hér nóta, sem slá skal á miðju nótnaborð-
i inu, meðan báðar hendurnar eru önnum kafn-
'ar út til hliðanna? Slíkt getur enginn mað-
ur leikið.“
: ,.| Mozart settist brosandi við píanóið, og þeg-
\V ar kom að þessari vandleiknu nótu, beygði
hann sig niður og sló hana með nefinu.
★
-— Bjartsýnis-
maður, sagði
Victor Borge, er
sá maður, sem
ekki getur látið
tekjur og gjöld WBm < ' %Wm
á ársreikningn-
um standast á
og fer þess HH gH !*mwWM&k 'WyWÆKSm
vegna á vín- og
veitingahús,
drekkur þar
kampavín og
borðar ostrur. í
þeirri von, að í einhverri þeirra leynist perla,
sem ekki aðeins borgi veizluna, heldur lika
tapið á árinu, sem er að líða.
k
Nikita Krúsjeff er gleðimaður talinn. Eitt
sinn í veizlu, sem haldin var í Kreml, lék
hljómsveitin hvern Strauss-valsinn á fætur
öðrum.
Krúsjeff hlustaði á tónlistina þunnu eyra,
en sagði síðan:
— Jæja, -hann Strauss frá Vínarborg er að
minnsta kosti miklu betri en nafni hans í
ríkisstjórn Adenauers.
4
FALKINN