Fálkinn


Fálkinn - 30.01.1963, Side 17

Fálkinn - 30.01.1963, Side 17
Skömmu eftir að Helga og Páll átt- ust, lézt Þorleifur sýslumaður á Möðru- völlum. Páll Jónsson og Ormur Sturlu- son lögmaður, er átti Þorbjörgu Þor- leifsdóttur, gengu ósleitulega í eignirn- ar á Möðruvöllum og sölsuðu undir sig. Ui'ðu af því mál mikil og beitti Páll Jónsson harðlega lögkrókum og klók- indum, og vann þar mikinn auð í bú sitt. Að vísu voru þau Helga og Páll vellauðug fyrir, þar sem Helga fékk einn fjórða af eigum föður síns, Ara lögmanns, og Páll átti stóreignir. En mikið vill ávallt meira, og sannaðist það hér áþreifanlega sem oftar. En auður er sjaldan bætandi ást og samlyndi ungra hjóna, og ekki sízt, þegar ein- þykkni er rík á báðar hendur og til- hliðrunarsemi til ráðstöfunar lítt til staðar. Enda kom brátt á daginn með Helgu og Pál, að auður þeirra bætti ekki úr sambúðinni. Helga vildi ráða eignum sínum sjálf, og seldi jarðir að manni - sínum fornspurðum og ráðstaf- aði fé sínu. En hann var fjárgæzlumað- ur mikill og bráður til sundurþykkju, ef út af bar um vilja hans um þau efni. Þetta varð þeim því til sundurlyndis — meira en góðu hófi gegndi — ásamt fleiru. Sambúð Helgu Aradóttur og Páls Jónssonar varð æ erfiðari eftir því sem lengur leið. Er mælt, að Páll hafi eitt sinn ort til konu sinnar, eftir að hafa átt við hana orðahnippingar nokkrar: Framh. á bls. 29. FÁLKINN 17

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.