Fálkinn - 30.01.1963, Side 37
UNDIRFDT ERU
AÐALSMERKI
KVENLEGS
ÞDKKA
S
FÁLKINN 37
HrútsmerkiS (21. marz—20. apríl).
Þér skuluð ekki láta það fá á yður, þótt þér verð-
ið fyrir þaktali. Það verða flest.ir einhvern tima á j
ævinni. Verið varkár í meðferðinni og forðist að gefa
nokkur loforð. Gætið þess að vera hlutlaus, þegar
viðkvæmt mál í fjölskyldunni ber á góma.
NautsmerkiS (21. apríl-—20. maí).
Ákvörðun sú, sem þér hafið tekið, mun án efa
verða yður til happs. Hún mun bæði stuðla að fram-
gangi yðar og ánægju fyrir velunnu verki. Þér mun-
uð öðlast tækifæri til að styrkja aðstöðu yðar til
muna, ef þér gætið þess að slá út trompinu á réttum
tíma.
Tvíburamerkiö (21. maí—20. júní).
Farið eftir yðar eigin skynsemi í máli nokkru og
kærið yður kollóttan um hvað aðrir kunna að segja
um framkomu yðar. Vandamál eitt. mun leysast á
óvæntan hátt. í heild verður vikan notaleg og býður
upp á marga og skemmtilega atburði.
Krahbamerkif) (21. júní—20. júli).
Eftir skamman tíma standið þér andspænis tveimur
kostum. Spurningin er bara sú, hvort þór munuö velja
réttu leiðina. En ef þér látið engan bilbug á yður
finna og fylgið aðeins yðar innri rödd, þá ætti ekki
að vera nein hætta á ferðum.
Ljónsmerhiö (21. júlí—-21. ágúst).
Allar líkur benda til þess, að þér lendið i smá-
ferðalagi, sem mun verða yður til mikiliar gleði og
ánægju. Fjármálin, sem hingað til hafa legið eins og
mara á yður, leysast og skuldabagginn léttist. En
samt sem áður verðið þér að fara varlega með pen-
ingana,
JómfrúarmerkiS (22. ágúst—22. september).
Stjörnurnar segja, að þér fáið andbyr í vikulok, i
og sú andstæða er yður sjálfum að kenna. Hins vegar I
getið þér huggað yður með því að margir eru hlið-
hollir yðar málstað. Líkur benda til þess að eitthvað
rætist úr á fjármálasviðinu.
Vogarskálamerlciö (23. septembei—22. oktábcr).
Svo getur farið að óhugsað verk í byrjun vikunnar
geti haft. afdrifaríkar afleiðingar í lok hennar. Þér
þurfið á hjálp að halda í ákveðnu máli, en þér eruð
of mikill sjálfbirgingur og hlustið ekki ávallt á það,
sem yður er ráðlagt.
Svorödrekamerkiö (23. október—22. nóvember).
Þér eigið létt með að afla yður vina, og þennan
hæfileika þurfið þér að nýta til hins ítrasta á næst- |
unni. Því verða miklar kröfur til yðar gerðar og þér I
verðið að taka á honum stóra yðar til þess að stand-
ast þær allar.
Bogamannsmerlcið (23. nóvember—20. desember).
Ef þér eruð dapur og í vondu skapi fyrstu daga
vikunnar, ættuð þér skilyrðislaust að taka yður hvíld
frá störfum um stund. í vikulokin mun unga fólkið I
lenda í rómantískum og skemmtilcgum ævintýrum.
Verið eklíi eyðslusamur.
Steingeitarmerlnð (21. desember—19. ' janúar).
Umfram allt, skuluð bér gæta að því að setja ekki
orkuna í óþarfa verk. Og svo megið þér vara yður
á því aö vera ekki of smámunasamur. Vinir yðar
þurfa í vikunni mjög á yðar hjálp að halda og énda
þótt þér eigið við ýmislegt að stríða, þá hikið ekki
við að hjálpa.
Vatnsberamerkiö (20. janúar—18. febrúar).
Þér hafið dálitla tilhneigingu til þess að koma fram
yðar_ skoðunum án þess að vera spurður um þær. j
Svolítil klókindi koma að gagni í vikunni. Þegar líö-
ur á vikuna, munu margir óvæntir atburðir gerast.
Vinnan er þýðingarmest þessa dagana.
Fiskamerkið (19. febrúar—20. marz).
í þessari viku verður yður blandað inn í mál
nokkurt,, sem getur valdið yður töluverðum vandræð-
um og erfiðleikum. En ef þér komið fram eins og |
sannfæring yðar er, mun það verða virt að verðleik-
um. Hvernig væri að borga gamla skuld?