Fálkinn


Fálkinn - 02.10.1963, Page 15

Fálkinn - 02.10.1963, Page 15
„Þú ætlar aS stela honum frá Indlandi, frá okkur — föður okkar, sem við elskuðum. Þú ætlar að senda hann einmana á meðal útlendinganna. Hvernig mun sál hans koma aftur til okkar, ef hann liggur á meðal Englendinganna ? Heilagt vatn Gengesfljóts bíður eftir að taka við ösku hans! Hvað segja bækurnar um son, sem virðir ekki Iíkama föður síns?“ hópi að nýju, enda þótt aðstæður séu sorglegar. Faðir minn —“ Rödd hans brást þrátt fyrir á- kveðni hans, og konurnar byrjuðu að kjökra. Hann rétti upp hönd- ina og náði valdi á rödd sinni:: „Við megum ekki láta bugast, fyrir alla muni! Ég verð að tala í hans stað, af hans hálfu. Ég verð að útskýra, hvers vegna ég finn mig knúðan til að segja það, sem ég ætla að segja.“ Hann leit á þau og velti fyrir sér, hvernig hann ætti að halda áfram. Þarna voru aldraðar frænd- konur hans, föðursystur hans, dökk andlit þeirra beindust að honum eins og sólinni, og móður hans, með endann á „sari“ sínu vafinn fyrir munninn, og frænd- ur hans, ásamt konum sínum og börnum. Lengra í burtu voru þjón- arnir — öll biðu þau eftir að hann lýsti yfir vilja sínum sem forsjá fjölskyldunnar. Hann hélt áfram: „Hvernig á ég að útskýra föður minn fyrir ykkur? Hvert ykkar þekkti hann á sinn hátt. Hverju ykkar sýndi hann sérstaka hlið á sér. Ég þekkti hann sem góðan og réttlátan föður. í mínum augum var hann eins og himininn yfir mér, jörðin undir fótum mínum. Ég hugsaði aldrei um dauða hans. Ég er ekki undir það búinn að vita, að hann er látinn. Ég hef aldrei hugsað til þess, hvað ég ætti eða mundi gera nú, þegar endalok jarðneska lífs hans hefur borið svo brátt að. Ég minnist hans sem meira en föður míns, ég minnist hans sem mikilmennis. Mikilmenni eru stórvaxin til sál- arinnar. Þið vitið sitthvað um stórhug föður míns. Gandhi-sinnar komu til hans til skrafs og ráða- gerða, og margir aðrir komu til hans. Jafnvel Englendingarnir, þegar þeir vissu, að þeir yrðu að veita okkur frelsi, komu til föður míns til að komast að raun um, hvernig það yrði bezt til lykta leitt. Þið þurfið aðeins að lesa titlana á bókunum í skrifstofu hans, eins og ég gerði rétt áðan, til að vita, að faðir minn tilheyrði heiminum, en ekki einungis Ind- landi. Hann hafið samband við suma mestu hugsuði Vesturlanda. Þess vegna —“ Hann þagnaði. Nú yrði hann að segja það. Hann gat ekki sagt þeim sannleikann, sem var sá, að hann gæti blátt áfram. ekki — gæti ekki — Hann tók á sig rögg. „Ég hef þess vegna ákveðið, að útför föð- ur míns verður ekki gerð sam- kvæmt hinum gömlu helgisiðum Hindúa. Það er tími til kominn — ég á við, að ég held að við ætt- um að hugleiða — eðli þessara helgisiða. Faðir minn mundi ekki krefjast — ég held, ef ég hefði getað leitað ráða hjá honum, að hann hefði fallizt á, að mestur menningarbragur sé á þeirri til- högun útfara, að jarða hina látnu, líkamann óskertan og látinn jörð- inni aftur í té. Ég ætla þess vegna að nota ensku aðferðina, og hann mun liggja í kirkjugarðinum.“ Þau hlustuðu þögul. Hann lauk máli sínu festulega og var í þann veginn að fara, þegar hendur tóku um ökla hans. Honum virtist sem hendur teygðu sig til hans alls staðar að úr geysistóru herberginu og héldu honum. Þær tóku um ökla hans og um hné hans. Allt umhverfis hann reis ógurlegt haf örvæntingarfullra andlita, og raddir mótmæltu í kór, kveinandi og ásakandi: „Þú ætlar að stela honum frá Indlandi, frá okkur — föður okk- ar, sem við elskuðum. Þú ætlar að senda hann einmana á meðal útlendinganna. Hvernig mun sál hans koma aftur til okkar, ef hann liggur á meðal Englendinganna? Heilagt vatn Gangesfljóts bíður eftir að taka við ösku hans! Hvað segja bækurnar um son, sem virð- ir ekki líkama föður síns?“ Hann bar af sér, reiðilega. „Kæru vinir!“ hrópaði hann. „Fyr- irleit faðir minn ekki sjálfur helgisiðahald? í viðurvist þings- ins löngu áður en ég fæddist, en það er til í þingskjölunum. —“ „Allir, sem þekktu hann, munu rísa gegn þér!“ Framh. á bls. 32. FÁLKINN 15

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.