Fálkinn


Fálkinn - 02.10.1963, Page 16

Fálkinn - 02.10.1963, Page 16
Hver kannast ekki við Klakksvík, siðan deilurnar urðu sem mestar þar um árið vegna Iæknamálsins og við lá, að uppreisn brytist út. Þessi mynd frá Klakksvík er þó hvergi nærri ófriðleg, enda ber öllum saman um, að Klakksvík sé óvenju friðsæll og fagur st aður. (Ljósm. Jan Olsheden). Nýlega voru hér á ferð þrír ungir Svíar fr& Scandinavian Press Agency í Bromma. Þeir söfnuðu hér alls konar efni um ísland og tóku meðal annars kvikmynd af meist- ara Kjarval og myndum hans. Á leiðinni komu þeir við í Færeyjum og tóku þar myndir og skrifuðu grein þá fyrir Fálkann, er hér fer á eftir. Þeir heita: Hans Jansson, Lars Andersson, og Jan Olsheden, sem skrifaZí f(reinina. I Fæíeyjum verða piltarnir að „keyra" stúlkurnar sínar heim á bátum, og það tekur töluverðan tíma, ein stúlk- an ætlar til Klakksvíkur og önnur til einhvers fiskiþorpsins á suðurströnd- inni, þannig að oftast tekur það alla nóttina að koma stúlkunum heim. 16 FÁLKINN FÆREYJAR FAGRAR OG ÓSPI LLT A R Fari maður eins og Halldór Kiljan Laxness til Danmerkur með hinu gamla virðulega skipi „Dronning Alexandrine“, sem sigldi nú trúlega í sumar í síðasta sinn til íslands, fær maður tækifæri til þess að njóta lítils hluta af þeim töfrum, sem Færeyjar hafa upp á að hjóða útlendingum. „Dronning Alexandrine“ kemur við í þremur höfnum á Færeyjum á leið sinni frá Kaupmannahöfn til íslands, Þórhöfn, Klakksvík og Tveraa. Fyrir útlending, sem er í fyrsta sinn á leið til íslands, eru Færeyjar eins konar lítið ísland og því meir sem maður sér af eyjunum þeim mun fleira sameigin- legt finnur maður með þessum tveimur löndum. ísland og Færeyjar byggja afkomu sína alla á fiskveiðum, sem eru báðum þjóðunum lífsnauðsynlegar. Sauðfé er álíka algengt á báðum stöðunum, og Færeyjar eru eins og ísland byggðar uppp af gosum eldfjalla. Jafnvel í fortíðinni má finna hluti, sem færa ísland og Færeyjar nær hvort öðru. íbúar Færeyja hafa barizt fyrir sjálfstæði sínu á sama hátt og íslendingar, en í Færeyjum býr ekki fullvalda þjóð, heldur gætir þar áhrifa frá Dönum, þótt sjálfsforræðið hafi aukizt með árunum, og oft hafi verið talað um algjört sjálfstæði þjóðarinnar, sérstak- lega eftir síðari heimsstyrjöldina. Á meðan heimsstyrjöldin stóð yfir fengu Færeyingar að sjá um sig sjálfir, þar sem þeir voru ekki hernumdir af sömu þjóð og hernam Danmörku. Jarðfræðilega má segja um Færeyjar, að þær liggi á 62. breiddargráðu

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.