Fálkinn


Fálkinn - 02.10.1963, Síða 18

Fálkinn - 02.10.1963, Síða 18
Þetta er vissulega einkennandi færeysk mynd, húf- an og mussan eru „einkennisbúningur“ Færeyinga, en maðurinn sjálfur gæti vissulega verið íslenzkur hreppstjóri. (Ljósm. Lars Anderson). sérlega mikið í staðinn. En, segir hinn sanni Fær- eyingur, annað hvort er maður fæddúr til þessa erfiða lífs, maður elskar hafið og baráttuna við veðrið eða maður er ekki reglulegur Færeyingur. Og það er einnig þetta, sem gefur von um framtíð Færeyja, flestir unglingar elska lífið á sjónum og geta ekki hugsað sér annað. Ef til vill hafa þeir í nokkur ár reynt, hvernig það er að vera í stór- borgum meginlandsins, en heimþráin verður mörg- um ofviða, menn snúa aftur með ný sjónarmið og endurnýjaðan kraft og taka til við fiskveiðarnar aftur. Auðvelt er að sýna með nokkrum tölum, hversu þýðingarmikill fiskurinn er fyrir íbúana. Talið er, að um það bil þriðjungur íbúanna allra fái tekjur sínar úr hafinu. Af þessu hefur leitt, að á síðari árum hafa ný tæki verið tekin í notkun í sam- bandi við fiskveiðarnar, en samt standa Færeying- ar ekki jafn framarlega og íslendingar á þessu sviði. Hætt hefur þó verið við að veiða eingöngu á heimamiðum, og nú fara veiðarnar aðallega fram á stærri bátum en þeir gömlu opnu voru, og oftast er veitt umhverfis ísland og Grænland og í Hvíta hafinu. Fjárhagslega séð eiga íbúarnir mest undir fiskveiðunum, útflutningur Færeyja hefur á seinni árum verið í kringum 750 milljónir á ári. Af þessu hefur ekki minna en 97% verið fiskframleiðsla. Mestur hluti fiskins — oftast nær saltaður — er fluttur til Suður-Evrópu, og Spánn er aðalmark- aðslandið. Hin, jafnvel Grikkland og Ítalía eru meðal stærstu viðskiptalanda Færeyja. Mikið hef- ur verið gert til þess að vinna markað í Brazilíu, og það erfiði hefur einnig borið góðan árangur. Málfarslega eru Færeyjar náskyldar íslandi, og 18 FALKINN FÆREYJAR FAGRAR OG ÓSPILLTAR og málið er einnig mjög skylt nýnorskunni. Enn má líka finna gaml- ar norrænar venjur í smíði báta, húsa og í verkfærum. Færeyingarnir- geta rekið ættir sínar aftur til víkinganna, sem í kringum 1000 lögðu upp frá Danmörku og Noregi. Til eru færeysk skjöl frá árinu 1500, þar sem málið er hið sama í gömlum norskum og íslenzkum bréfum frá sama tíma. En að sjálfsögðu hafa að mestu leyti nýtízku hús og verkfæri komið í stað gömlu góðu húsanna með torfþökin, og húsinu eru nú byggð úr miklu endingarbetri efnivið. En eitt er sérkennandi fyrir færeysku húsinn, menn hræðast ekki að nota liti á húsin sín, og það er líkast því að horfa inn í ævintýraheim, þegar maður lítur yfir þorpin, þar sem húsin eru öll máluð með mismunandi litum. Þórshöfn er stærsti bærinn í Færeyjum, og það hefur líka verið þangað, sem flest unga fólkið af eyjunum, hefur sótt. Þórshöfn er verzlunarmiðstöðin, og þaðan er eyjunum stjórnað innbyrðis. Höfn- in frábær, og litlu húsin við bryggjurnar eru máluð í enn fallegri lit- um en í öðrum þorpum, og þau og fjöllin í bakgrunninum hafa góð áhrif á þann, sem kemur þangað í fyrsta sinn. Maður er kominn til eyjaklasa, þar sem aðstæður allar eru alveg sérstakar. Göturnar eru litlar, húsunum er jafn vel við haldið, og hvar annars staðar, en samt er allt öðru vísi byggt, byggingarnar eru svo dásamlega lausar við að fylgja nokkru skipulagi og hafa bara risið, eftir því sem andinn hefur innblásið íbúunum í það og það skiptið. En byggingarnar eru ekki það fyrsta, sem gesturinn tekur eftir, heldur umferðin. Ekki er það vegna þess að bílarnir séu svo stórir og nýir, nei heldur vegna þess að þeir keyra svo hratt og hreint út sagt kæruleysislega Vissu- lega keyra menn hratt á íslandi, en í samanburði við Færeyingana er það ekki neitt. Benzínið er stígið í botn og síðan snarhemlað við hvert götuhorn. Auk þess er þarna mikið um bíla — og sér í lagi leigubíla, ég held Færeyingar aki mest allra þjóða í leigubílum, en í Þórshöfn einni eru yfir 80 leigubílar. Það er ódýrt að aka með þeim, menn geta spurt sig áfram, hvert sem farið er, fjarlægðirnar eru ekki miklar og því ætti ekki að þurfa að nota þá oft. En, eins og gamall Færeyingur sagði við mig: „Við erum að verða dálítið latir og skemmd- ir af eftirlæti hérna, en það er jú anzi gott að láta sér líða vel í landi, þegar maður hefurstritaðsvonalengi úti á hafinu.“ Klakksvík er sá bær, sem „Drottningin“ kemur næst til á siglingunni frá Danmörku til íslands. Klakksvík hlýtur að vera fegursti staðurinn á eyjunum, já, einn fegursti staður, sem ég hef nokkru sinni séð. Djúpt inni í firði með snarbröttum slúttandi grasbökkunum í þeim grænustu litum, sem hægt er að hugsa sér liggja litlu fallegu húsin í Klakksvík hringinn í kring um höfnina. Klakksvík er hjarta færeysku fiskveið- ana. Lífið í kringum fiskinn setur svip sinn á allt, öll tilvera bæjarins snýst í kringum höfnina, bátana og fiskinn. — En, eins og í Þórshöfn, aka menn hér líka í bílum, og það er enn þá undarlegra í Klassvík, því hér er aðeins 15 km vegaspotti til þess að keyra á og samt eru bílarnir um 300. Með báti til laugardagsdansleikjanna. Hvað gerir æskan, sem heldur kyrru fyrir í Færeyjum, við hvað skemmtir hún sér? Þar hafa atvinnumöguleikarnir mikil áhrif, og þa auðvitað fyrst og fremst fiskurinn, sem fangar flesta. Ungu stúlkurn- ar á eyjunum er mjög svo einmana, þegar piltarnir þeirra eru lang- tímum saman úti á sjó. Af því leiðir, að stúlkurnar lesa mikið og fara oft í bíó, en það vekur dálitla undrun, þegar þær segja, að þeirra að- alfrístundagaman sé að fiska. En auðvitað er annað, sem hægt er að skemmta sér við, í Klakksvík er mikill áhugi á kappróðrum, og hvert sumar eru slíkir kappróðrar háðir um gervallar Færeyjar. Stúlkurni ar frá Klakksvík taka þátt í þeim, af miklum áhuga, og árangurinrí er einnig góður. Eitt af félögunum frá bænum hefur unnið stóra sigra í sumar. Á hverjum báti, sem þátt tekur í keppninni, eru sex ræðarar og einn fyrirliði. Fyrir þessa kappróðra er æft allt vorið og oftast nokkra tíma á degi hverjum, en auk þessarar frístundaiðju er klifið í fjöllunum. Það eru sérstaklega sunnudagarnir, sem notaðir eru á þennan hátt.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.