Fálkinn - 02.10.1963, Qupperneq 19
Hitti ung færeysk stúlka pilt á laugardagskvöld á
dansleik, er það ekki óvenjulegt, að hann spyrji:
„Eigum við að fara upp í fjöll á morgun?“ Já,
þetta er álíka venjulegt og í öðrum löndum er
venjan að ákveða að fara í bíó með þessum nýja
kunningja sínum. Það er dálítið annað að dansa
í Færeyjum, en annars staðar. Ekki svo að skilja,
að maður dansi öðru vísi, eða spiluð séu önnur
lög, nei, þar er twist og rokk af nýjustu gerð! En
manneskjurnar, sem koma á dansleikinn, hvernig
þær koma og undirbúningurinn sjálfur, allt er
þetta öðruvísi. Á íslandi, sem og á flestum öðrum
stöðum, er bíllinn tekinn og ekið til einhvers þess
staðar, sem haldið er að hægt sé að láta sér líða
vel. En í Færeyjum verður að búa vig vel undir
þetta, það er nefnilega ekki hægt að aka mikið í
í bílum, og því verður að taka bátinn og halda á
dansleik. Og eins og allir vita, tekur það sinn tíma,
að komast á áfangastað á smábáti. Úr öllum átt-
um kemur fólk og dansfíknir unglingar, í drekk-
hlöðnum bátum til Þórshafnar á laugardagskvöld-
um. Oft er lagt upp í tvísýnu veðri, og oft hendir
það, að veðrið versnar um kvöldið, og fólkið verð-
ur að vera næturlangt í Þórshöfn. Það er farið,
þótt veðrið sé ekki sem bezt, en allir vita, hvenær
veðrið er orðið lífshættulegt, og það hefur ekki
kíomið oft fyrir, að unglingar hafi komizt í hann
krappan á heimleið af dansleik. Svo við snú-
i um okkur að heimferðinni, þegar við erum annars
I' staðar og biðjum stúlku um að leyfa okkur að
1 kieyra hana heim, já, þá er það aftur bíllinn og inn-
í an skamms höfum við skotið henni heim. En í
Færeyjum verða piltarnir að „keyra“ stúlkurnar
sínar heim á bátum, og það tekur töluverðan tíma,
ein stúlkann ætlar til Klakksvíkur og önnur til
einhvers fiskiþorpsins á suðurströndinni, þannig
Framh. á bls. 34.
Þessi mynd gæti vissulega verið tekin í fjallshlíS
ofan viS íslenzkt fiskiþorp, nema hvað hausinn á
hrífunni er örlítið frábrugðinn þeim, sem við eig-
um að venjast.
Þessi mynd var ekki tekin á Austfjörðum í síld-
inni í sumar. Það er víðar Guð en í Görðum og
þessi mynd er tekin á Tveröy. (Ljósm. Lars And-