Fálkinn - 02.10.1963, Síða 20
C.
\Jy /ispursmey
á hálum brautum
Hinn óskráði sími Masons
hringdi. Hann tók tækið upp.
Drake var í símanum. „Við vor-
um eltir til bústaðar Mínervu
Mindens."
„Hvernig veiztu það?“
„Þeir hafa tæki, sem þeir
geta smeygt upp á púströrið á
bílnum. Það drúpa úr því drop-
ar af litverpu efni. Með því að
hafa gleraugu, sem gera þessa
dropa sýnilega, geta þeir elt
bíl þó að þeir séu fimmtán
mínútum á eftir honum.“
„Og þú veizt, að þetta var
á þínum bíl?“
„Já, það var á mínum bíl.“
Mason var búinn að fjalla
um mál síðasta skjólstæðings
síns þegar síminn hringdi þrem
snöggum hringingum til merkis
um að símastúlkan hefði mikil-
vægt samtal við hann. Della
tók upp tækið og svaraði: „Já,
Gertie,“ sneri sér síðan til
Masons. „Tragg lautinant,"
sagði hún.
Mason tók upp tækið. „Já
lautinant.“
Tragg sagði: „Ég hef séð í
gegnum fingur við þig í dag,
Mason, og ætla að gera það
svolítið lengur.“
„Já,“ sagði Mason þurrlega.
„Ég vona að þetta sem þið sett-
uð á púströrið á bílnum hans
Drakes hafi ekki skemmt
hann.“
„Nei, hreint ekki, hreint
ekki,“ sagði Tragg.
„Ég geri ráð fyrir,“ sagði
Mason, „að þú ætlir að gera
mér einhverja fleiri greiða og
svo komist ég að því seinna, að
þetía voru bara gildrur."
„Þetta er nú nokkur, sem þú
getur hreint ekki staðizt,
Perry.“
„Hvað er það?“ spurði Mason.
Tragg sagði: „Ég hélt að þú
mundir ekki geta verið nógu
fljótur á leiðinni hingað, svo
að ég sendi lögreglubíl. Hann
ætti að koma til þín eftir fá-
einar sekúndur.“
Tragg lagði á. Aftur hringdi
síminn, nokkrum snöggum,
stuttum hringingum. Della
Street tó:k símann og sagði:
„Já, Gertie?“ sneri sér síðan til
Masons. „Það er einkennis-
klæddur lögregluþjónn í fremri
skrifstofunni. Hann er á lög-
reglubíl og hefur fyrirmæli
um að fara með okkur bæði á
lögreglustöðina tafarlaust.“
Mason og Della flýttu sér út
í lyftuna. Lögregluþjónninn
fylgdi þeim út að gangstéttinni,
en þar sat annar lögreglumað-
ur undir stýri á lögreglubíl.
Mason og Della fóru upp í bíl-
inn og hann þaut af stað út í
umferðina. Þegar þau námu
staðar við lögreglustöðina, sagði
ökumaðurinn: „Takið bara lyft-
una upp á þriðju hæð. Það er
skrifstofa Traggs.“
Lyftuþjónninn beið eftir
þeim. Á þriðju hæð var lög-
reglumaður og hann benti með
þumalfingrinum að skrifstofu
Traggs. „Gangið beint inn,“
sagði hann.
Mason gekk á eftir Dellu
Street inn í herbergið og snar-
stanzaði. „Hamingjan góða,
fröken Ambler,“ sagði hann.
>,Ég var sannarlega orðinn
áhyggjufullur út af yður. Segið
mér hvað kom fyrir, og ...“
Della Street tók í ermi Ma-
sons.
Konan, sem sat við skrifborð
Traggs lautinants leit kulda-
lega á Mason, sagði síðan með
rómi: „Herra Mason,
ih
„Ég er Minerva Minden,“
sagði hún. „Þér hafið verið að
reyna að hafa samband við mig,
en ég vildi ekki tala við yður.
Ég vissi ekki að þér væruð svo
innundir hjá lögreglunni að þér
gætuð komið því í kring svona.“
Mason sagði: „í rauninni
hafði ég alls enga hugmynd
um að þér væruð hérna, ung-
frú Minden. Tragg lautinant
hringdi í mig og bað mig að
koma.“
„Jæja þá,“ sagði Mason og
sneri sér að Dellu Street. „Er
þetta konan sem var í skrifstof-
unni hjá okkur, Della?“
Della Street hristi höfuðið.
„Það er mismunur í útliti, sem
einungis kvennmanni er trú-
andi til að sjá. En líkingin er
alveg furðuleg," sagði hún.
„Mér er fullkunnugt um lík-
inguna,“ sagði ungfrú Minden.
„Ef þér skylduð hafa áhuga á
því, þá hefur hún verið að
reyna að hafa af mér með hót-
unum.“
„Hvað eigið þér við?“
„Ég á við það, að Dorrie
Ambler telur til skyldleika við
Harper Minden, Manninn sem
ég erfði. Hún hefur legið í
mér að láta henni eftir arfahlut
og hótað að koma mér í þannig
lagaða klípu, að ég yrði fegn-
ust því að kaupa hana af mér.“
„Hafið þér séð hana?“
„Ég hef talað við hana í síma
og ég hef------ja, satt að segja
setti ég njósnara á hana.“
Mason sagði: „Það er önnur
saga en ég hef heyrt.“
„Það finnst mér trúlegt,“
sagði hún. „Dorrie Ambler hef-
ur sett á svið nokkur atvik
til að skapa mjög sannfærandi
grundvöll fyrir kröfum sínum.
Þessi skothríð á flugvellinum
var snjallt uppátæki. Ef ég
hefði ekki áttað mig í tíma,
hefði aðstaða mín orðið erfið.“
1 stað þess að halda fram að
um mistök væri að ræða og fá
Dorrie Ambler dregna fram,
svo að hún gæti opinberlega
lýst yfir að þessi óvenjulegi
svipur með okkur stafaði af
skyldleika, tók ég á mig sökina
og lét sekta mig.“
Mason sagði: „Ég ætla að
20 FALKINN