Fálkinn - 02.10.1963, Síða 23
lagt tólið að eyranum, þegar
hann sagði:
— Hvernig vildi þetta til?
Hvers vegna hringdir þú ekki
í mig? Hvernig vogar litla tíkin
sér að gera slíkt án viðvörunar?
— Sjáðu nú til, James, þakka
þér fyrir stuðninginn, en þetta
er ekki þess virði. Ég á við, að
þú skalt ekki æsa þig upp út af
þessu og gerðu nú ekki neitt
vanhugsað.
ar og það hafði dregið úr á-
hyggjum hans út af húsnæðis-
málum mínum.
Nú sagðist ég ekki vera búin
að koma mér fyrir og að ég
vildi helzt bíða, þangað til allt
væri komið í lag.
Hingað til hafði ég komizt
hjá því, að láta hann hafa heim-
ilisfangið, en nú bað hann á-
kveðið um það, og ég var neydd
til að finna upp á einhverju.
Ég gat ekki skýrt frá því, aö
ég hefði neyðzt til að hætta eft-
ir mánuð, hvort sem væri — en
ég sagði að ég vtari ekki vel
frísk og að ég þarfnaðist dálít-
illar hvíldar.
Það varð þögn, og svo sagði
James áhyggjufullur:
— Kæra Jane, þú ert þó ekki
alvarlega veik? Ef ég hefði vit-
að, að það væri eitthvað að þér,
þá hefði ég séð um, að þú værir
heima — mér finnst eins og ég
hafi pískað áfram veikan
hest......
Ég gat ekki stillt mig um að
hlæja.
— Svona skalt þú ekki hugsa.
Það var alveg rétt hjá þér að
láta sem ekkert væri, það hefur
hjálpað. — Nú flytur þú nátt-
úrlega til pabba þíns?
Ég sagðist helzt vilja vera
þar sem ég væri.
— Ég held ég komi þangað
og sannfæri sjálfan mig um, að
allt sé í lagi með þig, sagði hann
skyndilega.
— Nei, nei, gerðu það ekki.
— Hvers vegna ekki, spurði
hann tortrygginn. — Er eitt-
hvað að staðnum? Það er þó
snyrtileg íbúð? Það sagðir þú
mér.
Ég flækti mig betur og betur
í eigin lyganet. Ég hafði leyft
mér að lýsa íbúð vinkonu minn-
— Ég skal bjóða þér á næst-
unni, James, og þúsund þakkir
fyrir allt.
— Hafðu samband við mig,
skipaði hann strangur.
Ég lagði tólið á og fór aftur
til herbergis míns. Það leit
hræðilega út, því að ég hafði
ekki megnað að taka til. Skyndi-
lega kom mér það í hug, að það
væru bara tvær vikur til jóla.
Það var dapurleg hugsun. Það
er ekki neitt ömurlegra en jól
nálgist og maður hafi ekki
neinn til að kaupa jólagjafir
handa.
En það voru heimskulegar
hugsanir. Toby myndi koma
aftur auðvitað. Ég fór aftur nið-
ur á herbergi hans til að gá,
hvort hann væri kominn. Allt
var eins og þegar hann yfirgaf
það og fór í klúbbinn í fyrra-
kvöld.
Hversdagsföt hans, gráar
flannelsbuxur og slitinn jakki
lágu á rúminu. Aðeins borðið,
sem hann við, var eins og það
átti að sér að vera.
Mavis, hugsaði ég skyndilega.
Hún veit ef til vill......Ég
hljóp upp stigann og bankaði á
hurð Mavis.
— Mavis, hefur þú nokkra
hugmynd um, hvar Toby er?
— Toby? Er hann ekki í her-
berginu sínu?
— Hann var ekki heima í
nótt, sagði ég og reyndi að
dylja, hversu óróleg ég var.
— Hann er kannski í heim-
sókn hjá einhverjum vinum
sínum — hann fer þangað við
og við. Þú ert þó ekki óróleg,
litla vinkona? Það er allt í lagi
með hann, hann er ekki svoleið-
is.
Ég fór aftur niður í herberg-
ið mitt, ámóta áhyggjufull.
X.
„ Þar sat ég mikinn hluta dags.
Ég gleymdi að borða hádegs-
verð. John var í herberginu við
hliðina. Hann var í huga mér
allan daginn. Þegar fór að
dimma, sá ég á litla glugganum
milli herbergjanna, að hann
kveikti ekki ljós og það skelfdi
mig á vissan hátt. Það var óeðli-
legt, að hann skyldi sitja þarna
í myrkrinu. Hvað var hann að
gera?
Þegar nokkur stund var liðin,
heyrði ég að hann stóð á fætur
og gekk að langveggnum. Svo
heyrði ég^ að barið var laust og
hikandi. Ég rétti fram höndina
og svaraði því.
Við mættumst fyrir utan á
stigapallinum. Tárin runnu
niður andlit hans. Augnablik
stöðvaðist eitthvað innra með
mér svo féllumst við í faðma.
Við fórum inn í herbergið
mitt og settumst á gólfið og
þerruðum tárin hvort af öðru.
Svo rak ég upp aumkunarverð-
an hlátur, því að mér varð
skyndilega Ijóst, hvernig við
komum fyrir. Stór, klunnaleg-
ur, þeldökkur maður og stúlka,
sem bæði sátu fyrir framan gas-
ofn og grétu.
— Góði, hættu, bað ég loks.
— Við getum ekki haldið svona
áfram, við höfum ekki fleiri
vasaklúta.
Fyrirgefðu, en mér þykir
þetta svo leitt, endurtók hann
aftur og aftur.
— Ég veit það. Það gerir ekk-
ert til.
— En ég kallaði þig vændis-
konu.
— Þú hefðir vel getað kallað
mig eitthvað verra. En alla
vega er ég ekki nein vændis-
kona, það veizt þú, og það er
það eina, sem máli skiptir.
— Ég var reiður, þegar ég
sagði það.Og þú fyrirgefur mér?
endurtók hann.
— Já. Nú verðum við að fá
okkur eitthvað að borða. Ég hef
ekki smakkað mat í allan dag.
Meðan ég náði í brauð, smér
og mjólk, sat hann á gólfinu
með slútandi höfuð og starði á
teppið og fylgdi mynstrinu með
vísiíingri. Þegar ég rétti honum
matinn, þá ýtti hann honum frá
sér og fór að gráta aftur.
— John, í guðanna bænum.
Hvað er nú að? Allt er gleymt
og afstaðið.
— Það er ekki afstaðið, kjökr-
aði hann. — Ég hef ekki sagt
allt.
Hann greip um hendur mín-
ar..
— Segðu að þú fyrirgefir
mér.
— Segðu hvað þú hefur gert.
— Fyrirgefðu mér fyrst.
— Ég fyrirgef þér. Segðu það
núna.
Hann losaði takið um hendur
mínar.
— Hann kom inn til mín,
þegar þú varst farin, sagði hann.
— Hann sagðist ekki vilja vera
einn. Spilaðu fyrir mig, sagði
hann. Ég spilaði ekki fyrir
hann. Ég talaði ekki einu sinni
við hann. Ég var veikur, veikur
í höfðinu. Hann sagði eins og
þú, hvað er það, hvað er það.
Hann þagnaði og kreisti
brauðbita milli fingranna
— Ég sagði honum að þú
værir vændiskona, hvíslaði
hann.
— Hverju svaraði hann?
— Hann kallaði mig lygara.
Hann varð mjög reiður.
— Og svo?
— Ég varð einnig reiður, reið-
ur af því að hann kallaði mig
lygara. Svo að ég sagði honum
það.
— Sagðir honum hvað? spurði
ég alveg rugluð.
Hann setti brauðið á breiðan
lófann og lokaði honum var-
lega eins og það væri lifandl.
— Frá barninu, sagði hann
lágt.
X.
Það var eins og ég væri að
falla saman. Ég gat heyrt hvern-
ig gaslogarnir hvæstu í kyrrð-
inni. Það var eins og John og
allt herbergið væru í mílufjar-
lægð — jafnvel rödd mín
hljómaði eins og hún væri úr
fjarlægð.
— Hvernig gazt þú vitað —
það?
— Mig grunaði það allan tím-
ann. Þú kastaðir upp á hverj-
um morgni. Svo fórstu að
þykkna undir belti, þá vissi ég
það fyrir víst.
Ég sat eins og ég væri lömuð.
Mér datt ekki neitt í hug til að
segja.
— Þegar ég sagði, að þú
værir vændiskona, trúði hann
því ekki, svo að ég sagði við
hann:
Hvers konar vinnu heldurðu
að hún stundi? Nú er sunnu-
Framh. í næsta blaði.
FALKINN
23