Fálkinn


Fálkinn - 02.10.1963, Síða 24

Fálkinn - 02.10.1963, Síða 24
Hispursmey Framhald af bls. 21. Dorrie Ambler væri rétt að þér hefðuð Dorrie Ambler í hópn- um og sæjuð þá, hvað hún segði.“ „Ég skil, ég skil. Við erum bara að rannsaka málið, það er allt og sumt,“ sagði Tragg laut- inant. „Jæja, nú er ég farin. Ef þér eigið eitthvert erindi við mig framvegis, þá skuluð þér koma með handtökuheimild.“ „Ég tel víst,“ sagði Máson við Tragg, „að þú hafir viljað sjá hvernig okkur yrði við að sjá stúlkuna óvænt, og hafir þess vegna komið þessu svona fyrir og tekið samtalið upp á band.“ „Þér skjátlast ekki í því,“ sagði Tragg. „Ég vildi sjá hvern- ig ykkur brygði við, er þið kæmuð inn í herbergið. Nú skilst mér að það sé mjög sterk- ur svipur með Dorrie Ambler og Mínervu Minden.“ Hann brosti og bætti við: „Allt í lagi, það eru frímínútur.“ Minerva skálmaði til dyra, snerist snögglega á hæli, gekk til Masons og rétti honum hönd- ina. „Mér fellur vel við yður,“ sagði hún, brosti við Dellu Street, sneri baki að Tragg og fór út. „Þetta var dálagleg skvetta," “tagði Mason við Tragg. „Það má nú segja,“ sagði Tragg, en ég varð að fá að vita vissu mína um hvað þær væru líkar. Ég þykist nú vita, að þær séu eins og steyptar í sama móti,“ sagði Tragg. „Hvað fannst þér, Della?“ „Hárið er ekki alveg eins,“ gagði Della Street. „Hún málar sig ekki eins — æ, það eru gmámunir, sem kvenmaður tek- ur eftir, en þær eru sannarlega mjög líkar. Raddirnar eru það, sem á milli ber. Dorrie talar hratt og röddin er hvell.“ „Jæja, þakka ykkur kærlega,“ sagði Tragg. Ég verð að gera þetta svona, Perry, af því að þú fæst ekki til samvinnu á annan hátt. Bíllinn fer aftur með ykkur til skrifstofunnar.” Mason og Della Street komu við í skrifstofu Páls Drake á heimleiðinni frá lögreglustöð- inni. „Ég hef fréttir handa þér, Perry.“ „Eins og hvað, Páll?“ „Það er búið að finna morð- vopnið? Það er skammbyssa með hlaupvídd 22. Hún fannst falin í ljóslituðum Cadillac og var keypt fyrir tveim mánuð- um af Dorrie Ambler. Morð- 24 FÁLKINN kúlan samsvarar reynslukúlum úr þessari skammbyssu.“ „Hún hefði getað verið að verja sig þegar þeir reyndu að ræna henni,“ sagði Mason. „Og drap einkanjósnara, sem var að reyna að þvinga út úr henni fé?“ „Undarlegir hlutir hafa gerzt,“ sagði Mason. „Heldurðu að Dorrie Ambler hafi verið rænt?“ spurði Drake. „Ég er að hugsa um tímann. Það hlýtur að hafa verið fjandi erfitt fyrir þá að koma henni út úr húsinu og niður stigana." „Ég hef líka verið að hugsa um það,“ sagði Mason. „Mér er að detta í hug, hvort þeir hafa ekki haldið henni bara þarna í húsinu.“ „Þú átt við í annarri íbúð?“ spurði Drake. Mason kinkaði kolli, hugsaði sig um andartak, sagði síðan: „Fáðu að vita hverjir hafa íbúðirnar á hæðunum næst fyr- ir ofan og neðan. Það er rétt hugsanlegt.“ Þegar Mason kom á skrifstof- una morguninn eftir, sagði Della: „Góðan daginn, húsbóndi. Ég geri ráð fyrir að þú hafir séð blöðin. Þú ert heldur betur á forsíðunum!“ Mason tók við blaðinu, sem Della fekk honum. „Ójá,“ sagði hann, „víst er það allt þarna með — ekki bara það sem hún sagði þeim, heldur líka nokkrar skarplegar getgátur. Þú veizt, ég er alltaf að segja við sjálfan mig, að þetta þurfi ekki að hafa verið mannrán, það hefði getað verið sett á svið.“ „Þar á meðal morðið?“ „Nei, ekki morðið,“ sagði Mason. „Við vitum ekki hvernig á morðinu stendur, en höfum getgátu við að styðjast til að byrja með. Hún vildi láta flenna sögirna um tvífarann yfir öll blöðin. Hún sagðist vilja það, af því að hún vildi ekki vera blóraböggull út af glæp, sem hún hefði ekki drýgt.“ Nú er líka vel hugsanlegt, að það hafi ekki verið aðalástæð- an. Aðalástæðan gæti verið, að hún hafi viljað aglýsa líkingu sína og Mínervu Minden og síðan koma því inn hjá blaða- mönnum, að þær væru skyldar." Della Street kinkaði kolli. „En,“ sagði Mason, „vegna snarræðis Mínervu Minden mistókst bragðið Hvað mundi synduð stúlka gera í því til- felli?“ „Ja, nú get ég ekki svarað,“ sagði Della Street. „Þú heldur þó ekki að hún hafi sjálf komið þessu öllu í kring? Ráninu á sjálfri sér og —“ „Það hefði veriS hérumbil ómögulegt að koma stúlkunni út úr húsin. Ég get ekki varizt þeirri hugsun, að þetta hafi allt verið hluti úr áætlun — nema morðið. Morðið gerði strik í reikninginn.“ Það var barið á hurðina á einkaskrifstofunni á sérstakan hátt, og að gefnu merki frá Ma- son opnaði Della fyrir Drake. „Hvað er að frétta, Páll?“ spurði Mason. „Daginn fyrir brottnámið spurði maður, sem kvaðst heita William Camas eftir íbúð. Hon- um var sagt, að það væri ein laus á áttundu hæð, íbúð nr. 8Ý5. Hann leit á hana og festi sér hana með því að greiða fyrirfram hundrað dollara, með því skilyrði, að hann skyldi und- irrita leigusamning innan þriggja daga eða glata fyrir- framgreiðslunni. Húsvörðurinn lét hann hafa lykil.“ „Og í hverhig ásigkomulagi er íbúðin núna? Til hvers bend- ir það?“ spurði Mason. „Nokk- ur fingraför?“ ,Vertu ekki svona barnaleg- ur,“ sagði Drake. „Þér datt þetta í hug og það gerði lög- reglunni líka. Hafi lögreglan fundið eitthvað, þá er hún ekki að útbásúna það. Það er ó- mögulegt að vita, hvort þeir hafa talað við Camas." „Þú hefur ekki getað fundið hann?“ „Ekki urmul af honum,“ sagði Drake. „Hann _gaf upp heimilisfang í Seattle. Ég lét at- huga það, og húsið er ekki til.“ Mason sagði: „Fari það bölv- að, Páll, ég var að segja áðan, að þeir hefðu ekki getað komið henni út úr þessari íbúð nauð- ugri. Þessi kvenmaður er í hættu.“ „Nei, ekki lengur,“ sagði Drake. „Komi eitthvað fyrir hann, þá er það búið og gert. Ef hún er lifandi ennþá, þá er það vegna þess, að krefjast á lausnargjalds fyrir hana eða hafa út úr henni fé með hótun- um. Þú getur ekkert gert Perry nema bíða og sjá hvað setur." Mason þagði nokkrar sek- úndur, sagði síðan: „Þá það, Páll.“ Drake leit á Dellu Street og fór síðan út. Mason tók að lesa yfir bréf. Þegar hann hafði lokið einu bréfi og var hálfnaður með ann- að, gafst hann upp og tók að ganga um gólf í skrifstofunni. „Della, ég get ekki haft hugann af þessu — Reyndu að ná Tragg lautinant í símann." Hún fór að símanum og kink* aði kolli til Masons fáum augna- blikum síðar. „Hann er í sím- anum,“ sagði hún. Mason sagði: „Halló, lautin- ant. Perry Mason hérna megin, og ég hef áhyggjur út af Dorrie Ambler. Ég er hreint ekki ánægður með gang málanna." „Hver ætli sé það?“ sagði Tragg. „Hvað með þessa íbúð nr. 805?“ „Skjóstæðingur þinn var ekki fórnarlamb heldur með í leikn- um,“ sagði Tragg. „Hún fór frá ibúð 907 niður stigann og síðan inn í íbúð 805. Hún beið þar átekta þangað til leiðin var orðin greið aftur. Vitni sá hana fara út síðar af fúsum og frjáls- um vilja á eigin fótum.“ Mason sagði: „Þú hefur létt af mér fargi, lautinant. Ég hef talið möguleika á því, að þetta væri þáttur í einhverju víðtæk- ara ráðabruggi." „Já, Perry, það er möguleiki, sem verið er að rannsaka. Og auðvitað gefur það enga skýr- ingu á þessu morði. Svo er líka hugsanlegt, að þessu öllu hafi verið komið í kring til að varpa ryki í augun á okkur í sambandi við líkið þarna í íbúð skjólstæð- ings þíns. Ef það reyndist svo, þá værum við ekki hrifnir af því.“ „Og ekki væri ég horfinn af því,“ sagði Mason. „Hvað sem því líður,“ sagði Tragg, „þá get ég sagt’ þér þetta: Ég held þú getir þvegið hendur þínar af þessu máli. Þegar skjólstæðingur þinn fór út úr þessari íbúð, fór hann bara niður í íbúð 805. Síðar um kvöldið sá kona, sem á heima á sjöttu hæð, skjólstæðing þinn fara niður í lyftuni. Kon- an þekkir Dorrie Ambler og hefur talað við hana. Dorrie var hrifin af hundi þessarar konu, og hundurinn var hændur að henni. Þetta er skrýtinn hund- ur. Hann urrar ef fólk gerir sig líklegt til að klappa honum. Jæja, þessi kona ber að hún hafi séð Dorrie Ambler fara niður með dökk gleraugu, eins og hún vildi ekki láta þekkja sig. En hundurinn nuddaði sér upp við fótinn á henni og dingl- aði skottinu. Þá staðnæmdist lyftan og Dorrie flýtti sér út. „Konan sá, að það beið mað- ur í bíl við gangstéttina og Dorrie stökk upp í og var ekið á burtu.“ „Fingraför?" spurði Mason. „Engin,“ sagði Tragg. „Það er næsta furðulegt. Báðar íbúðirn-

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.