Fálkinn


Fálkinn - 02.10.1963, Page 26

Fálkinn - 02.10.1963, Page 26
LITIA SAGAN EFTIR WILLY BREIIMHOLST SNJALL LEIKUR Það var mikil kvöldveizla hjá gullashbaróni Frederich von Pheddersen. Hinn ungi Fuppensvans meindýraeiðir hafði samkvæmt eigin ósk fylgt hinni gömlu, ríku ekkju- aðalsfrú Karlottu von Schna- belwasser til sætis. — En hvað þetta er fallegur skartgripur, sagði hinn ungi, kurteisi meindýraeiðir við ekkjuaðalsfrúna, meðan þjón- ustustúlkan bar drykkinn inn. — Já, finnst yður það ekki, sagði gamla ekkjuaðalsfrúin og lét meindýraeiðinn þreifa á demantsslegnu platínuhálsmen- inu. — Þetta er gamall erfðagrip- ur, hann hefur verið í eigu ætt- arinnar í meira en tvö hundruð ár, langalangalangamma mín bar hann fyrst á hirðballi hjá Friðriki sjöunda. — Þér meinið það ekki? Hinn ungi meindýraeiðir lét áhugasamur finguma snerta gimsteinana til að telja, hve margir þeir væru. — Hvað skyldi svona gripur vera mikils virði? spurði hann og reyndi að láta röddina hljóma eins kæruleysislega og unnt var. — Það er virt á fimmtíu þús- und, sagði hin gamla ekkjuað- alsfrú og var hrifin af þeirri at- hygli, sem hálsmen hennar vakti. Hinn ungi meindýraeiðir flautaði lágt. — Fimmtíu þúsund, endurtók hann. Þér hafið auðvitað góða læsingu á því? Ekkjuaðalfrúin sýndi honum, hve auðvelt væri að opna lás- inn. — Já, það verð ég að segja, sagði hinn ungi meindýraeiðir og grandskoðaði lásinn. Þetta er svei mér góður lás, en það væri líka afarslæmt að tapa svo dýrmætum grip, ekki satt? Jú, því var aðalsfrúin sam- mála. Er borðhaldinu var lokið, dansaði hinn töfrandi ungi meindýraeiðir við gullaschbar- ónessu Rebekku von Phedder- sen. Seinna um kvöldið bauð hann kurteis hinni öldnu aðals- frú upp í marzuka, skyndilega slökknaði ljósið, og þegar það var kveikt aftur, rak aðalsfrú- in upp óp. — Hálsmenið mitt, stundi hún. Það er horfið. — Óhugsandi, sagði ungi meindýraeiðirinn, — engum hér myndi koma til hugar að stela skartgrip. Það fóru allir að skríða á gólfinu til að leita að því, en horfið var það. Menn urðu að horfast í augu við það, að það var þjófur meðal gestanna. — Einhver hlýtur að hafa stungið því í vasann í hreinum misgripum, sagði gullashbarón IKOSITA * * * von Pheddersen, en nú veit ég, hvað við gerum. Jacob, náðu I silfurbakka. Þjónninn náði í silfurbakka og setti hann á mitt borðið. — Nú slökkvum við ljósið í þrjár mínútur, hélt baróninn áfram, þjófurinn fær þá tæki- færi til að láta hálsmenið í þennan silfurbakka, og veizlan getur haldið áfram eins og ekk- ert hafi í skorizt. Ljósið var slökkt. Þrjár mín- útur liðu, og það var kveikt aft- ur. Allir kipptust við. Silfurbakkinn var horfinn. — Ótrúlegt, tautaði gullasch- baróninn, en þjófurinn skal fá síðasta tækifæri. Ég slekk ljós- ið einu sinni enn, og hann á að leggja báða hina stolnu hluti á borðið. — Það gagnar ekki sagði gamla aðalsfrúin, þá stelur hann bara nýjum hlut. — Alls ekki, sagði gullasch- baróninn og greip um tvo silfur- ljósastjaka á borðinu. Við höld- um öll fast um verðmæti. Hver gestanna valdi sér hlut til að halda fast utan um. — Sjáum til, sagði gullasch- baróninn og horfði ánægður í kringum sig í salnum, nú gæt- um við allra verðmæta, hér er ekki meira, sem hann getur stungið á sig. En hann hafði á röngu að standa. Þegar ljósið var kveikt eftir þrjár mínútur, var hinn töfr- andi ungi meindýraeiðir Fupp- ensvans horfinn með hina fallegu gullaschbarónessu! 26 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.