Fálkinn - 02.10.1963, Blaðsíða 35
Danna fannst hann bera ábyrgð á hinum handtekna Fáfni.
Þegar allt kom til alls hafði hann tekið þátt í að handsama
hann. Þannig hafði hann haft auga með, staðnum, þar sem
fanginn stóð. Hann sá að Fáfnir var leiddur inn í kastalann...
og nokkrum augnablikum síðar, sá hann Áka læðast á eftir
honum... 1 augum Danna var þetta ekki góður fyrirboði,
svo að hann elti Áka hiklaust og sá hann loka hurðinni hljóð-
lega. Danni beygði sig niður og lagði eyra við skráárgatið.
Það, sem hann heyrði, var vel þess virði að hlera eftir. „Ég
skal segja þér, að Sigurður Víkingur á von á flota víkinga-
skipa eftir nokkra daga,“ heyrði hann Fáfni segja. „Og þú
getur imyndað þér, hvað þetta þýðir. Sigurður er hefnigjarn
og hann mun ekki svífast neins til að ná þessum kastala aftur.“
Áki hneig uppgefinn niður á bekk, sem var þar nálægt." „Ég
get ekki gert mér vonir um, að verjast heilum flota," stundi
hann. „Þetta er ekki eins vonlaust eins og þú heldur,“ hélt
Fáfnir áfram. „Þú átt um tvo kosti að velja..."
Áki horfði sljógum augum fram fyrir sig. Hann efaðist ekki
um það eitt augnablik, að eins og Fáfnir sagði, þá væri floti
víkingaskipa á leiðinni og innrás myndi fylgja i kjölfar komu
i þeirra. „Þú sagðir að ég ... ég .. ættj um tvo kosti að velja,"
stundi hann. „Hverjir eru þeir?“ „Fyrst geturðu sigrað Sigurð
Víking og menn hans,“ útskýrði Fáfnir. „Þú hefur hesta og
vopn. Hann hefur það ekki. Það ætti að vera auðvelt. Svo verð-
ur þú að hreinsa burtu hið brunnaskip, svo að víkingarnir séu
ekki viðbúnir. Bjóddu svo út her og undirbúðu árásina." Áki
velti fyrir sér uppástungu hans augnablik. Honum líkaði ekki
hugmyndin um að berjast við Sigurð... Ef satt skal segja
vildi hann ekki berjast við neinn. „Ég hef aðeins málalið hér,“
svaraði hann. „Ég held ekki, að ég geti treyst þeim til þessara
starfa." „Þá er annar kostur fyrir hendi,“ hélt Fáfnir áfram.
„Þú gætir reynt að friðmælast við Sigurð. En þetta verður að
framkvæma með miklum klókindum. Ég er reiðubúinn að gerast
milligöngumaður, ef þú vilt...“ Áki tók þessu boði fégins
hendi og það varð að ráði að Fáfnir skyldi snúa sér að þessu
strax um kvöldið.... Danni læddist burt. hann hafði heyrt
nóg...
f
Lesendur eru beðnir afsökunar á því að hér verður sagan af Ottó og
brúði Sækonungsins að falla niður að sinni. Ástæðan er sú, að fram-
hald sögunnar hefur misfarizt í sendingu erlendis frá.
FÁLKINN 35