Fálkinn - 02.10.1963, Qupperneq 37
PANDA DG TDFRAMAÐURINN MIKLI
Hin skjóta brottför Plútanusar, Panda og Jollypop
olli minni ringulreið meðal kaffihúsgesta en koma
þeirra hafði valdið. Fólkið var sannfært um, að það
hefði orðið fyrir göldrum og tók brátt að sýna sig
aftur. Eina merkið um komu þremenninganna var
sítrónuhrúgan sem þeir höfðu skilið eftir. „Þetta hlýt-
ur að hafa verið auglýsingabrella,“ tautaði Söngfugl
yfirþjónn. „Og þetta er ókeypis sýnishorn. Það er
hægt að búa til góðan ávaxtasafa úr þeim.“ Plút.anus
hafði flutt tvímenningana til þess staðar, sem hann
kallaði: Kyrrlátasta staðinn í „Ytriheimi.“ Nú sátu
þeir í litlu steinherbergi og umhverfis þá ríkti dauða-
kyrrð. „Með yðar leyfi þá er ég að velta því fyrir
mér, hvaða ferðamannastað við erum á,“ sagði Jolly-
pop og leit með vanþóknun á herbergið, sem var illa
búið húsgögnum. Plútanus virtist hafa náð sér fljót-
lega. „Þetta er vel einangraður staður af „Ytri stað“
að vera,“ tautaði hann. „Það er ekki að undra,“
hrópaði Panda og gægðist út um litlu gluggana, sem
voru með rimlum fyrir. „Við erum í fangelsi."
Panda og Jollypop voru mjög æstir yfir, að Plútanus
skyldi hafa flutt þá í fangelsi. Meðan Panda fór að
berja á hurðina til að draga að sér athygli varðarins,
ávítaði Jollypop Plútanus. „Sem virðulegur meðlim-
ur þjónastéttarinnar,“ sagði hann „er ég mjög hrygg-
ur yfir að vera í þessari aðstöðu. Hvað mun hinn
ytri heimur segja um þetta?“ „Ytri vitleysa,“ sagði
Plútanus. „Fyrir mann úr innri heimi er þetta mjög
fræðandi.“ Meðan hafði Panda náð athygli eins varð-
anna. „Hleyptu okkur út,“ hrópaði Panda. „Við eig-
um ekki að vera hér.“ „Þetta segja þeir allir,“ svar-
aði fangavörðurinn. „Já ... en það eru mistök að láta
okkur vera hér.“ „Þetta segja þeir líka allir,“ sagði
fangavörðurinn og gekk burt.
Útlitið var svart fyrir Panda og Jollypop. Plútanus
galdramaður hafði flutt þá í fangelsi og svo virtist
sem þeir ætluðu ekki að komast út aftur. „Ég geri
yður ábyrgan fyrir þeim hnekki, sem ég bíð,“ hrópaði
Jollypop reiðilega. „Ég krefst þess að þeir sjái svo
um að mér verði sleppt úr þessu leiðinda húsi.
Plútanus hristi höfuðið, þrátt fyrir þá staðreynd að
hann stóð á því. „Mér finnst einmitt mjög friðsælt
hér. Ef ykkur líkar ekki hér, hvers vegna farið þið
þá ekki?“ „En hurðin er læst,“ sagði Panda. „Já, ég
gleymi alltaf hvað þið eruð hjálparvana," hélt Plút-
anus áfram. „Þið getið ekki einu sinni komizt í gegn-
um læstar dyr. Ég skal opna allar dyr í þessu húsi.“
Og allar klefahurðirnar opnuðust augnabliki síðar ...
FALKINN