Fálkinn - 14.09.1964, Síða 4
Krafa íslenzkra
íþróttaunnenda.
Háttvirta vikublað!
Til eru þeir menn hérlendis
sem reyna að gera lítið úr hinni
íslenzku íþróttahreyfingu.
Þetta eru þeir menn, sem
lítið leggja til málanna en tala
sem hæst þegar illa tekst til á
móti erlendum liðum. Þessir
menn skilja ekki að það getur
tekið talsverðan tíma að vinna
upp sterk kapplið hér og ein-
staklinga. Við íslendingar eig-
um ekki neitt verri íþrótta-
menn en erlendar þjóðir en
aðstaða þeirra hér til að leggja
stund á íþróttir er slík að ekki
er hægt að búast við neinum
árangri. Þetta er hlutur sem
margir virðast eiga erfitt með
að kingja.
Ég hef talsvert verið að velta
þessum málum fyrir mér að
undanförnu. Og ég held að ég
hafi fundið lyftistöng fyrir ís-
lenzka íþróttahreyfingu. Ég
held að við ættum að taka að
okkur eina Olympiumleika.
Margir munu eflaust segja sem
svo að þetta mundi verða nokk-
uð kostnaðarsamt fyrirtæki en
hvað sem því Jíður þá er það
víst að fyrirtæki sem þetta
mundi lyfta íþróttamálunum
hér úr þeim leiðinlega öldu-
dal sem þær eru í.
Við tökum gjarna erlendar
þjóðir okkur til fyrirmyndar
og ég var að lesa það í ein-
hverju dagblaðanna nú fyrir
skömmu að Bandaríkjamenn
hafa hafið herferð til fjáröfl-
unar svo þeir geti haldið þessa
leiki hjá sér. Þessi herferð er
í því fólgin að hlaupið er um
landið með gerfi Olympiueld.
Þetta er gert til þess að vekja
athygli almennings á þessu
máli svo hann leggi eitthvað
fé fram að mörkum. Því ekki
að koma á svona kynningar
herferð hér með því að hlaupa
umhverfis landið, eða frá Akur-
Donald Campell nofaði K.L.G. kerti í Bluebird sinn er hann
setfi heimsmet i hraðakstri þann 17. júlí 1964 — 403,1 mílur
á klst. 648,7 km. Öll mæljjtæki í Bluebird eru og gerð af
K.L.G. framleiðandanum Smith & Sons.
KRYDDRASPID
FÆST í NÆSTU MATVÖRUVERZLUN
eyri til Reykjavíkur? Þetta
mundi áreiðanlega vekja at-
hygli og kynna íþróttirnar og
verða til þess að menn legðu
fram fé. Og þótt við mundum
kannski ekki geta haldið þessa
leiki strax hjá okkur þá
mundi safnast hér það mikið
fé að einu sinni yrði hægt að
halda veglegt landsmót líkt og
það sem UMFÍ mun halda
næsta ár að Laugarvatni.
Þetta er mál, sem þarf að
koma í framkvæmd þegar í
stað.
Svo vænti ég þess fastlega
að þið hendið ekki þessu bréfi
í ruslakörfuna heldur birtið
það sem allra fyrst.
Með beztu kveðjum og þökk.
íþróttaunnandi.
Svar:
Því aS hafa þetta boShlaup
svona langt? Þvl ekki aS byrja
smátt og hafa boShlaup umhverfis
Tjörnina og fcera síSan út kvíarn-
ar og lengja hlaupiS árlega?
Frá öðrum sjónarhóli
en venjulega.
Kæri Fálki!
Þú hjálpar stundum þegar
þér er skrifað og þess vegna
datt mér í hug að skrifa þér
og vita hvort þú getur ekki
hjálpað mér. Ég er fjórtán ára
strákur og mér finnst stelpur
mjög leiðinlegar. Þær eru svo
flottar með sig og alltaf með
stæla og mála sig í framan og
það er ekki hægt að tala við
þær. Það er ein stelpa sem fer
í taugarnar á mér. Hún á heima
rétt hjá mér og er alltaf á eftir
mér óg lætur mig aldrei 1 friði.
Strákarnir segja að hún sé
skotin í mér og það getur vel
verið en ég kæri mig ekki um
neitt svoleiðis. Hún er heldur
leiðinleg og veit ekkert um
bítlana og svoleiðis og ef mað-
ur er töff hrynur hún í rusl og
veit ekkert hvað hún á að
segja. Svoleiðis eru margar
stelpur. En hún er alltaf nærri
þar sem ég er og mér finnst
það leiðinlegt Ég get t. d. varla
farið í bíó nema hún fari
þangað líka. Hún er ekkert
svakalega ljót en mér er sama
þótt hún væri sportmódel ég
mundi ekki vÞ- á hana. Og
rK
4
FALKINN