Fálkinn


Fálkinn - 14.09.1964, Page 17

Fálkinn - 14.09.1964, Page 17
sem er heitara heldur en hérna," svaraði hann. „Það á að mynda nýjan loftvarnabyssuflokk, og Þá vantar einn foringja og um fimmtíu menn!" Það var þá farið að berjast í Norður-Afríkuí og mér datt í hug að það væri þangað, sem ég ætti að fara. Mér var annars alveg sama um það og ég sagðist vera tilbúinn til þess. Ég var svo heppinn, að ég gat fengið að taka með mér smáhóp af mönnum, sem höfðu verið í gömlu hersveit minni, og var ég mjög ánægður með það, því þeir voru beztu strákar og okkur kom vel saman. Nýi flokkurinn var staddur nálægt London, og alveg til- búinn að fara. Ég átti að stjórna framliðinu og varð því sendur undir eins af stað, með allar byssur, bíla og annan útbúnað flokksins, norður til Glasgow, þar sem við áttum að stíga á skip. Mér finnst fólkið í Glasgow gott, þó að mér tækist illa að skilja mál þess, og miklu alúðlegra heldur en fólkið I Edinborg, en Glasgow þykir mér hins vegar Ijót og leiðinleg borg. Ég bjó í stærsta, dýrasta og einu leiðinlegasta hóteli borgarinnar. Herbergið mitt var beint fyrir ofan eldhúsið. Það var júlí og mjög heitt í veðri. Auk þess var búið að láta allt dótið mitt um borð í skipið og hafði ég aðeins þau föt, sem ég var í. Ég var í stórum þungum reiðstígvélum. Ég var alveg að drepast úr hita og leiðindum, og það gekk seint að ferma. Niðri við höfnina var aðeins eitt atriði, sem gladdi Framhald á bls. 31. Hver sótraftur var á sjó dreginn til að forða Bretiun frá því að verða Þjóðverjum að bráð við Dunkerque. Þá höfðu flestir misst vopn sín og eigur.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.