Fálkinn - 14.09.1964, Qupperneq 21
sem ég kynntist af tilviljun. Hann átti heima nokkuð
ofarlega í landinu og hafði verið á nokkurra mánaða
námskeiði hjá Scotland Yard. Borgin sem hann átti
heima í var á stærð við Reykjavík og skiptist í tvö
hverfi. Annað hverfið var ákaflega frumstætt, þar
sem menn bjuggu í hinum frumstæðu kofum sínum,
en hitt hverfið var öllu skárra, því þar bjuggu hinir
innfæddu í húsum, sem hvítir menn höfðu byggt
og síðan yfirgefið. Inn í það hverfi máttu menn ekki
koma nema vera klæddir einhverjum fötum en ekki
fer alltaf mikið fyrir fatnaðinum þarna suður frá.
Þessi kunningi minn, er var Múhameðstrúar, fór með
-mig einn daginn í kynnisferð um borgina og það er
eitthvað það furðulegasta, sem ég hef séð. Þessi
kunningi minn mátti eiga fjórar konur en hann átti
víst þegar sjö eða átta, hvernig sem hann hefur farið
að sniðganga þessi lög. Og þegar við vorum í hinu
frumstæða hverfi þessarar borgar þá kom hann auga
á stúlku sem hann hafði mikinn áhuga á og ekki er
að orðlengja það hann festi sér hana og meira en
það: Hann hafði einnig komið auga á aðra sem hann
ætlaði að athuga um síðar. Hann var af efnaðri fjöl-
skyldu, og hafði þess vegna efni á að eiga nokkrar
konur.
Og fyrst við erum farnir að tala um þetta, langar
mig til að víkja að öðru. Á milli íbúanna er mikill
stéttarmunur. Þeir sem þarna ráða, eru höfðingjarnir,
og þeir sem til þeirra flokks teljast sitja og standa
eins og þeir vilja. Þessir höfðingjar eiga öll tækin og
áhöldin, sem notuð eru við veiðar og akuryrkju.
Þeirra vald yfir íbúunum er algjört.
Þetta eru oft á tíðum skemmtilegir karlar og furðu-
legir í háttum. Þeir ganga allir með húfur svona ekki
ólíkar prjónahúfunum okkar og ég er viss um að
þeir vildu gjarnan eignast slíkar húfur. En ekki vildi
ég ganga með slíkt höfuðfat í hitunum þarna suður frá.
— Hittirðu nokkra íslendinga þarna suður frá?
— Já, svo furðulega vildi til. og það er skemmtileg
saga að baki því. Hingað til landsins kom árið 1933
Eistlendingur nokkur og fór að vinna við sjávar-
útveginn. Hann var hér á fiskiskipum og gekk í
Sjómannaskólann, en rétt fyrir stríðið hafði hann
ekkert að gera og fór þá til Bandaríkjanna og var
skipstjóri þar öll stríðsárin. Hann kom hingað aftur
strax eftir stríðið var hér í tvö ár og kvæntist íslenzkri
'j konu, Fjólu Sveinsdóttur. Svo fluttu þau til Bretlands
og hann gekk í sjóherinn en þótti lítið ganga fyrir
: sér, og einn daginn seldi hann allar eignir sínar,
keypti sér skútu og ætlaði til Suður Afríku. Þegar
hann kom suður á móts við Sierra Leone bilaði
eitthvað i skútunni, og hann leitaði hafnar til að fá
gert við hana. Og það er ekki að orðlengja það, að
honum féll þarna svo vel, að hann settist þarna að
, og hóf að kenna innfæddum fiskveiðar og verkun
{ sjávaraflans. En þegar fram í sótti, þótti honum
» það heldur leiðinlegur starfi og nemendurnir ekki
allt 'of námfúsir svo hann seldi skútuna og keypti
i sér lítið veitingahús í Freetown. Þetta hús rak hann
{ með miklum skörungsskap í nokkur ár en þá frétti
hann að einn stærsti klúbburinn þarna væri til sölu,
x ásamt stóru landsvæði, sem heitir Capc Aberdeen og
x er þarna rétt hjá. Hann réðist í að kaupa klúbbinn,
? ásamt landsvæðinu, og þetta er einhver vinsælasti
! samkomustaðurinn í Sierra Leone.
t' Þegar ég hafði verið nokkurn tíma í Freetown,
l frétti ég af tilviljun af þessum hjónum og það með,
, að konan mundi ekki hafa hitt neinn landa sinn
• árum saman. Ég ákvað þess vegna að heimsækja þau,
en það drógst nokkuð á langinn, en einn daginn lagði
ég af stað yfir flóann, þangað sem þau eiga heima.
Þetta var um þann hluta dags þegar heitast er í
veðri, og innfæddi þjónninn, sem ég hitti í hinni
stóru klúbbbyggingu, tók mér heldur fálega, þegar
Framh. á bls. 40.
Og með þessari mynd segir: Afríkumaður að kenna forn-Grikkjum
stærðfræði.
Einnig segja þeir Afríkubúa hafa kennt Grikkjum stafrófið. Þessl
mynd á að tákna Ham kenna bræðrum sínum, Sam og Jafet, stafrófið.
Þá á hraðritunin einnig rætur sínar að rekja til Afríku að sögn Ghana-
manna. Þessi mynd sýnir Tyro, afrískan ritara Ciceros, kenna hrað-
ritun árið 63 fyrir Krist.
FALKINN
21