Fálkinn - 14.09.1964, Blaðsíða 22
Sverrir Ágústsson varðstjóri.
Það er mikill áhugi fyrir flugi á íslandi. Við sögðum nýlega frá
því að tala flugnema væri á annað hundrað hérlendis um þessar
mundir. Þetta er nokkuð há tala og áreiðanlega á hún eftir að aukast
mjög í náinni framtíð. Þetta er líka það samgöngutæki sem hvað
bezt hentar okkur íslendingum í okkar erfiða landi og þótt vegir
teygja sig nú æ meir um landið þá fer vegur flugsins stöðugt vaxandi.
Hér er ekki aðeins um farþegaflug að ræða: fyrirtæki hafa í vaxandi
mæli farið inn á þá braut að hagnýta sér flugið til vörudreifinga og
sportflug vex stöðugt. Og öryggi flugsins fleygir stöðugt fram. Menn
segja með réttu að það sé hættuminna að skreppa með flugvél norður
til Akureyrar eða yfir Atlantshafið heldur en að vera í umferðinni á
götum Reykjavíkur. Og daglega má segja að ný tæki komi á markað-
inn sem auki enn öryggið.
Þessir tveir voru á efstu hæðinni og
stjórnuðu umferðinni í nágrenni vallarins:
Sveinbjöm Bárðarson t. v. og Gísli Guð-
jónsson.
Flugið er hið stóra ævintýri líðandi stundar. Stórar þotur fljúga
með ævintýralegum hraða um loftin blá og gera fjarlægðir að enguj
heimurinn dregst saman og verður allur smærri. Menn vakna vestur
í Ameríku og borða miðdegisverð áður en þeir stíga upp í glæsilegan
farkost loftsins, ellegar þá þeir neyta hans um borð og síðan er kvöld-
verður snæddur í Evr-
ópu, eða einhvers stað-
ar á öðrum stað hnatt-
arins þúsundir mílna
frá síðasta næturstað.
Einn laugardag í
fyrrihluta ágúst lögð-
um við leið okkar á
flugvöll. Það var gott
veður, sól og heiður
himinn og fólk var
þúsundum saman nið-
ur í Nauthólsvík eða
upp í Öskjuhlíð að
njóta sólarinnar sem
ekki hefur látið sjá
sig mikið hér sunnan-
lands í sumar.
Það var mikil um-
ferð á flugvellinum.
Flugvélar, stórar og
smáar renndu eftir
flugbrautunum og
hófu sig síðan til flugs
upp í heiðríkjuna. Eða
þær komu þá utan úr
heiðríkjunni og lentu
mjúklega á malbikuð-
um brautunum.
Við lögðum leið okk-
ar að stórri hvítri
22
FÁLKINN
GREIIXI:
JÓIM ORMAR ORMSSOIVI
IVIYIMDIR:
KÁRI JÓIMASSOIM
í þessu greinarkorni segjum við frá heim-
sókn í flugturninn á Reykjavíkurflugvelli
þar sem flugumferðarmiðstöðin er til
húsa, en hún stjórnar allri flugumferð á
norðanverðu Atlantshafi á stóru svæði um-
hverfis Iandið. Þarna eru margvísleg
störf unnin og við víkjum lítillega að þess-
um margþættu störfum í greininni.
turnbyggingu á vellinum þaðan sem flugumferðinni
yfir landinu og stóru svæði umhverfis það er stjórnað.
Þetta er stór. og glæsileg bygging og skammt frá
stendur gamli flugturninn sem löngu var orðinn allt
of lítill.
Við förum í lyftu upp á 6. hæð hússins og komum
í nokkuð stóran sal þar sem fjórir menn sitja við
stórt borð með allavega tæki fyrir framan sig. Við
heyrum að þeir eru að tala við flugvélar og þegar
þeir tala skrifa þeir á pappírsrenninga fyrir framan
sig. Þetta eru gulleitir og bláleitir miðar og okkur
er sagt að þeir gulu séu fyrir flugvélar sem eru á
leið austur um hafið en hinir bláu fyrir þær sem
fara vestur um. Það er mikið um uppköll og þessir
menn virðast önnum kafniir. Það eru þessir menn,