Fálkinn


Fálkinn - 14.09.1964, Síða 25

Fálkinn - 14.09.1964, Síða 25
Til skamms tíma hefur ekki farið mikið orð af íslenzkri húsgagnaframleiðslu. Hún hefur þótt heldur fátækleg og ein- hæf og margir hafa haldið því fram að hún væri eftiröpun framleiðslu annarra þjóða og lítt sjálfstæð. Vera má að þessar raddir hafi eitthvað til síns máls í nokkrum tilfellum, en ekki öllum. Á seinni árum hefur orðið mikil breyting í þessum efnum. Menn finna sér ný og fjölbreyttari viðfangsefni, fara nýjar leiðir sem áður voru lítt þekktar og fáum kom til hugar. , Og þetta er ekki nema eðlileg afleiðing þeirrar þróunar, að menn sækja nú í auknum mæli út fyrir landsteinana til menntunar í þessari grein. Eitt þeirra fyrirtækja, sem varð til þess að hleypa nýjum i straumum í húsgagnaframleiðsluna hér, er Valbjörk á Akur- eyri. Þótt fyrirtækið sé ungt að árum hefur því vaxið vel fiskur um hrygg og er orðið með stærstu fyrirtækjum sinnar tegundar hér. Valbjörk var stofnuð fyrrihluta árs 1953. Stofnendur voru 6 húsgagnasmiðir á Akureyri serri áður höfðu unnið á tveimur verkstæðum en sameinuðust nú undir einu þaki. Forstjóri fyrirtækisins varð Jóhann Ingimarsson en hann var þá ný- kominn frá námi í Danmörku. Framleiðsla þessa nýja verk- stæðis vakti þegar athygli fyrir ýmsa nýbreytni og fram- leiðslan seldist vel. Fyrst í stað var fyrirtækið til húsa í leiguhúsnæði og starfs- mennirnir voru aðeins níu. Fljótlega varð þó þröngt um ■ starfsemina og þess vegna var hafizt handa um byggingu nýs húsnæðis. Þetta húsnæði var tekið í notkun fyrir nokkrum árum. Við heimsóttum Valbjörk dag nokkurn, meðan við dvöldum nyrðra. Við komum þar seinni hluta dags og spurðum eftir forstjóranum, Jóhanni Ingimarssyni. Okkur var vísað inn af verzluninni og inn á verkstæðið. Strax þar við dyrnar komum við auga á háan hlaða af litlum kössum og á þeim stóð Table Bench. Það barst á móti okkur hávaði úr trésmíðavélum og loftið var mettað af viðarlykt. Við gengum inn eftir verkstæðinu, þar til við komum í hinn enda hússins, þar sem var fyrir efnisgeymsla og þar fundum við Jóhann. — Það er að verða þröngt um ykkur hér, Jóhann, er það fyrsta sem við segjum þegar hann hefur tíma til að sinna okkur. — Já, þetta húsnæði er þegar orðið of lítið. Við lukum byggingu þess fyrir nokkrum árum og höfum nú til umráða nær fimmtán hundruð fermetra gólfpláss en það er orðið allt of lítið fyrir okkur. Við höfum nú í hyggju að stækka við okkur, byggja hér fjögurra hæða hús. Og undir leiðsögn Jóhanns hefjum við gönguna um saiina. Hann sýnir okkur gang hlutanna frá því í efnisgeymslunni og þar til verið er að ganga frá þeim til sendingar. — Hvað vinna hér margir? — Hér vinna nú rúmlega 30 manns. — Ég sé að þið hafið góðan vélakost — Já, við erum nokkuð vel búnir vélum Okkur hefur nýlega bætzt sjálfvirkur rennibekkur sem er hinn bezti gripur — Seljið þið mikið af húsgögnum suður? — Já, verulegur hluti af framleiðslunni fer suður. — Er þá ekki miklum vandkvæðum bundið að reka hér húsgagnaf r amleiðslu ? — Jú, það má til sanns vegar færa. Við fáum talsvert af efni að sunnan og eins seljum við þangað talsvert af framleiðsl- unni. Það verður því töluverður flutningskostnaður sem lendir á okkur. En það hefur einnig töluverða kosti, hér fyrir norðan. Hér er t. d. mikið af góðum mönnum og það hefur ekki svo lítið að segja. Það hefur í mörgum tilfellum allt að segja. — Og hvað er helzt nýtt í framleiðslunni hjá ykkur? — Það er alltaf eitthvað nýtt. Við höfum frá fyrstu tíð lagt mikið kapp á að hafa sem mesta fjölbreytni, og ég vona að það hafi tekizt vel hjá okkur. Annars eru straumbreytingar nú varðandi húsgögn. Eikarhúsgögn ryðja sér nú mjög til rúms. Þá eru línurnar einnig að breytast; þessar ávölu línur, sem hafa verið mikils ráðandi eru að hverfa og kantaðar að koma í staðinn. — Seljið þið mikið með afborgunum? — Já, það er töluvert um slíkt, en þó hefur mér fundizt það minnka nú seinni árin. En þessir afborgunarskilmálar hafa töluverða erfiðleika í för með sér fyrir okkur. — Stendur fólk illa í skilum? — Nei, ekki almennt en það er þó alltaf töluvert um van- skil. — Finnst þér fólk gera meiri kröfur til húsgagna nú en áður? — Já, það gerir það. Það fylgist betur með því, sem er að gerast í þessum efnum, og gerir þess vegna meiri kröfur, bæði hvað viðkemur efni og útliti. Og það er ekki nema eðlilegt, að það vandi vel til, þegar það kaupir húsgögn. Þetta eru ekki dauðir hlutir eins og sumir virðast halda. Þetta eru hlutir. sem fólk kemur til með að hafa daglega fyrir augunum, og það verður með tímanum hluti af því sjálfu, ef svo má að orði komast. Og við erum ekki hræddir Framh. á bls. 39. Jóhann Ingimarsson hefur frá upphafi verið forstjóri Valbjarkar og jafn- framt hefur hann teiknað framleiðsluna.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.