Fálkinn - 14.09.1964, Blaðsíða 26
Dirk Bogarde í hlutverki Barrett.
Jamex Fox í hlutverki Tony.
Sarah Miles í hlutverki Vera
Wendy Craig í lxlutverki Susan.
Vegur brezkra kvikmynda
hefui' farið mjög vaxandi
seinni árin. Bretar hafa
eignast stóran hóp dugandi
manna sem senda frá sér
hverja stórmyndina á fætur
annari.
Háskólabíó hefur nú í
sumar tekið til sýningar
þrjár brezkar kvikmyndir
sem eru í sérflokki. Fyrst
sýndi kvikmyndahúsið
myndina A Taste of Honey
sem byggð var á samnefndu
leikrit Shelagh Delaney.
Það var Tony Richardson
sem leikstýrði þeirri mynd
en hann skrifaði ásamt höf-
undi leikritsins kvikmynda-
handritið.
Tony Richardson var
einnig leikstjóri næstu
brezku stórmyndarinnar er
Háskólabíó sýndi. Það var
myndin The Loniliness of
The Löng Distance Runner
sem gerð var eftir smásögu
Alan Silitoe en hann skrif-
aði sjálfur handritið að
myndinni. Þessi mynd fékk
heldur fálegar viðtökur hjá
reykvískum kvikmyndahús-
gestum þó hér væri á ferð-
inni mjög fágæt mynd.
Myndin var aðeins sýnd í
þrjá daga og innan við
þúsund manns munu hafa
gert sér það ónæði að sjá
hana. Eftir því sem þáttur-
inn hefur frétt mun Há-
skólabíó þó sýna þessa mynd
aftur einhvern tíma í haust
og verður hún þá tekin
fyrir í þessum þætti.
Þegar þessi þáttur er skrif-
aður verður þess ekki langt
að bíða að Háskólabíó sýni
enn eina stórmyndina frá
Bretum: This Sporting Life.
Er vonandi að henni verði
betur tekið en þeirri síðustu
því þetta er mjög athyglis-
verð mynd. Ef þessi mynd
er enn þá á dagskrá þegar
þetta blað kemur út skal
fólk enn einu sinni hvatt
til að sjá hana.
Nú einhvern tíma í haust
mun Kópavogsbíó taka til
sýningar myndina The
Servant. Hún er eins og
þær þrjár töldu hér að ofan
mynd í sérflokki bæði að
efni og vinnubrögðum. Hún er byggð á skáldsögu Robin
Maugham, en leikritahöfundurinn Harold Pinter hefur
skrifað kvikmyndahandritið.
Skal nú stuttlega vikið að efni myndarinnar.
Tony, ístöðulítill og ósjálfstæður ungur maður snýr
heim til Englands frá Suður Afríku. Hann kaupir stórt
hús í einu af betri borgarhverfum Lundúna og ræður
sér þjón að nafni Barrett. Súsan, unnusta Tony fellur
ekki allskostar við þjóninn og vill að hann sé rekinn.
Tony finnst þetta óþarfa afskiptasemi af sínu húshaldi,
er viðkvæmur fyrir þessari afskiptasemi og tekur þetta
ekki til greina. Barrett sem skilur veikleika Tony not-
færir sér hann til að ná þeim tökum á Tony að hann
verður brátt ómissandi á heimilinu.
Einn daginn kemur Barrett með unga stúlku sem
hann kynnir sem systur sína. Ástarsamband tekst
milli Tony og systurinnar Vera og Susan fellur í
skuggann. En einn daginn kemur í ljós að Vera er ekki
systir Barretts heldur lagskona og Tony vísar þeim
báðum á dyr. Hann stendur einn eftir, einmana og
yfirgefinn og allt fer í hirðuleysi í húshaldinu. Dag
nokkurn hittir hann Barrett á bar nokkrum og tekur
hann sáttum að nýju.
Smátt og smátt nær Barrett þeim tökum á Tony sem
hann vill og gerist húsbóndi á heimilinu og það styttist
í þau endalok sem óflýjanleg eru.
Það er Dirk Bogarde sem fer með hlutverk þjónsins
í þessari mynd. Fyrir túlkun sína á þessu hlutverki
hlaut hann verðlaun British Academy. Dirk er fæddur
í London 1919. Faðir hans var einn af ritstjórum The
Times og móðir hans leikkona. Dirk fékk snemma mikinn
áhuga á leiklist og fór ungur að vinna í leikhúsum og
fékk nokkur smáhlutverk. Árið 1940 var hann kallaður
í herinn og var í honum til ársins 1946 og var þá orðinn
Susan geðjast ekki að Barrett. Hún segir við Tony:
Alltaf þegar þú opnar dyr í þessu húsi stendur þessi
maður fyrir utan.
KVIKIVIYIMDA-
ÞÁTTIIR:
KÓPAVOGSBÍÓ SYNIR: