Fálkinn


Fálkinn - 14.09.1964, Side 29

Fálkinn - 14.09.1964, Side 29
tími fyrir mig að koma heim á. Ég fór úr bílnum í þorpinu, og gekk heim á leið. Ég var í óvenjugóðu skapi, eins og ég hefði allt í einu losnað við ein- hverja byrði, sem til þessa hafði næstum því keyrt mig niður í jörðina. Það var yndis- legt að ganga á móti sólinni og anda að sér ilminum af mosan- um í skóginum. Ég var enn í sama létta skap- inu, þegar ég kom heim að hús- inu, og í fyrsta skiptið fannst mér ekki veggirnir ljúkast um mig eins og fangelsi. Það var orðið dimmt, og ég heyrði Charles koma heim. Ég sá hann ekki, af því að ég lá í baðkerinu, þegar hann kom, og á meðan ég klæddi mig gat ég heyrt hann fara í sturtu í sínu eigin baðherbergi. Ég valdi kjól, sem ég hafði ekki notað í langan tíma, þröngan kjól með óvanalegum grænum lit. Mér brá, þegar ég uppgötv- aði, hve hræðilega mikið ég hafði lagt af. Ég horfði ótta- slegin á þunnar kinnarnar og skuggana undir augunum, sem ég sá í speglinum. Giftingar- hringurinn, sem ég hafði árang- urslaust reynt að ná af mér fyrir nokkrum mánuðum, rann Félagsprentsmiöjan h f. SPÍTAJLASTÍG 10 (við Óðinstorg) SÍMI 11640. Prentnn A BÓKUM — BLÖÐUM TÍMARITUM ALLS KONAR EYÐUBLAÐAPRENTUN. Strikun á verzlunarbókum og Iausblöðum. Vandað efni ávallt fyrirliggjandi. Gúmstimplar afgreiddir með litlum fyrirvara. Leitið fyrst til okkar. Félagspremsrniöjan h.f. Spitalastíg 10 — Sími 11640. nú leikandi létt fram af fingr- inum. Ég var komin niður í stofu, þegar Charles kom niður stig- ann. Mér fannst hann verða undarlegur á svipinn, þegar hann sá mig. Við töluðum ekki mikið saman yfir matborðinu. Char- les var þungbúinn. Einhvern tíma hlaut sambandið á milli okkar að hafa verið mikið öðru vísi, en þJ5 var nú — stóð honum nú orðið gjörsamlega á sama um mig, eða var fram- koman, sem hann notaði, til þess eins að dylja hve þungt honum var innan brjósts? Ef ég losnaði við þessar ímyndan- ir mínar, væri þá mögulegí íyr- ir okkur Charles að taka upp aftur fyrra samband okkar í milli? Félagsskap og vináttu, þó ekki væri annað? Ef ég gæti í raun og veru trúað því, að ég væri Lisa Landry . .. Þegar við vorum staðin á fætur, sagði ég: — Ég hitti doktor Broderick í dag. Charles leit snöggt upp. — Broderick? Áttu við lækninn í bænum? — Já, hann ... Charles greip fram í fyrir Framh. á bls. 36. FÁLiminIn «.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.